Home Blog Page 203

KATRÍN EKKI Í ÞJÓÐKIRKJUNNI

0

Á frundi með forsetaframbjóendum í dag voru þeir spurðir hvort þeir væru í Þjóðkirkjunni. Katrín Jakobsdóttir svaraði: Nei!

BESTA BÍÓLAG Í HEIMI

0

Peter Gunn eftir Henry Mancini.

BÚLLUBORGARINN SLÆR HEIMSMET Á XO GRILL Í VÍN

0

Úr Víkurfréttum:

Hamborgararnir á Hamborgarabúllu Tómasar eru þeir tíundu bestu í Evrópu að mati lesenda alþjóðlegu vefsíðunnar Big 7 Travel en síðan birti lista yfir 50 bestu borgarana í Evrópu.

Hamborgarabúlla Tómasar er á níu stöðum hér á landi, þar af ein í Reykjanesbæ. Besti borgarinn á listanum fæst á XO Grill í Vín í Austurríki og annar besti á Bunsen í Dublin á Írlandi.

ÍSDROTTNINGN MEÐ PARTÝ FYRIR FORSETAFRAMBJÓÐENDUR

0

Ísdrottningin of forsetaframbjóðandinn, Ásdís Rán, slær upp partýi á Iceland Parliamen Hotel við Austurvöll á laugardaginn fyrir alla þá sem boðið hafa sig fram til forseta 2024. Sagt er að Guðni forseti ætli að mæta sjálfur.

LITLA GUNNA OG LITLI JÓN BYGGJA Á NÝLENDU

0

Verið er að reisa lítið hús á lítilli lóð á mótum Nýlendugötu og Seljavegar, svo lítið að athygli vekur. Risaakrani er þó á staðnum til að hífa einingar á efri hæðina og kallast hann einkennilega á við litla húsið.

Íbúar á fjölbýlishúsi á Vesturgötu hafa kvartað yfir skertu útsýni vegna framkvæmdanna en hefur veið bent á að útsýni sé ekki hluti af kaupverði íbúðar og skerðingin nái aðeins til fyrstu hæðar.

Orðrómur í hverffinu hermir að það séu litla Gnna og litli Jón sem séu að byggja þetta litla hús en þau urðu fræg í sönglagi sem fjallaði um þau.

 

 

ZUCKERBERG (40)

0

Mark Zuckerberg, eð hvað hann heitir sá ágæti maður. Fertugur í dag og leikur sér að heiminum eins og í tölvuleik með Facebook.

TOMMI OG HILDUR SAMAN Á TENE

0

Hildur Bolladóttir hönnuður, ekkja Ófeigs gullsmiðs á Skólavörðustíg, og Tommi á Búllunni, eru að halda sameiginlega upp á 75 ár afmæli beggja á Tene. Þau eru búin að þekkjast í 60 ár, bæði fædd 1949.

RAUÐI KROSSINN RÆÐUR EKKI VIÐ RUSLIÐ

0
Teitur Atlason
Teitur Atlason

Ég átti leið um grenndargámastöðina við Vesturbæjarlaug í gær. Ástandið var einfaldlega fárárnlegt. Í fyrsta lagi þá var gámunum ekki raðað upp snyrtilega eða í beinni línu heldur var bara kastað einhvernvegin. Ef af bílstjórnarnir sem tæma þessa gáma myndu bara gefa sér eina mínútu í viðbót og hugsa smávegis, þá væri þetta miklu betra,“segir Teitur Atlason sem gengur vakandi um borina og sér ýmislegt.

„Svo var HELLINGUR af fötum fyrir utan fatagámana (sem eru núna tveir) og alveg ljóst að Rauði krossinn ræður ekkert við þetta verkefni.
Hér er sönn setning. Þið heyrði ekki margar þannig í dag eða í vikunni ef því er að skipta.
„Það skiptir engu máli hvað margir fatagámar eru á þessu svæði – ef þeir eru ekki tæmdir reglulega“.
Ég endurtek. Ef fatagámarnir eru ekki tæmdir – þá verður alltaf subbulegt í kringum gámana. Ég vona að einhver frá Rauða krossinum lesi þetta. Ef það á að leysa þetta ömurlega vandmál, þarf að tæma gámana.
Nú ætla ég að vakta svæðið.

FROSTI FASTUR Í FRÉTT

0

Þessi frétt um Frosta Logason hefur birst nær daglega á stóru vefmiðlunum – sífellt í sama formi í bráðum 17 daga!!! Hvers vegna?

ÍSRAELSKIR HERMENN Á PALESTÍNUMÓTMÆLUM – GORTUÐU AF EIGIN MANNDRÁPUM Á GAZA

0

Í framhaldi af frétt hér um mótmælafund Palestínuvina fyrir framan fyrrum höfuðstöðvar utanríkisráðuneytisins á Rauðarárstíg hafa bæst viðbótarupplýsingar:

Fádæma mannvonska:

Ísraelskir hermenn í fríi mættu á fundinn þar sem þeir gortuðu sig af eigin manndrápum á Gaza.