HomeGreinarUNG AFTUR Á SÓLSKINSKVÖLDI VORSINS

UNG AFTUR Á SÓLSKINSKVÖLDI VORSINS

Jónatan
Jónatan

Jónatan Hermannsson landgræðslumaður og skáld birti þessa mynd fyrir 9 árum – nákvæmlega á þeim degi sem er núna – 18. mai 2015:

–
vorið fór eins og vindsveipur yfir Vesturbæinn
–
ég tók olíu á bensínstöðinni við Ægissíðu
og fann það þjóta yfir
„er nokkuð yndislegra,
–
leit auga þitt nokkuð fegra
en vorkvöld í vesturbænum“
vesturbærinn er staður vorsins – það er skáldinu að þakka
–
„og vorið kom í maí
eins og vorin komu forðum
með vængjaþyt og sólskin
og næturkyrrð og angan“
–
skáldskapurinn velur heiminum lit – býr til glaða borg með sólskini
„strætin syngja
gatan glóir
grasið vex á Arnarhól“
–
og hvergi annars staðar í heiminum
mundi vera hægt að nefna í sömu andrá borg og sólskin og nótt
–
„nóttin bíður
björt og fögur
borgin ljómar
sólin skín“
–
og við
sem komin erum yfir miðju tímans
verðum á einhvern undarlegan hátt ung aftur
bara eina smástund
á einu sólskinskvöldi vorsins
TENGDAR FRÉTTIR

FEÐGAR HOFÐU Á HARRY POTTER Í SJÓNVARPINU – SONURINN VISSI EKKI AÐ PABBI HANS HEFÐI LEIKIÐ HARRY POTTER

Daniel Ratcliffe, sem lék Harry Potter í í samnefndum kvikmyndum, horfir á Harry Potter með syni sínum sem hefur ekki hugmynd um að hann...

BERGÞÓRA GLÍMIR VIÐ SEÐLA-GEIRA

Hagbarður í Hokri sendir póst: - Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur Íslandsbanka er ekki við sama heygarðshornið og stórbóndinn Seðla-Geiri í Svörtuloftum (sjá hér.) Bergþóra er samt greinilega...

JURTAKOKTEILAR Í GRASAGARÐINUM

Slow Food á Íslandi býður ykkur í BragðaGarð, skemmtilega og fræðandi Slow Food hátíð sem haldin verður í Grasagarði Reykjavíkur föstudaginn 9. október kl....

ÚKRAÍNSKAR HELGIMYNDIR TIL ÍSLANDS – Í SKJÓLI HÉR ÞAR TIL STRÍÐINU LÝKUR

Listasafn Íslands opnar 17. október sýninguna Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás, þar sem sýndar verða 32 fágætar helgimyndir úr safneign Listasafns...

RÁÐHERRANN RÆKTAR EPLI – AÐSTOÐARKONAN GÚRKUR

Logi Einarsson menningarmálaráðherra ræktaði epli í sumar og uppskeran komin í hús - þrjú epli. Ráðherrann hefur ákveðið að börnin hans tvö fái sitthvort...

FRIÐARVIKA Í REYKJAVÍK

Á þessu ári eru liðin 40 ár frá hinum sögulega leiðtogafundi í Reykjavík árið 1986, þar sem Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Míkhaíl Gorbachev,...

SKORA Á SÆLAND AÐ VÍGGIRÐA HLJÓMSKÁLAGARÐ

Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg: - Það þarf girða fyrir að börn og táningar séu að ráfa inn í Hljómskálagarð. Skora á  Sæland að setja rammgerða víggirðingu og...

VOPNABRÆÐUR AKA Á KJÖRSTAÐ

Gamla skopmyndin sýnir Kjartan Gunnarsson, fyrrum framkvæmdastjóra Sjalfstæðisflokksins, og vopnabróður hans, Hannes Hólmstein, akandi á kjörstað í Stúdentaráðskosningum í Háskólanum þegar þeir stunduðu þar...

ÞJÓFÓTTUR KÖTTUR Í VESTURBÆNUM

"Ég vil afsaka það innilega ef að hann Dreki minn hefur stolið af þér sokk sem að hann finnur í þvottahúsum í hverfinu og...

KYNJARUGL Á MEISTARAVÖLLUM

Það var glæsileg umgjörðin á Meistaravöllum þegar KR-stelpurnar tóku á móti HK-stelpunum í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil B liða. Leikurinn fór 2-2 og tapaðist annars vegar...

DORRIT ELSKAR ICELANDAIR

Þjóðargersemin Dorrir Moussaieff flaug með Icelandair og var ánægð með. Fékk að heilsa upp á flugmennina í flugstjórnarklefanum og þakkaði fyrir sig með þessu: "Thank...

SKÚLI MOGENSEN Á LISTAVERK EFTIR HELGA HÓSEASSON

"Skilti/listaverk eftir Helga Hóseasson (1919-2009) frá 12. september 1995 en gæti allt eins verið dagsett í dag," segir athafnaskáldið Skúli Mogensen og heldur áfram: - "Sorglegt...

Sagt er...

"Hversu lengi á að sjóða egg? Það getur munað ótrúlega miklu á einni mínútu." Albert eldar

Lag dagsins

Bandaríski leikarinn, handritshöfundurinn og kvikmyndaframleiðandinn Matt Damon er afmælisbarn morgundagsins (56). Sló fyrst í gegn í kvikmyndinni Good Will Hunting þar sem hann var...