Home Blog Page 199

SLÆÐUÆÐI BRESTUR Á

0

Allir komnir með slæður um háls líkt og nýi forsetinn setti óvart upp í kosningabaráttunni. Slæðuæðið nær inn á Alþingi þar sem Tommi á Búllunni situr og segir:

„Í tilefni af kjöri Höllu Tómasdóttur í embætti forseta Íslands er þessi vika vika slæðunnar. Til Hamingu Halla!“

OLÍS SKERÐIR ÞJÓNUSTU – MÆLIR EKKI LENGUR OLÍU Á BENSÍNSTÖÐVUM

0

Sú var tíðin að bensínstöðvar voru mikilvægar við rekstur bíls – þar var olían mæld, skipt um perur og jafnvel viftureimar og starfsmenn á plani sífellt viðbúnir.

Nú er þesu endanlega lokið hjá Olís og olían er ekki lengur mæld á plani. Stendur þá lítið eftir nema eldsneyti í sjálfssala og sjoppan sjálf.

N1 stendur hins vegar enn í lappirnar og þjónustar kúnna sína á bensínstöðvum með sóma. Þar til annað kemur í ljós.

VARÚÐ FRÁ VEÐURSTOFU

0

Tilkynning frá Veðurstofu Íslands:

„Lík­ur eru á því að veðrið verði langvar­andi og marg­ar spár sýna að því sloti ekki fyrr en á föstu­dag. Ef spár ræt­ast, er um að ræða óveður sem er mjög óvenju­legt á þess­um árs­tíma, bæði hvað varðar vind­styrk og einnig lágt hita­stig sam­fara tals­verðri úr­komu. Huga þarf að lausa­mun­um sem geta fokið. Ferðalög geta verið vara­söm, sérílagi á öku­tækj­um sem eru viðkvæm fyr­ir vindi. Snjóþekja get­ur sest á vegi á Norður- og Aust­ur­landi, einkum fjall­vegi. Huga þarf að því að koma bú­fénaði í skjól. Útivistar­fólki er bent á að fara yfir áætlan­ir sín­ar með til­liti til kulda og vos­búðar sem óveðrinu fylg­ir.“

MAMMA ÁSDÍSAR RÁNAR (72)

0

Eygló Gunnarsdóttir, móðir Ísdrottningarinnar og forsetaframjóðandans Ásdísar Ránar, er afmæilisbarn dagsins (72). Eygló og Ásdís dóttir hennar hafa alltaf verið nánar og starfað saman að frama Ásdísar erlendis og hér heima. Þær fá óskalag með Drottningunni – Queen – Don´t Stop Me Now:

 

FORSETASYSTKININ SEM ALDREI URÐU

0

Ef Katrín Jakobsdóttir hefði unnið forsetakosningarnar hefði orðið til fyrsta forsetasystkinapar þjóðarinnar því Ármann bróðir Katrínar er forseti Hins íslenska bókmennfélags líkt og Jón Sigurðsson forseti sem nú stendur sem stytta á Austurvelli, aldrei nefndur annað en Jón forseti þó hann væri aldrei forseti Íslands heldur Hins íslenska bókmenntafélags líkt og Ármann Jakobsson nú.

SONUR ALI BABA (99)

0
Faðir og dóttir - Tony og Jamie Lee Curtis.
Faðir og dóttir – Tony og Jamie Lee Curtis.

Afmælisdagur kvikmyndastjörnunnar Tony Curtis (1925-2010) – hefði orðið 99 ára í dag. Sló í gegn í kvikmyndinni Sonur Ali Baba sem sýnd vara í Trípólibíói sem var í Vatnsmýrinni upp úr miðri síðustu öld. Þá er hann einnig faðir leikkonunnar Jamie Lee Curtis sem hann átti með likkonunni Janes Leigh.

TÍU ÁRA BRÚÐKAUPSAFMÆLI HÖLLU HRUNDAR Í DAG – BRÚÐKAUPSMYNDIN

0

„Í dag fögnum við 10 ára brúðkaupsafmæli,“ segir forsetaframbjóðandinn Halla Hrund og lítur upp úr erli dagsins og hugsar til eiginmannsins, Kristjáns Freys Kristjánssonar:

„Ævintýrið okkar byrjaði í dansi á Þjóðhátíð og síðan þá höfum við tekið ófá danssporin saman, stofnað fjölskyldu, byggt upp heimili, ferðast um heiminn og farið saman í gegnum svo margt.

Lífið er ekki alltaf salsa eða tangó, stundum er það tregafullur vals, stundum leiði ég og stundum leiðir Kristján en við komumst alltaf í gegnum sporin, saman.
Ég er svo þakklát fyrir þessi tíu ár, fyrir þetta ævintýri sem við eigum saman. Kristján er frábær dansfélagi í gegnum lífið og ég er svo óendanlega þakklát að hafa minn besta vin og stelpurnar okkar tvær mér við hlið hvern dag.“

HALLA TÓMASAR KOLFÉLL Á PRÓFINU

0

Kjósandi skrifar:

MARILYN MONROE (98)

0

Frægasta kynbomba bandarískrar sögu er afmælisbarn dagsins, Marilyn Monroe (1926-1962) hefði orðið 98 ára í dag. Öll bandaríska elítan, hvort sem var í menningu, stjórnmálum eða skemmtanaiðnaðinum, var á höttunum eftir henni og sjálfur forseti landsins gat ekki látið hana í friði. Svo dó hún langt fyrir aldur fram og forsetinn reyndar líka þó á annan hátt væri.