Home Blog Page 15

KRYDD OG KAVÍAR TEKUR VIÐ LISTERÍUELDHÚSI BORGARINNAR Á VITATORGI

0

Famleiðslueldhús borgarinar við Vitatorg verður opnað aftur 2. mars en eldhúsinu var lokað eftir að listería fannst þar í mat við reglubundið eftirlit.

Reykjavikurborg heftur gert samning við fyrirtækið Krydd og Kavíar um framleiðslu allt að 1000 máltíða á dag sem dreift verður í heimahús, félagsmiðstöðvar og þjónustuíbúðir velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Samningurinn gildir í tvo mánuði á meðan unnið er að gerð lengri samnings. Frá 2. mars verður því aftur hægt að kaupa heitan mat í hádeginu á félagsmiðstöðvum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.

ÞORRABLÓT MIÐFLOKKSINS – GESTIR KOMI MEÐ EIGIÐ ÁFENGI

0

Þorrablót Miðflokksins 2026 verður haldið laugardaginn 21. febrúar kl. 19:00 í Þróttaraheimilinu í Laugardalnum. Húsið opnar kl. 19.00 – Borðhald hefst kl. 19:30



Veislustjóri: Björn Ingi Hrafnsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Ari Edwald ávarpa gesti
Fjöldasöngur, minni karla og kvenna, Hljómsveit Jakobs og félaga,
plötusnúður “DJ” til loka skemmtunarinnar
Í hlaðborðinu verður hefðbundinn þorramatur þmt. saltkjöt og hangikjöt.



Gestir komi sjálfir með sína drykki. Ekki verða seldir drykkir á staðnum. Borðhaldi og skemmtun lýkur kl. 00.30

ÁSTA KEYPTI VITLAUSA TEGUND

0

 

Ásta Jónsdóttir auglýsir á Brask og brall:

Keypti vitlausa tegund,

þetta er ligth.

Einhver sem hefur áhuga á kartoni

fyrir 8000kr

SIDNEY POITIER

0

Fæðingardagur leikarans Sidney Poitier (1927-2022) sem varð fyrstur svartra til að hljóta Óskarsverðlaunin 1964. Hann var góður í To Sir, with Love og ekki var titillagið verra hjá Lulu:

RÓSAKAFFI FAGNAR NÝJUM FORNLEIFAFRÆÐINGI

0
„Þar sem dóttir okkar, Margrét Ólafía Nielsen, útskrifast á morgun sem fornleifafræðingur, gerum við okkur glaðan dag og lokum því kl 13,“ segir í tilkyningu frá Rósakaffi.
Rósakaffi er kaffihús og veitingastaður í hjarta Hveragerðis. Heimilismatur í hádeginu alla virka daga og kaffihlaðborð á sunnudögum.

BOÐ Í LAXVEIÐI HRYNJA

0
Borist hefur póstur:
Matráðskona í einni vinsælustu laxveiðiá vestanlands segir að pantanir í veiði hafa hrunið meðal stórfyrirtækja hérlendis fyrir komandi sumar. Jafnframt hafa afboðanir í þegar pantaða daga hrunið meðal íslenskra viðskiptavina. Hér er um að ræða fyrirtæki með mikið af erlendum viðskiptavinum á borð við auglýsingastofur, Eimskip, Samskip og fleiri.
Það eina jákvæða í stöðunni er að beinar pantanir erlendra veiðimanna að utan virðast vera á sama róli og í fyrra.

HANNES HÓLMSTEINN (73)

0

Hinn eini sanni Hannes Hólmsteinn er afmælisbarn dagsins (73) og er léttur á því:

„Við Andrew, fyrrverandi Bretaprins, eigum báðir afmæli í dag, en vonandi handtaka þeir mig ekki líka.“

Eitt af upp´haldslögum afmælisbarnsins er The Girl Fram Ipanema – gerið svo vel:

 

GÍSLI GÍSLA MEÐ DANAKÓNGI Í NUUK

0

Gísli Gislason lögræðingur, fyrrum pizzukóngur og rafbílakóngur er staddur í höfuðstað Grænlands, Nuuk.

Gísli er vanur að vera þar sem hlutirnir gerast og lét sig ekki muna um að heilsa upp á Kristján tíunda Danakonung sem einmitt er í Grænlandsheimsókn til að stappa stáli í þegna sína á óvissutímum sem nú eru.

Fór vel á með Gísla og Firiðriki tíunda.

MINIONS SLÓ Í GEGN

0

Minions sló í gegn á Skólavörðustíg í morgun – á öskudegi.

STJÓRNVÖLD FYRIRSKIPA BANKAGRÓÐANN

0
„Reiði gætir vegna hagnaðar bankanna,“ segir Ragnar Önundarson sem sjálfur er fyrrverandi bakastjóri í Iðnaðarbankanum meðan hann var og hét og veit því hvað hann syngur:
_
„Við þurfum að skilja að stjórnvöld “fyrirskipa” þeim gróðann. Tilgangurinn er að láta viðskiptavini þeirra bera áhættuna, með því að borga há gjöld og byggja þannig upp eiginfjárstöðu skv. reglum…
…Þá komum við að alvarlegri þversögn hins kapítalíska hagkerfis: Hluthafarnir öðlast eignarrétt að verðmætum sem aðrir en þeir hafa borgað fyrir. Þetta er öðru vísi en venjuleg álagning og gróði, af því að stjórnvöld fyrirskipa gróðann og honum er ætlað að þekja áhættuna af viðskiptum þess sem borgar álagninguna. Hluthafarnir fá samt gróðann, án þess að þeir hafi borið áhættuna…
…Hagnaður banka er nú kerfisbundinn, háður háum eiginfjárkröfum í fákeppni. Rétt viðbrögð væru að taka þann hluta hagnaðarins sem er umfram ávöxtunarkröfu markaðarins (“rentuna” svonefndu) af þeim og endurgreiða viðskiptavinum, ekki hluthöfum.“