RÓSAKAFFI FAGNAR NÝJUM FORNLEIFAFRÆÐINGI
BOÐ Í LAXVEIÐI HRYNJA
HANNES HÓLMSTEINN (73)
Hinn eini sanni Hannes Hólmsteinn er afmælisbarn dagsins (73) og er léttur á því:
„Við Andrew, fyrrverandi Bretaprins, eigum báðir afmæli í dag, en vonandi handtaka þeir mig ekki líka.“
Eitt af upp´haldslögum afmælisbarnsins er The Girl Fram Ipanema – gerið svo vel:
GÍSLI GÍSLA MEÐ DANAKÓNGI Í NUUK
Gísli Gislason lögræðingur, fyrrum pizzukóngur og rafbílakóngur er staddur í höfuðstað Grænlands, Nuuk.
Gísli er vanur að vera þar sem hlutirnir gerast og lét sig ekki muna um að heilsa upp á Kristján tíunda Danakonung sem einmitt er í Grænlandsheimsókn til að stappa stáli í þegna sína á óvissutímum sem nú eru.
Fór vel á með Gísla og Firiðriki tíunda.
STJÓRNVÖLD FYRIRSKIPA BANKAGRÓÐANN
YOKO ONO (93)
Yoko Ono, ekkja Lennon, er afmælisbarn dagsins (93). Hún ber aldurinn vel, fjöllistakonan frá Tókýó sem endaði í Bítlunum.
HR. NING OG SOYASÓSAN
Hr. Ning, eins og hann er kallaður á samnefndum veitingastöðum, kom til Íslands frá Filipseyjum á sjöunda áratugnum en þá höfðu Íslendingar aldrei heyrt um soyasósu eins og Hr. Ning orðaði það í viðtali. Nú vita allir hvað soya er. Hr. Ning stofnaði svo Nings á Suðurlandsbraut 1991.
Árið 1998 opnaði Nings annan veitingastað í Hlíðasmára 12 í Kópavogi. Þriðji staðurinn var opnaður við Stórhöfða 17 árið 2004.
Hr. Ning stendur enn vaktina.
VILTU VERNDA GAMAL HÚS? – STYRKIR Í BOÐI
-
Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
-
Tímaáætlun.
-
Kostnaðaráætlun (með sundurliðun ef um er að ræða marga þætti).
-
Ljósmynd af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmynd ef hún er til.
Frekari upplýsingar eru veittar af Húsverndarstofu sem er með opinn símatíma á miðvikudögum klukkan 15-17 í síma 411 6333.
EINFÆTTA BALLERÍNAN
Inga Bjarnason leikstjóri er að ljúka við bók sem væntanlega verður smellur í næsta jólabókaflóði. Bókin heitir Einfætta ballerínan og vísar titillinn í æskudraum hennar um að verða ballerína. Draumurinn rættist þar til annar fóturinn gaf sig og þá var það búið:
„Það dansar engin ballet á einum fæti,“ segir Inga sem sneri sér þá að leikstjórn með góðum árangri og varð virkur þátttakandi í íslensku menningarlífi þar sem hún þekkir hvern kima, átökin, flokkadrættina og leyndarmálin sem legið hafa í þagnargildi.
„Ýmsir eiga líklega eftir að snúa sér við í gröfinni og afkomendur reita kannski hár sitt en um þetta allt er sagan mín. Ætli ég verði ekki að flytja úr landi,“ segir Inga sem er ekkja eftir Leif Þórarinsson tónskáld.
Bókin kemur út hjá Benedikt bókaútgáfu og ristjóri hennar er Þorvaldur Kristinsson sem fer nú yfir handritið og slípar til.

