Hrefna Haraldsdóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar íslenskra bókmennta blæs í herlúður til varnar bókinni í Morgunblaðinu í dag.
GÍSLI MARTEINN VEIKUR OG BERGLIND FESTIVAL BRILLERAÐI
„Á mínu heimili líðst engum að hallmæla Gísla Marteini. Ég ætla að halda þeim sið,“ segir Hjörtur hjartarson hagfræðingur og landsþekktur baráttumaður fyrir nýrri stjórnarskrá í tilefni að því að Gísli Marteinn sjónvarpsstjarna var veikur í gærkvöldi og gat ekki mætt. Aldrei þessu vant. Berglind Festival settist því í stól hans og Hjörtur var að horfa:
„Það verður samt að segjast að þáttur Gísla Marteins var óvenju skemmtilegur. Flensan og Berglind Festival verða honum vonandi ekki að fjörtjóni.“
Þess má geta að Hjörtur Hjartarson er faðir hlaðvarpsstjörnunnar Þórarins Hjartarsonar – Ein pæling.
PEPSI LAX Í NOREGI
Sagt er að vinsælasti gosdrykkurinn í Noregi sé Pepsi Lax en ekki Pepsi Max. Þeir eru svo flinkir í laxeldi.
Norðmenn fara mikinn og eru eiginlega bestur í öllu. Unnu flest gullin á Vetrarólympíuleikunum, brilleruðu á Evrópumótinu í handbolta, sópa til sín verðlaunum á kvikmyndahátíðum bæði fyrir bíómyndir og sjónvarpsseríur og nú er fótboltalið úr norskri sveit að leggja þá bestu á lokametrunum í Meistaradeildinni í knattspyrnu.
Kannski er „Pepsi Lax“ brandari – og þó ekki.
ELIZABETH TAYLOR (94)
Fæðingardagur stórstjörnunnar Elizabeth Taylor (1932-2011). Hún reis til frægðar á sjötta áratugnum með kvikmyndaleik sem færði henni tvenn Óskarsverðlaun sem besta leikkonan í aðalhlutverki og skrautlegt einkalíf hennar bætti um betur í raunveruleikanum. Á sjöunda áratugnum var hún tekjuhæsta leikkona í heimi og minningin lifir enn.
SIGMUNDUR SEGIR

SNJÓAÐI LÁTLAUST Í FIMM MÁNUÐI Í ODDSSKARÐI
RÚTUBÍLAKÓNGUR FRÁ SELFOSSI TEKUR VIÐ BIÐSTÖÐINNI Í MJÓDD
Borgarráð samþykkti í dag leigusamning við GTS ehf. (rútubílafyrirtækið kennt við Guðmund Tyrfingsson á Selfossi) um leigu á hluta húsnæðisins við Þönglabakka 4, það er biðstöðinni í Mjódd. Gert er ráð fyrir að húsnæðið þjóni meðal annars hlutverki miðlægrar samgöngumiðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.

Um er að ræða þjónusturými í suðurhlið hússins og umráð yfir biðsölum beggja vegna gegnumgangs á fyrstu hæð, samtals um 426 fermetra auk sameignar. Þá mun leigutaki fá afnot af hluta bílastæðalóðar.
Leitað hefur verið um nokkra hríð eftir áhugasömum aðila til að vera með rekstur í biðstöðinni og þjónusta farþega Strætó bs og hefur nú verið samið við GTS ehf. Gert er ráð fyrir að reksturinn bjóði upp á fjölbreytta þjónustu fyrir farþega Strætó bs, verði öllum opinn og opnunartími lengdur í samræmi við tímatöflu Strætó bs.
JOHNNY CASH (94)
Goðsögnin Johnny Cash (1932-2003) hefði orðið 94 ára í dag, fæddur í Kingsland í Arkansas USA. Hrjúf rödd hans flokkast undir það sem kallað er bassa barítón, textarnir róttækir en allt í blíðu. Hann var alltaf svartklæddur og sá fyrsti sem titlaður var „Man in Black“.
HITI HÆKKAÐUR Í 35 GRÁÐUR Í BREIÐHOLTI
Tilraunaverkefni um ungbarnavænar sundlaugar hefst í Breiðholtslaug í mars, þar sem prófaðar verða leiðir til að bæta aðstöðu og upplifun yngstu sundlaugagestanna og fjölskyldna þeirra. Tilraunaverkefnið verður alla sunnudaga í innilauginni í Breiðholtslaug í mars.
Í Breiðholtslaug verður hiti innilaugar hækkaður í 35 gráður á sunnudögum, flot- og ungbarnaleikföng verða aðgengileg og sérstök áhersla lögð á rólegt og barnvænt umhverfi.

