Minions sló í gegn á Skólavörðustíg í morgun – á öskudegi.
STJÓRNVÖLD FYRIRSKIPA BANKAGRÓÐANN
YOKO ONO (93)
Yoko Ono, ekkja Lennon, er afmælisbarn dagsins (93). Hún ber aldurinn vel, fjöllistakonan frá Tókýó sem endaði í Bítlunum.
HR. NING OG SOYASÓSAN
Hr. Ning, eins og hann er kallaður á samnefndum veitingastöðum, kom til Íslands frá Filipseyjum á sjöunda áratugnum en þá höfðu Íslendingar aldrei heyrt um soyasósu eins og Hr. Ning orðaði það í viðtali. Nú vita allir hvað soya er. Hr. Ning stofnaði svo Nings á Suðurlandsbraut 1991.
Árið 1998 opnaði Nings annan veitingastað í Hlíðasmára 12 í Kópavogi. Þriðji staðurinn var opnaður við Stórhöfða 17 árið 2004.
Hr. Ning stendur enn vaktina.
VILTU VERNDA GAMAL HÚS? – STYRKIR Í BOÐI
-
Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
-
Tímaáætlun.
-
Kostnaðaráætlun (með sundurliðun ef um er að ræða marga þætti).
-
Ljósmynd af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmynd ef hún er til.
Frekari upplýsingar eru veittar af Húsverndarstofu sem er með opinn símatíma á miðvikudögum klukkan 15-17 í síma 411 6333.
EINFÆTTA BALLERÍNAN
Inga Bjarnason leikstjóri er að ljúka við bók sem væntanlega verður smellur í næsta jólabókaflóði. Bókin heitir Einfætta ballerínan og vísar titillinn í æskudraum hennar um að verða ballerína. Draumurinn rættist þar til annar fóturinn gaf sig og þá var það búið:
„Það dansar engin ballet á einum fæti,“ segir Inga sem sneri sér þá að leikstjórn með góðum árangri og varð virkur þátttakandi í íslensku menningarlífi þar sem hún þekkir hvern kima, átökin, flokkadrættina og leyndarmálin sem legið hafa í þagnargildi.
„Ýmsir eiga líklega eftir að snúa sér við í gröfinni og afkomendur reita kannski hár sitt en um þetta allt er sagan mín. Ætli ég verði ekki að flytja úr landi,“ segir Inga sem er ekkja eftir Leif Þórarinsson tónskáld.
Bókin kemur út hjá Benedikt bókaútgáfu og ristjóri hennar er Þorvaldur Kristinsson sem fer nú yfir handritið og slípar til.
SPESSI SJÖTUGUR
Spessi ljósmyndari er sjötugur í dag. Síungur snillingur og fær óskalagið Kodachrome:
VILLTA VESTRIÐ
LINDA TIL SÁLARRANNSÓKNARFÉLAGSINS
„Ég hef alltaf verið næm frá barnæsku en það hefur opnast meira fyrir næmnina með aldrinum,“ segir Linda Björk Thorberg sem komin er til starfa hjá Sálarrannsóknarfélaginu:
„Ég vinn með læknum að handan sem aðstoða og vinna í gegnum mig. Stundum koma þeir með skilaboð og eða leiðbeiningar um hvað betur megi fara hjá einstaklingnum. Ég hef verið í andlegum málum til fjölda ára og hef farið á mörg námskeið sem hafa verið á vegum Sálarrannsóknarfélags Íslands. Ég hef einnig sótt námskeið hjá Arthur Findley Spiritual collage í Bretlandi. Ég stunda læknamiðlun, miðlun að handan og nota tarotspil. Einnig hef ég reynslu af skyggnilýsingu. Ég vinn í ljósinu og kærleikanum og óska alltaf eftir því að fólk sem kemur til mín sé með opinn huga.“
Tímabókanir í síma 551-8130
GISSUR PÁLL (49)
Stórsöngvarinn Gissur Páll Gissurarson er afmælisbarn dagsins (49). Rödd hans nær til fólks líkt og rödd föður hans, fréttamannsins Gissurs Sigurðssonar, gerði á öldum ljósvakans með einstæðum hætti. Hér er afmælisbarnið með Fóstbræðrum – Hraustir menn:


