Home Blog Page 19

BAKARÍ Í MIÐBÆNUM SEM OPNAR KLUKKAN 07:00

0
Þetta hressir árla dags.

Ferðamenn furða sig á því að ekki sé hægt að komast í morgunkaffi og bakkelsi í miðbænum fyrr en klukkan hálfátta á morgnana. Sandholt á Laugavegi, Bernhöft á Skúlagötu og Kafffélagið á Skólavörðustíg opna klukkan hálfátta en Mokka ekki fyrr en níu.

Nýja bakaríið á Klapparstíg, 280 Bakarí, opnar klukkan sjö. Út um opnnar dyr streymir hiti og angan og viðskiptavinir láta ekki á sér standa.

280?

„Það er hitinn sem við bökum á,“ segir bakarinn á bolludegi.

PÁLL ÓSKAR MEÐ BARNAKÓR OG STUÐMÖNNUM Á ÁSTARTÓNLEIKUM Í LAUGARNESKIRKJU

0

Valentínusadeginum var fagnað glæsilega í Laugarneskirkju þar sem stórstjarnan Páll Óskar kom fram með barnakór kirkjunnar undir stjórn Þórunnar Grétu Sigurðardóttur sem er eiginkona sóknarprestsins, séra Davíðs Þórs Jónssonar.

Ekki minna var lagt í hljómsveitina sem lék undir. Stuðmennirnir Þórður Árnason á gítar og Ásgeir Óskarsson á trommur auk Einars Sigurðssonar á bassa, Hjörleifs Valssonar á fiðlu og Elísabetar Þórðardóttur á píanó en hún er organisti Laugarneskirkju og dóttir Þórðar gítarleikara sem sá einnig um útsetningar.

Yfirskrift tónleikanna var Allskonar ást og efnisskráin eftir því:

Orðin ein / Lag og texti: Bragi Valdimar Skúlason

Aba Daba brúðkaupsferð / Lag: Walther Donovan – Texti: Hinrik Bjarnason

Snati og kisa / Lag: Jóhann Helgason – Texti: Höfundur ókunnur

Sofðu unga ástin mín / Lag: Íslenskt þjóðlag – Texti:Jóhann Sigurjónsson

Myndin hennar Lísu / Lag og texti: Olga Guðrún Árnadóttir

I have a dream / Lag og texti: Abba

Thank you for the music / Lag og texti: Abba

Þú komst við hjartað í mér / Lag: Toggi & Sveinbjörn Bjarki – Texti: Páll Óskar

Eitt af blómunum / Lag og texti: Páll Óskar & Benni Hemm Hemm

Gordjöss / Lag og texti: Bragi Valdimar Skúlason

Sjáumst aftur / Lag: Orlando di Lasso – Texti Pál Óskar

Troðfullt var í kirkjunni og fagnaðarlæti þvílík að undir tók í Laugarnesinu.

 

LOKUÐU ÁLFAR REYNISFJÖRU?

0
Kristján E. Karlsson.
Kristján E. Karlsson.

„Einu sinni heyrði ég því fleygt að það væru álög á Reynisfjöru – að það væri álfakirkja í stuðlaberginu og álfarnir væru óánægðir með mannmergðina í fjörunni,“ segir Kristján E. Kristjánsson á hönnunarstofunni Kraftaverk að gefnu tilefni:

„Álögin felast í því að sjórinn tekur eina manneskju á ári – eða þar til hætt verður að klifra í stuðlaberginu. Ekki sel ég þetta dýrara en ég keypti það – en einhverju sinni þegar ég var í Reynisfjöru, þóttist ég sjá það sem mér fannst vera prestur koma út úr klettunum eða á milli þeirra. Ég greip símann, náði einni mynd áður en hann hvarf fram fyrir klettana. Ég flýtti mér á eftir honum en hann var horfinn þegar ég komst þangað. Ég spurðist fyrir um hvort einhver hefði séð prest í fjörunni en enginn kannaðist við neitt.

Uppfært: Nú hafa álfarnir gert gott betur og lokað fjörunni.

A WORLD WITHOUT LOVE

0

Nú eru 62 ár síðan söngparið Peter & Gordon sendu frá sér lagið A World Without Love eftir Paul McCartney – Lennon-McCartney voru þó skrifaðir fyrir því.

AFMÆLISBARN Í FORMANNSSLAG Í FRAMSÓKN

0

Ingibjörg Isaksen er er 49 ára í dag, sama dag og flokksþing Framóknarflokksins hefst á Hilton hótelinu í Reykjavík. Á þinginu tekst afmælisbarnið á við Lilju Dögg Alfreðsdóttur í formannsslag.

Dagskrá þingsins í dag endar með hátíðarkvöldverði á Hilton í kvöld þannig að eiginmaður Ingibjargar, Sigurjón Karel Rafnsson sölustjóri, þarf ekki að bjóða henni út að borða á afmælisdaginn. Formannskosningin fer svo fram í hádeginu á morgun.

