Home Blog Page 202

HEIMSÓKN HJÁ FJÖLSKYLDU SEM VAR HEPPIN Í LÍFINU

0
Elín Pálma.
Elín Pálma.

Elín Pálmsdóttir blaðamaður skrifaði þessa grein í Vikuna 17. april 1958. Elín skrifaði dálk fyrir kvenfólk og hefði líklega gert það á annan hátt í dag enda búið að endurskapa kvenímyndina af femínistum og félögum. En þetta er áhugaverður gluggi til fortíðar í boði Happdrættis DAS:

Þekkja lesendur til Svanhildar Magnúsdóttur, Guðmundar Guðjónssonar og barna þeirra, Svanhildar, Halldóru Bergljótar, Viðars og Bryngeirs?

SVONA VAR ELLILÍFEYRINN HUGSAÐUR

0

Þetta er sannleikurinn um elllífeyri ríkisvavaldsins til almennings og hugsunina þar á bak við, réttlát og skýr. En skrumskæling, beytingar, fikt í texta og einlægur brotavilji stjórnmálamanna hefur sett þetta allt úr lagi – og enginn kannast við neitt!

ÍSLENSK LIST Á ENSKU

0

Tilkynningar Listaháskólans eru nú yfirleitt sendar út á ensku án þýðingarmöguleika á síðu. Eins og þessi nýjasta:

the final exhibition of the MA graduate students in the Fine Art department of the Iceland University of the Arts, opened last Saturday in The Living Art Museum. With great sensitivity for the affective relationship of everything hidden, the world of objects and nature, the artists share their ideas and sharp views on the contemporary state of impermanence, transformation and rhythm of life at all times. The students will host open artist talks two at a time in the coming weeks.

Camilla Cieroni will also have a 15-minute performance every day the exhibition is open starting at 17:30.

Saturday, May 18th 17:00 – 17:40
Martina Priehodová og Nele Berger

Saturday, May 25th 17:00 – 17:40
Camilla Sæberg og Julie Sjöfn Gasiglia

The Long Thursday, May 3th 20:00 – 20:40
Camilla Cieroni og Galadriel González Romero

Sunday June 2nd 17:00 – 17:40
Jette Dalsgaard og Sunneva Ása Weisshappel

Wednesdays – Sundays 17:30 – 17:45
Performance by Camilla Cieroni

CHER (78)

0

Poppdívan Cher er afmælisbarn dagsins (78). Hún hóf ferilinn með Sonny sem þá var eiginmaður hennar en reif sig lausa úr því sambandi, hóf sólóferil bæði á sviði og í kvikmyndum sem skiluðu henni Óskarsverðlaunum fyrir hlutverk sitt í Moonstruck. Stíll hennar byggir á tveimur orðum: „Cher effect“.

HÖFUÐ LAGT Í BLEYTI Á HJALTEYRI

0

Myndlistarsýningin «Ég legg höfuðið í bleyti_I Soak My Head» eftir Sasha Pirker opnar í
Verksmiðjunni á Hjalteyri laugardaginn 18 maí, kl 14.00

Sasha Á Hjalteyri.
Sasha Pirker

Sasha Pirker lýsir upp Verksmiðjuna með úrvali kvikmyndainnsetninga og staðbundinni
svörun við aðstæðum sem nær yfir síðustu tíu ár starfsferils hennar. Þessi verk bera vitni
ekki aðeins víðtækri forvitni listamannsins og rannsóknartilfinningu, heldur eru þau einnig
grundvölluð á bakgrunni hennar í málvísindum. Hugsun í gegnum tungumál,
tilraunakennda frásögn, persónulegt og byggingarfræðilegt rými og möguleika, verk Sasha
sýna næmni fyrir reynslu, þekkingu og skilningi. Þau eru stundum persónuleg eða
viðkvæm og gefa þá tilfinningu að kvenlinsan sem kvikmyndir hennar verða og eru til í
gegnum séu bæði hugsandi og óvænt, nýstárleg og umvefjandi.
Sasha Pirker (f. 1969 í Vín, Austurríki) er myndlistar- og kvikmyndagerðarmaður sem að
býr og starfar í Vínarborg. Hún hefur kennt kvikmyndagerð og myndlist við listakdemíuna í
Vínarborg síðan 2006.

PERRY COMO – PAPA LOVES MAMBO

0

Afmælidagur Perry Como (1912-2991). Hann mokaði út hljómplötum eins og enginn væri morgundagurinn – Þetta lag fór víða um heim og allir skildu textann og dönsuðu með – Mambo!

UNG AFTUR Á SÓLSKINSKVÖLDI VORSINS

0
Jónatan
Jónatan

Jónatan Hermannsson landgræðslumaður og skáld birti þessa mynd fyrir 9 árum – nákvæmlega á þeim degi sem er núna – 18. mai 2015:

vorið fór eins og vindsveipur yfir Vesturbæinn
ég tók olíu á bensínstöðinni við Ægissíðu
og fann það þjóta yfir
„er nokkuð yndislegra,
leit auga þitt nokkuð fegra
en vorkvöld í vesturbænum“
vesturbærinn er staður vorsins – það er skáldinu að þakka
„og vorið kom í maí
eins og vorin komu forðum
með vængjaþyt og sólskin
og næturkyrrð og angan“
skáldskapurinn velur heiminum lit – býr til glaða borg með sólskini
„strætin syngja
gatan glóir
grasið vex á Arnarhól“
og hvergi annars staðar í heiminum
mundi vera hægt að nefna í sömu andrá borg og sólskin og nótt
„nóttin bíður
björt og fögur
borgin ljómar
sólin skín“
og við
sem komin erum yfir miðju tímans
verðum á einhvern undarlegan hátt ung aftur
bara eina smástund
á einu sólskinskvöldi vorsins

DENNIS HOPPER (88)

0

Fæðingardagur leikarans og leikstjórans Dennis Hopper (1936-2010). Uppreinsarseggur sem náði til unga fólksins og ekki síst í fyrstu kvikmynd sinni Easy Rider.

 

KATRÍNARSTAÐIR

0

Íslenskar skopmyndir eru farnar að taka á sig grimma mynd í forsetaslagnum. Þetta er af vefnum Íslenska grínsíðan og skýrir sig sjálft.

BARBARA HVERGI BANGIN

0
„Barbara Hannigan hefur verið ráðin aðalstjórnandi Sinfóníunnar okkar,“ segir Herbert Guðmundsson gamal tenór og ritstjóri með meiru:
„Mögnuð kona frá Kanada, sem stjórnar og syngur í senn, og lætur jafnvel hljómsveitina syngja auk þess að spila! Á til að bresta í alls konar uppátæki sem aðrir hljómsveitarstjórar leyfa sér ekki.
Nú vildi ég gjarnan yngjast nóg til þess að endurnýja kynni mín af Sinfóníunni. En Barbara er ljóslifandi á YouTube í margvíslegum hlutverkum sínum sem stjórnandi stórhljómsveita og sópraninn.“