Home Blog Page 201

BARNAFÖT EINS OG MOLD OG MALBIK Á LITINN

0

„Það vantar 80’s og 90’s litaskima inn í líf íslenskra barna,“ Theódóra Björk Guðjónsdóttir móðir lítils drengs sem er að stækka:

„Alltof mikið um útifatnað sem er á litinn eins og mold og malbik. Þetta snýst um öryggi og sýnileika ekki síður en smekk, ég vil síður týna syni mínum í borgarlandslaginu.“

GLEYMDI SNILLINGURINN SEM HÉLT VIÐ FEGURÐARDROTTNINGAR OG HÚSMÆÐUR Á VÍXL

0
Halldór Guðmundsson.
Halldór Guðmundsson.

„Skrifaði að þessu sinni í Bokmagasinet / Klassekampen um einn af vinsælustu og mest þýddu höfundum Noregs á millistríðsárunum, sem nú er þeim með öllu gleymdur: Kristmann Guðmundsson,“ segir Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur og fær heldur betur viðbrögð hjá Kristjáni B. Jónassyni fyrrum bókaútgefanda.

Kristján B. Jónasson.
Kristján B. Jónasson.

„Ég tók mig til sumarið 2022 og las allar endurminningabækur Kristmanns og held að það sé einn áhrifamesti texti sem ég hef lesið á undanförnum árum. Skrifaðar af gríðarlegum þrótti, fullar af mótsagnakenndum og jafnvel ofsafullum tilfinningum. Heimsmaður sem ferðast um Evrópu á rauðum sportbíl eitt sumar, flýgur til Parísar í skítaveðri til að fara í partí og er næstum dauður á leiðinni, siglir um Óslóarfjörð á spíttbátum og heldur við fegurðardrottningar og húsmæður á víxl. En er svo allt í einu orðinn hænsnabóndi við Elliðaár og er þá stoltastur yfir hvað hann fær mörg egg á dag til að selja setuliðinu. Giftist svo jógadísinni og píanóleikaranum Steinunni Briem sem síðar þýddi Múmínálfanna, eftir að hafa tekið við henni eftir að reynt hafði verið að byrla henni ólyfjan og ræna af indverskum bandíttum í Róm. Það á að gera sjónvarpsþáttröð byggða á ævi hans.“

SKÓSMIÐUR FÉKK BÁTINN EN PRENTARI BÍLINN

0

„Skósmiður fékk bátinn en prentari bílinn“ var fyrirsögn stuttrar fréttar í Tímanum 11. janúar 1956.

Daginn áður höfðu vélbáturinn Kofra-tindur og Chevrolet fólksbíll verið í vinning í Happdrætti DAS. Báturinn kom á miða Ólafs Jakobssonar skósmiðs á Ísafirði en fólksbílinn fékk Kjartan Ólafsson prentari í Reykjavík.

JOHN WAYNE (107)

0

Kúrekahetja hvíta tjaldsins, John Wayne (1917-1979), er afmælisbarn helgarinnar, hefði orið 107 ára. Hann lék í 142 kvikmyndum á ferlinum sem spannaði hálfa öld – myndir sem allir fóru að sjá. Honum tókst að verða táknmynd hins eina sanna Ameríkana í huga heillar þjóðar. Og hann tók stundum lagið og þá helst á hestabaki

VIGDÍS ÚR LEIK – ONEI!

0

Þetta er ekki búið fyrr en þetta er búið. Athyglisverð frétt á lokametrum forsetakosninganna 1980.

MENNINGARSKANDALL Í KEFLAVÍK

0
„Einkasýningu minni, „ Rúmmál Undantekningar“ sem opna átti á morgun, laugardaginn 25. maí kl 14, í Listasafni Reykjanesbæjar, hefur verið aflýst af safnstjóra Listasafnsins, með samþykki sviðsstjóra menningarsviðs Reykjanesbæjar- af engu staðfestu tilefni,“ segir Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir fjöllistakona.
„Athugasemdir hafa verið gerðar við þennan fordæmalausa gerning og farið fram á raunhæfar skýringar, umsamdar hefðbundnar greiðslur auk sanngjarnra miskabóta.
Það er dapurlegt en um leið á sinn hátt áhugavert að flytja tíðindi af þessum fordæmalausa gerningi sem felur í sér skemmdarverk að yfirlögðu ráði á listaverkum og sýningu, að því er virðist sprottin af annarlegum hvötum en ekki byggt á ritskoðun eða ágreiningi um inntak, form og eðli verka.
Fljótt á litið virðist því sem, með þessum gerningi Safnstjóra, stutt af yfirstjórn og vinnuveitendum Listasafn Reykjanesbæjar – Reykjanes Art Museum, án skoðunar eða efasemda um forsendur og framgangssemi safnstjórans, sé brotið blað í íslenskri listasögu og safnastarfi. Í víðara samhengi er hér þó etv um að ræða kennileiti eða viðvörunarmerki á lengri vegferð.“

ÁN ORÐA – ORÐLAUS

0

Í tilefni daga sem fara í hönd.

BOB DYLAN (83)

0

Nóbelsverðlaunahafinn og þjóðskáld USA er afmælisbarn dagsins, Bob Dylan (83). Hann drekkur morgunkaffi eins og aðrir.

 

ÞESSAR HENDUR HAFA SNERT MARILYN MONROE

0

„Ég snæddi einu sinni hádegismat í heimahúsi í Camden Town, London, með Arthur Miller. Ég sat við hliðina á homum og við borðuðum pasta með trufflusveppum sem sameiginlegir vinir okkar höfðu tínt dagana áður á Ítalíu“ segir Jessica Martin.

„Arthur var ljúfur og skemmtilegur og hógvær. Það lá auðvitað beinast við að hlusta vel á það sem þessi stórkostlegi listamaður, einn af stærstu höfundum 20. aldarinnar, léti út úr sér, en ég man að ég greip sjálfan mig í að hætta stundum augnablik að hlusta á viskuna sem flóði út úr Arthur og glápa þess í stað á stórar og freknóttar hendurnar á honum og hugsa, „þessar hendur hafa snert Marilyn Monroe“.

DÖKKRAUÐUR FULLTRÚI GUÐSRÍKIS

0
Herbert Guðmundsson
Herbert Guðmundsson

„Fulltrúar Guðsríkis voru í Skálholti um síðustu helgi hjá Kristjáni Björnssyni vígslubiskupi, sem er á myndinni manna dökkrauðastur, segir Hertbert Guðmundsson fyrrum ritstjóri með mörgu öðru.

„Hann vígði tvo nýja presta og tvo nýja djákna, bara á einu bretti. Kristján hafði mesta ánægju af því að tóna á latínu í athöfninni, enda skildu æðri máttarvöldin ekkert annað tungumál. Ekki fylgdi sögunni hvað öll þessi borðalegging átti að merkja. En hönnuðurinn fær 10 og kertapakka árlega til æviloka.“