Ingibjörg Isaksen hefur verið þingmaður norðausturkjördæmis fra 2021 og þingflokksformaður Framsóknar jafnlengi. Ingbjörg er íþróttafræðingur að mennt og hefur starfað sem kennari auk þess sem hún var framkvæmdastjóri Læknastofu Akureyrar í þrjú ár áður en hún var kjörin á þing.

FALSMYND FRÁ FÆREYJUM

0

Þessi mynd af krörfuboltavelli inn í kletti í Færeyjum hefur flogið víða líkt og fiskisagan. En ekki er allt sem sýnist.

Hafþór Bragason er frá Færeyjum og gerir athugasemdir við þetta. Segist aldrei hafa heyrt af þessu, ekki einu sinni, enda myndi engum manni detti í hug að byggja körfuboltavöll á þessum stað þó ekki væri nema vegna hættu af grjóthruni að ofan.

Landar hans taka undir þetta og segjast vera orðnir þreyttir á gervigreindarmyndum frá Færeyjum.

GUNNI GLER YFIRGEFUR LAUGAVEGINN EFTIR 52 ÁR

0

Kaflaskil verða á Laugavegi 24 um mánaðarmótin þegar Gunnar Guðjónsson sjóntækjafræðingur lokar verslun sinni, Profil Optik, eftir 52 ára rekstur í götunni.

„Mér tókst að selja húsnæðið og svo geng ég út um mánaðarmótin og tel mig hafa gert nóg. Nú ætla ég að njóta lífsins,“ segir Gunnar, kallaður Gunni gler, en undanfarin ár hefur sonur hans séð um reksturinn að mestu:

„En hann er ekki sjóntækjafræðingur svo þetta getur ekki haldið áfram í ættinni,“ segir Gunni gler ánægður með lífsstarfið og gengur sáttur út á Laugaveginn þar sem hjarta hans hefur slegið svo lengi.

ÓÐINN SVAN HÆTTIR Á RÚV

0

Snarpasti fréttamaður Ríkissjónvarpsins í háa herrans tíð, Óðin Svan Óðinsson, hefur ákveðið að yfirgefa stofnunina og segir:

„Eftir tæp sjö ár hjá RÚV er nú komið að því að loka þeim kafla. Ég verð RÚV ævinlega þakklátur fyrir tækifærin og þau fjölmörgu verkefni sem mér hefur verið treyst fyrir. Ég hef unnið með frábæru fólki, eignast góða vini og hitt fólk um allt land sem hefur treyst mér fyrir sínum sögum.Næsti kafli verður opnaður fljótlega og hann verður pottþétt álíka skemmtilegur og þessi.“

KIM NOVAK (93)

0

Kim Novak, þekktust fyrir hlutverk sitt í Hitchcock myndinni Vertigo, er afmælisbarn dagsins (93). Tvöfaldur Golden Globe vinningshafi og hér syngur hún lag við eigin texta í myndbandi frá 1960, á upphafsdögum videósins.

PAVLOVA – FRÆGASTA TERTA Í HEIMI

0
Albert og Pavlova.
Albert og Pavlova.

„Anna Pavlova fæddist á þessum degi 1881. Trúlega væri nafn hennar á fárra vörum ef ekki hefði verið útbúin eftirréttaterta, sem kennd var við hana,“ segir Albert Eiríksson sælkeri á heimasíðu sinni, Albert eldar, og heldur svo áfram:

„Hún varð príma ballerína í Rússneska ballettinum og sú fyrsta til að fara í dansferðalög um heiminn til að sýna listir sínar. Á þriðja áratug 20. aldar fór hún til Ástralíu og Nýja-Sjálands. Trúlega væri nafn hennar á fárra vörum ef ekki hefði verið útbúin eftirréttarterta, sem kennd var við hana, í ferðinni. Ástralir og Nýsjálendingar rífast líklega til enda veraldar um hvor þjóðin á heiðurinn, enda vildu allir Pavlovu kveðið hafa.

Tertan vakti mikla lukku og hefur æ síðan verið ein frægasta terta heims, enda er hún afskaplega ljúffeng. Alloft er einfalt það besta og Pavlova er sérlega einföld og auðveld. Í grunninn samanstendur hún af marensbotni, þeyttum rjóma og ávöxtum. Til er fjöldinn allur af uppskriftum, en yfirleitt finnst mér alltof mikið af sykri í þeim. Það er aldrei notalegt þegar munnurinn verður loðinn af sykri. Ég prófaði mig því áfram og niðurstaðan varð þessi.

Gott er að baka að kvöldi, setja rjómann á að morgni (svo að marensinn blotni) og ávextina rétt áður en á að bera tertuna fram.“