Home Blog Page 20

PAVLOVA – FRÆGASTA TERTA Í HEIMI

0
Albert og Pavlova.
Albert og Pavlova.

„Anna Pavlova fæddist á þessum degi 1881. Trúlega væri nafn hennar á fárra vörum ef ekki hefði verið útbúin eftirréttaterta, sem kennd var við hana,“ segir Albert Eiríksson sælkeri á heimasíðu sinni, Albert eldar, og heldur svo áfram:

„Hún varð príma ballerína í Rússneska ballettinum og sú fyrsta til að fara í dansferðalög um heiminn til að sýna listir sínar. Á þriðja áratug 20. aldar fór hún til Ástralíu og Nýja-Sjálands. Trúlega væri nafn hennar á fárra vörum ef ekki hefði verið útbúin eftirréttarterta, sem kennd var við hana, í ferðinni. Ástralir og Nýsjálendingar rífast líklega til enda veraldar um hvor þjóðin á heiðurinn, enda vildu allir Pavlovu kveðið hafa.

Tertan vakti mikla lukku og hefur æ síðan verið ein frægasta terta heims, enda er hún afskaplega ljúffeng. Alloft er einfalt það besta og Pavlova er sérlega einföld og auðveld. Í grunninn samanstendur hún af marensbotni, þeyttum rjóma og ávöxtum. Til er fjöldinn allur af uppskriftum, en yfirleitt finnst mér alltof mikið af sykri í þeim. Það er aldrei notalegt þegar munnurinn verður loðinn af sykri. Ég prófaði mig því áfram og niðurstaðan varð þessi.

Gott er að baka að kvöldi, setja rjómann á að morgni (svo að marensinn blotni) og ávextina rétt áður en á að bera tertuna fram.“

CHARLES DARWIN (1809-1882)

0

Fæðingardagur Charles Darwin (1809-1882), náttúrufræðingsins sem hristi upp í heimsbyggðinni með bók sinni „On the Origin of Species“ – Uppruni tegundanna. Að allar lífverur ættu sér sama upphafspunkt og þannigt væri maðurinn kominn af öpum osfrv. Þar af leiddi að þeir hæfustu lifðu af – og er það enn í góðu gildi. Darwin fær óskalag með The Monkees:

KEBAB SJÁLFSALI Í KÓPAVOGI

0

Viking Kebab veitingastaðurinn í Engihjalla 8 í Kópavogi lokar á skikkanlegum tíma á kvöldin en þá byrjar ballið fyrir utan því þar er kebab sjálfsali í gangi alla nóttina. Bara ýta á taka og þá kemur rjúkandi heitt kebab á augabragði út úr veggnum.

ÁSTARGANGA Í KIRKJUGARÐI Á VALENTÍNUSARDAGINN

0

Kirkjugarðar Reykjavíkur efna til Valentínusargöngu í Hólavallagarði á laugardaginn í tilefni dagsins – Valntínusardagsins.

Þar verða sagðar ástarsögur sem gerst hafa í garðinum, rætt um höfunda ástarsagna og ástarsögur af hinum látnu sem þarna hvíla. Einn þeirra orðaði það sem svo: Ég er dáin úr ást.

Áætlaður tími frá 10:30-12:00. Hámarksfjöldi 45 manns.

EDISON OG LJÓSAPERAN

0

Fæðingadagur Thomas Edison (1847-1931), eins mesti uppfinningamanns allra tíma. Maðurinn sem lagði grunninn að þeim rafræna heimi sem við lifum í núna. Fann upp plötuspilarann, kvikmyndavélina og ljósaperuna svo fátt eitt sé nefnt. Eddison var svo mikilviRkur að hann átti rúmlega þúsund einkaleyfi þegar hann lést. Hann fær óskalag með Electric Light Orchestra:

BJÓ TIL GÚMMÍSKÓ Í 40 ÁR

0

Það var á Bergþórugötunni þar sem einu sinni var lítill skóvinnustofa og þar bjó hann Ólafur Benediktsson til gúmmískó í 40 ár. Hann talaði við Þjóðviljan föstudaginn 12 ágúst 1988 og sagði honum frá því að hann væri nú komin á tíræðisaldur og hann væri hættur störfum.

IN THE MOOD

0

Á þessum degi fyrir 86 árum kom hljómsveitarstjórinn og blásarinn Glenn Miller laginu In The Mood í fyrsta sæti bandaríska vinsælalistans – 1940.

FJÖRFISKURINN Í FLOKKAFLÓRUNNI

0

„Það er alltaf gaman að Miðflokknum því þar á bæ leika menn óvæntu leikjunum, hann er fjörfiskurinn í flokkaflórunni, þar rísa hinir föllnu, blindir fá sýn, lamaðir taka sæng sína og sorgmæddir gleðjast,“ segir Baldur Hermannsson landsþekktur samfélagsrýnir um áratugaskeið og bætir við:

„Ari Edwald hefur marga Reynisfjöruna sopið og hann verður góður borgarstjóri.“

CAROLE KING (84)

0

Draumadrottning hippanna í reykfylltum kommúnum, Carole King, er afmælisbarn dagsins (84).

ÞJÓNUSTUVER GARÐABÆJAR Í GÁMUM

0

Þjónustuveri Garðabæjar hefur verið komið fyrir í gámum á aðltorgi bæjarins vegna lagfæringa á húsnæði. Starfsfólkið segir að kalt sé að vinna í gámunum.

Klukkan á aðaltorginu gnæfir yfir gámunum  sem hýsa þjónustuverið.
Klukkan á aðaltorginu gnæfir yfir gámunum sem hýsa þjónustuverið.