Yoko Ono, ekkja Lennon, er afmælisbarn dagsins (93). Hún ber aldurinn vel, fjöllistakonan frá Tókýó sem endaði í Bítlunum.
HR. NING OG SOYASÓSAN
Hr. Ning, eins og hann er kallaður á samnefndum veitingastöðum, kom til Íslands frá Filipseyjum á sjöunda áratugnum en þá höfðu Íslendingar aldrei heyrt um soyasósu eins og Hr. Ning orðaði það í viðtali. Nú vita allir hvað soya er. Hr. Ning stofnaði svo Nings á Suðurlandsbraut 1991.
Árið 1998 opnaði Nings annan veitingastað í Hlíðasmára 12 í Kópavogi. Þriðji staðurinn var opnaður við Stórhöfða 17 árið 2004.
Hr. Ning stendur enn vaktina.
VILTU VERNDA GAMAL HÚS? – STYRKIR Í BOÐI
-
Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
-
Tímaáætlun.
-
Kostnaðaráætlun (með sundurliðun ef um er að ræða marga þætti).
-
Ljósmynd af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmynd ef hún er til.
Frekari upplýsingar eru veittar af Húsverndarstofu sem er með opinn símatíma á miðvikudögum klukkan 15-17 í síma 411 6333.
EINFÆTTA BALLERÍNAN
Inga Bjarnason leikstjóri er að ljúka við bók sem væntanlega verður smellur í næsta jólabókaflóði. Bókin heitir Einfætta ballerínan og vísar titillinn í æskudraum hennar um að verða ballerína. Draumurinn rættist þar til annar fóturinn gaf sig og þá var það búið:
„Það dansar engin ballet á einum fæti,“ segir Inga sem sneri sér þá að leikstjórn með góðum árangri og varð virkur þátttakandi í íslensku menningarlífi þar sem hún þekkir hvern kima, átökin, flokkadrættina og leyndarmálin sem legið hafa í þagnargildi.
„Ýmsir eiga líklega eftir að snúa sér við í gröfinni og afkomendur reita kannski hár sitt en um þetta allt er sagan mín. Ætli ég verði ekki að flytja úr landi,“ segir Inga sem er ekkja eftir Leif Þórarinsson tónskáld.
Bókin kemur út hjá Benedikt bókaútgáfu og ristjóri hennar er Þorvaldur Kristinsson sem fer nú yfir handritið og slípar til.
SPESSI SJÖTUGUR
Spessi ljósmyndari er sjötugur í dag. Síungur snillingur og fær óskalagið Kodachrome:
VILLTA VESTRIÐ
LINDA TIL SÁLARRANNSÓKNARFÉLAGSINS
„Ég hef alltaf verið næm frá barnæsku en það hefur opnast meira fyrir næmnina með aldrinum,“ segir Linda Björk Thorberg sem komin er til starfa hjá Sálarrannsóknarfélaginu:
„Ég vinn með læknum að handan sem aðstoða og vinna í gegnum mig. Stundum koma þeir með skilaboð og eða leiðbeiningar um hvað betur megi fara hjá einstaklingnum. Ég hef verið í andlegum málum til fjölda ára og hef farið á mörg námskeið sem hafa verið á vegum Sálarrannsóknarfélags Íslands. Ég hef einnig sótt námskeið hjá Arthur Findley Spiritual collage í Bretlandi. Ég stunda læknamiðlun, miðlun að handan og nota tarotspil. Einnig hef ég reynslu af skyggnilýsingu. Ég vinn í ljósinu og kærleikanum og óska alltaf eftir því að fólk sem kemur til mín sé með opinn huga.“
Tímabókanir í síma 551-8130
GISSUR PÁLL (49)
Stórsöngvarinn Gissur Páll Gissurarson er afmælisbarn dagsins (49). Rödd hans nær til fólks líkt og rödd föður hans, fréttamannsins Gissurs Sigurðssonar, gerði á öldum ljósvakans með einstæðum hætti. Hér er afmælisbarnið með Fóstbræðrum – Hraustir menn:
BAKARÍ Í MIÐBÆNUM SEM OPNAR KLUKKAN 07:00

Ferðamenn furða sig á því að ekki sé hægt að komast í morgunkaffi og bakkelsi í miðbænum fyrr en klukkan hálfátta á morgnana. Sandholt á Laugavegi, Bernhöft á Skúlagötu og Kafffélagið á Skólavörðustíg opna klukkan hálfátta en Mokka ekki fyrr en níu.
Nýja bakaríið á Klapparstíg, 280 Bakarí, opnar klukkan sjö. Út um opnnar dyr streymir hiti og angan og viðskiptavinir láta ekki á sér standa.
280?
„Það er hitinn sem við bökum á,“ segir bakarinn á bolludegi.
PÁLL ÓSKAR MEÐ BARNAKÓR OG STUÐMÖNNUM Á ÁSTARTÓNLEIKUM Í LAUGARNESKIRKJU
Valentínusadeginum var fagnað glæsilega í Laugarneskirkju þar sem stórstjarnan Páll Óskar kom fram með barnakór kirkjunnar undir stjórn Þórunnar Grétu Sigurðardóttur sem er eiginkona sóknarprestsins, séra Davíðs Þórs Jónssonar.
Ekki minna var lagt í hljómsveitina sem lék undir. Stuðmennirnir Þórður Árnason á gítar og Ásgeir Óskarsson á trommur auk Einars Sigurðssonar á bassa, Hjörleifs Valssonar á fiðlu og Elísabetar Þórðardóttur á píanó en hún er organisti Laugarneskirkju og dóttir Þórðar gítarleikara sem sá einnig um útsetningar.
–
Yfirskrift tónleikanna var Allskonar ást og efnisskráin eftir því:
–
Orðin ein / Lag og texti: Bragi Valdimar Skúlason
Aba Daba brúðkaupsferð / Lag: Walther Donovan – Texti: Hinrik Bjarnason
Snati og kisa / Lag: Jóhann Helgason – Texti: Höfundur ókunnur
Sofðu unga ástin mín / Lag: Íslenskt þjóðlag – Texti:Jóhann Sigurjónsson
Myndin hennar Lísu / Lag og texti: Olga Guðrún Árnadóttir
I have a dream / Lag og texti: Abba
Thank you for the music / Lag og texti: Abba
Þú komst við hjartað í mér / Lag: Toggi & Sveinbjörn Bjarki – Texti: Páll Óskar
Eitt af blómunum / Lag og texti: Páll Óskar & Benni Hemm Hemm
Gordjöss / Lag og texti: Bragi Valdimar Skúlason
Sjáumst aftur / Lag: Orlando di Lasso – Texti Pál Óskar
–
Troðfullt var í kirkjunni og fagnaðarlæti þvílík að undir tók í Laugarnesinu.

