Home Blog Page 14

GIVE IRELAND BACK TO THE IRISH

0

Á þessum degi 1972 sendi Paul McCartney frá sér lagið Give Ireland Back To The Irish sem þótti djarft í heimalandinu.

ÉG VAR GEORGE – OG ER ENN

0

George Harrison hefði orðið 83 ára í dag ef krabbinn hefði ekki lagt hann að velli rétt fyrir sextugt.

Það voru frímínútur hjá tólf ára bekknum í Breiðagerðisskóla 1964 og Bítlarnir höfðu verið í Kanasjónvarpinu kvöldið áður í skemmtiþætti Ed Sullivan. Um annað var ekki rætt og hiti í börnum – allir áttu sinn uppáhalds Bítil. Valgeir Guðjónsson, foringi okkar og síðar Stuðmaður, var John. Allar stelpurnar voru Paul. Þeir sem vildu vera eitthvað annað voru Ringo. Ég einn var George.

Kannski var það vegna þess að George var eins og minnimáttar í Bítlunum, virkaði feiminn en flinkur á gítarinn. Ég hallaði mér þangað og hef gert síðan. Haldið með þeim sem minna mega sín bæði í lífinu og enska boltanum. Dáist að Ingu Sæland í pólitíkinni og bíð eftir því að Leeds vinni Liverpool á Anfield.

Ég er enn George inn við beinið.

LISTAVERKIN LEYNAST VÍÐA

0

Listaverkin leynast víða í Reykjavík. Þetta er á Skothúsvegi. Hver er höfundurinn?

HVERNIG ER AÐ BÚA Í FRIÐLÝSTU HÚSI?

0

Húsverndarstofa býður til fræðslufundar í Lækjargötuhúsi á Árbæjarsafni, fimmtudaginn 26. febrúar kl. 17-19, um lífið í gömlu húsi. Að þessu sinni mun Bjarni Agnar Agnarsson, eigandi hússins að Tjarnargötu 22 í Reykjavík, deila reynslu sinni af lífinu í húsi sínu, verndun og viðhaldi þess, en húsinu er vel við haldið og það er enn mjög upprunalegt.

Húsið við Tjarnargötu 22 er eitt hinna glæsilegu timburhúsa í bárujárns-sveitserstíl sem standa við Tjörnina í Reykjavík. Húsið, sem var reist árið 1906 eftir uppdráttum Rögnvaldar Ólafssonar arkitekts, stendur enn í sinni upprunalegu mynd þökk sé góðu og reglulegu viðhaldi.
Húsið var reist fyrir Klemens Jónsson landritara, æðsta embættismann Stjórnarráðsins sem síðar varð bæði þingmaður og ráðherra. Húsið er enn í fjölskyldunni en núverandi eigandi þess er barnabarn Klemens, Bjarni Agnar Agnarsson.

Á fundinum mun Bjarni Agnar fræða viðstadda um húsið sjálft, áhugaverða sögu þess auk þess að veita innsýn í lífið með gömlu friðlýstu húsi.

Boðið verður upp á kaffi og te.

INNSKRÁNING Í HÁSKÓLANN 1955

0

Urgur er í stúdentum vegna hækkunar skrásetningargjalda í Háskóla Íslands sem fara nú upp í 100 þúsund. Árið 1955 var þetta einfaldara. Háskólarektor gaf út virðulegt bréf fyrir hvern stúdent, undirritaði sjálfur og málið afgreitt – sjá mynd.

LILLE SOMMERFUGL

0

Með hækkandi sól breytast lögin sem óma innra með fólki frá degi til dags án þess að það fái nokkrum um það ráðið. Nú er það Lille sommerfugl eins og Danir nefna fiðrildi.

VEL VAKANDI ÓPERUSÖNGKONA

0

Guðrún Á Símonar óperusöngkona (1924-1988) lét til sín taka í samfélagsumræðunni á litríkum og glæsilegum ferli. Þá var ekki Facebook fyrir að fara en hægt var að senda Velvakanda í Morgunblaðinu bréf. Hér er eitt:

HEIMSMET Á SKAUTUM

0

Á þessum degi 1988 setti Bonnie Blair heimsmet í 500 metra skautahlaupi á 39,10 sekúndum. Hún fær óskalagið Skating On Thin Ice:

GAF KONUNNI BÚRKU Í STAÐ BLÓMA Á KONUDAGINN

0
Óskar Magnússon
Óskar Magnússon

Óskar Magnússon lögfræðingur, bóndi, rithöfundur og stjórnarformaður Eimskips er í ferðalagi umhverfis jörðina ásamt eiginkonu sinni og kemur víða við. Svo kom Konudagurinn:

„Ég ætlaði að kaupa blóm á konudeginum eins og venjulega en gekk illa að finna blómabúð. Alveg sama hvern ég spurði allir vísuðu á sömu keðjuna sem heitir greinilega Ramadan. Ég fann enga búð þótt ég gúgglaði Ramadan near you. Svona er einokunin.
Um síðir áttaði ég mig á því að hér gefa eiginmenn konum ekki blóm heldur svartar slæður sem kallast Gúrkur.
Ég keypti því eina slíka en fékk hana beint í andlitið. Nota hana þá bara til að bóna bílinn.“

JÁTNING ÁRNA

0
JÁTNING
Ég berst víð ofnotkun svefnlyfja
Þótt þau hafi hjálpað mér
á kvíðafullum sjö vikum
Ég trappa mig niður
Og komst í nótt
niður í hálfa töflu
með aðstoð melatonins
Þessi hrútleiðinlega sjálfsagavinna
tekur mikla orku
frá öðrum hugsunum og markmiðum
skemmtilegri og merkilegri
Annað var það ekki…
Árni Bergmann