Home Blog Page 204

HANDVIRK HEPPNI

0

Þessi unga stúlka virðist hafa tekið hlutverk sitt mjög alvarlega þegar hún sá um útdrátt Í Happrætti DAS árið 1954.

Frá stofnun Happdrættis DAS árið 1954 og fram til ársins 1982, fór útdráttur þannig fram að öll miðanúmer voru sett í stóra tromlu. Tromlunni var svo snúið, vinningsnúmerin dregin út handvirkt og skráð niður á blað.

BARON MUNCHHAUSEN

0

Fæðingardagur Munchhausen (1720-1797). Af mörgum talinn frægasti og liprasti lygari allra tíma og það með sanni. Sögumaður af guðs náð.

MÓTMÆLI VIÐ TÓMT HÚS

0

Íslenskir Palestínuvinur efndu ti mótmæla við fyrrum höfuðstöðvar untanríkisráðuneytisins fyrr í vikunni. Fjöldi fólks mótmælti hástöfum með gjallarhornum og bumbuslætti svo undir tók á Hkemmi þanng að rakarinn á torginu get ekki hlustað á útvarpið við vinnu sína. Mótmælin stóðu fyrir í hálfan annan tíma en það sem mótmælendur vissu ekki var að húsið var tómt – utanríkisráðuneytið var flutt í nýja Landsbankahúsið á Hafnartorgi og enginn til að hlusta inndandyra.

RÚSSNESK BÍLABLESSUN Í VESTURBÆNUM

0

Æðsti prestur Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar blessar hér bíl sem eitt af sóknarbörnum hafði keypt og fært til blessunar líkt og Íslendingar láta skoða bíla sína á skoðunarstöðvum. En svona vilja trúaðir Rússsar hafa þetta.

Presturinn blessar alla hluti bílsin, frá vél aftur í skott, framsæti, aftursæti – allt. Er það gert með vígðu vatni sem dreift er með sérstökum gullslegnum bursta.

Svo ekur eigandinn burt á blessaða bílnum.

JÓN VAR EKKI Á FACEBOOK

0

Listamaðurinn Sverrir Norland óskaði Jóni föður sínum til hamingju á samfélagsmiðlum þar sem hann var að komast á eftirlaunaaldur. Sagði hann það lýsa föður sínum vel að hann væri búinn að ákveða hvað standa ætti á legsteini sínum.“Jón var ekki á Facebook.“

MÓÐGUN Í HVERJU ORÐI

0

Lesandi skrifar:

Líklega hefur engin grein á Vísi hlotið jafn miklar og jákvæðar undirtektir og grein Völu Hafstað um það sem hún kallar nýlenskuhernaðinn gegn íslenskunni.
Nánast annar hver maður á Facebook hefur deilt greininni og hún hefur fengið 4.600 „læk“ á Vísi, sem er algjört met.
Vala átelur sérstaklega Ríkisútvarpið fyrir þá „misskildu jafnréttisbaráttu fréttamannanna að útrýma orðinu maður hvenær sem færi gefst.“ Vala, sem er leiðsögumaður og skáld, segir undarlegan þann misskilning að reyna að afmá karlkyn úr orðum til að gera þau hvorugkyns. Ætlum við þá að hætta að tala um Kínverja og tala frekar um Kínafólk vegna þess að orðið Kínverji er í karlyni, spyr hún.
Og að lokum skrifar Vala: „Við erum nefnilega þegar orðin svo hörundsár og sjálfhverf sem þjóð að við lítum á tungumálið okkar sem aðför að eigin persónu í stað þess að sjá hvílíkur fjársjóður það er. Nýlenskuherinn hefur kennt okkur að leita að móðgun í hverju orði í stað þess að efla máltilfinningu hvers mannsbarns með því að auka íslenskukennslu, lesa fyrir börnin okkar og hvetja þau til lesturs vandaðra bóka.“

BENNI OG MARIAM

0

„Þetta er Mariam, vinkona mín frá Palestínu,“ segir Benedikt Erlingsson leikstjóri:

„Hún er nýorðin 1 árs og er að leita sér að framtíðarheimili ásamt foreldrum sínum, Hasan og Oroob. Þau hafa búið á neðri hæðinni hjá okkur Tinnu frá því mæðgurnar komu til landsins í febrúar, þau eru dásamleg fjölskylda og fá okkar allra bestu meðmæli. Þau eru opin fyrir flestum póstnúmerum á höfuðborgarsvæðinu.“

NÍU HEIÐRAÐIR FYRIR 25 ÁR HJÁ SÁÁ

0
Síðdegis í gær var aðalfundur SÁÁ haldinn í Von í Efstaleiti. Líklega sóttu um 70 manns fundinn sem fór vel fram og var skýrsla formanns og reikningar samþykkt samhljóða. Þá fóru kosningar fram með góðum friði.
Theodór Skúli Halldórsson og Heiður Guðmundsdóttir voru kjörin heiðursfélagar fyrir mikil og óeigingjörnu störf fyrir Samtökin.
Þá fengu 9 starfsmenn viðurkenningar fyrir 25 ára gifturík störf.
Flottur aðalfundur, góð og upplýsandi erindi flutt og fundarmönnum boðið upp á kaffi og bakkelsi.

FYRIRSÖGN DAGSINS

0

DV á fyrirsögn dagsins.

RICKY NELSON (84)

0

Ricky Nelson (1940-1985), átrúnaðargoð æskunnar um miðja síðustu öld er afmælisbarn dagsins. Hann var frumherji í dreifingu á á poppi, rokki, söngvari og góður lagasmiður sem tryggði honum 91. sæti á lista Rolling Stone tímaritsin yfir 100 „Greates Artist og All Time.“