Home Blog Page 200

GUÐJÓN STYÐUR HÖLLU HRUND

0

„Eftir að hafa fylgst með forsetaframbjóðendum í fjölmiðlum og við nánari umhugsun hef ég loks komist að þeirri endanlegu niðurstöðu að Halla Hrund Logadóttir sé trúverðugasti frambjóðandinn,“ segir Guðjón Friðriksson landsþekktur sagnfræðingur og samfélagsrýnir:

„Hún hefur lagt áherslu á að auðlindir Íslands eigi að vera í eigu þjóðarinnar og vill standa vörð um þær. Það gerði hún reyndar einnig sem orkumálastjóri. Þetta finnst mér afar mikilvægt og hana ætla ég því að kjósa.“

KLIKKAÐA HRINGLEIKAHÚSIÐ

0

HEYRST hefur…

…að Katrín Jakobsdóttir núverandi forsetaframbjóðandi og fyrrverandi forsætisráðherra muni, tapi hún forsetakosningunum, taka við ritstjórn Morgunblaðsins af Davíð Oddssyni fyrrverandi forsætisráðherra og fyrrverandi forsetaframbjóðenda.

KING OF SWING

0

Það er ekki lítið að fá viðurnefnið „King Of Swing“ í bandarískum tónlistarheimi en það fékk afmælisbarn dagsins, Benny Goodman (1909-1986) í lifandi lífi. Stjórnandi stórsveita og stundum einn með sjálfum sér í eigin „jazzi“ – og allt þar á milli.

EIGINKONA BUBBA STYÐUR HÖLLU HRUND

0

Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, eiginkona Bubba Morthens, ætlar ekki að fylgja manni sínum og kjósa Katrínu Jakobsdóttur í forsetakosningunum. Ef marka skal nýja prófílmynd hjá Hrafnhildi er Halla Hrund hennar frambjóðandi og þangað fer exið.

Bubbi Morthens hefur með réttu kvartað yfir viðbrögðum margra og skrílsláta vegna stuðnings hans við framboð Katrínar – og heima fyrir dansar eiginkonan ekki með. Sjálfstæð kona!

PARÍSARHJÓL VIÐ HÖFNINA Í SUMAR

0

Parísarhjól verður sett upp á Miðbakka Reykjavíkurhafnar í sumar. Um tilraunaverkefni til eins sumars er að ræða og mun Taylors Tivoli Iceland ehf annast uppsetningu og rekstur á parísarhjólinu.

Mikill áhugi var á verkefninu og bárust fjórar umsóknir, en ákveðið var að bjóða Taylors Tivoli Iceland ehf til viðræðna. Á fyrirtækið önnur parísarhjól og hefur reynslu bæði af rekstri þeirra og af rekstri tívolís á Miðbakka. Gengið hefur verið úr skugga um að búnaðurinn þoli íslenskar aðstæður, þar með talið vindálag og jarðhræringar. Áhersla verður lögð á góða hljóðvist í kringum parísarhjólið og verða framkvæmdar hljóðmælingar á prufutímabilinu.

HÁDEGISVERÐUR BORGARINNAR

0

Frá Reykjavíkurborg:

Það er gefandi að setjast niður í hádeginu í notalegu umhverfi og fá sér góða og næringarríka máltíð. Í félagsmiðstöðvum velferðarsviðs er hægt að kaupa heitan hádegisverð alla virka daga. Á Vitatorgi við Lindargötu er hádegisverður í boði alla daga ársins, líka um helgar og hátíðisdaga.

  • Hádegisverður (ellilífeyrisþegar og öryrkjar): 1.020 kr.
  • Hádegisverður með afsláttarmiða sem fást í eldhúsi: 940 kr.
  • Almennt verð: 1.640 kr.

ERTU AÐ HLUSTA, KATRÍN?

0

Fallegur staður – ömurlegar aðstæður. Ertu að hlusta, Katrín?

RINGO Í ATLAVÍK ’84

0

Ringo Starr var boðið á útihátíð í Atlavík í Hallormsstaðaskógi um verslunarmannahelgina í ágúst 1984. Þar var einnig Friðrik Indriðason blaðamaður á DV og lét ekkert fram hjá sér fara.

Fréttin öll hér!

Í framhaldinu hætti Ringo að djúsa og djamma en á hótelinu sem hann gisti á í Reykjavík vakti það athygi þjónanna að hann blandaði koníakið sitt með Egils Appelsíni – það hafði aldrei áður sést á barnum.

MARGFALDUR KJÓSANDI

0

Þessi var að fara að kjósa – líklega alla í einu.

SÝNINGIN SEM ALDREI VAR SÝND

0

Mánudagspóstur vegna fréttar:

Sæll Eiríkur

Fyrir hönd Listasafns Reykjanesbæjar harma ég að ekki verði af sýningu Bryndísar Hrannar Ragnarsdóttur í safninu. Það er synd að svona fór en því miður gekk samstarfið mjög brösuglega frá upphafi og ekki var staðið við þá tímafresti sem settir voru er snúa að uppsetningu sýningarinnar.

Nokkrum dögum fyrir fyrirhugaða opnun kom í ljós að Bryndís treysti sér ekki að fylgja þeim ramma sem safnið hefur sett er varða m.a. útgjöld, vinnutíma starfsfólks og samvinnu um sýningaskrá. Safnið setti þá fram úrslitakosti um loka-undirbúning sem ekki var fallist á.

Listamaðurinn og verkin hans eru sannarlega mikilvægasti þátturinn í hverri sýningu en það koma þó margir aðrir að því að setja upp og undirbúa myndlistarsýningar. Tæknimenn, smiðir, aðstoðarfólk, listfræðingar, sýningarstjórar og fleira starfsfólk. Í þessu tilfelli komu upp samstarfsörðugleikar sem leiddu til þessarar leiðu niðurstöðu að ekki verður af sýningunni í Listasafni Reykjanesbæjar.

Með því er ekki felldur neinn dómur um listamanninn eða verk hans en því miður gengur hlutirnir ekki upp í þessu tilfelli.

Bestu kveðjur,

Helga Þórsdóttir – Safnstjóri Listasafns Reykjanesbæjar / Museum director of Reykjanes Art Museum / Þjónustu- og menningarsvið.