Home Blog Page 21

FJÖRFISKURINN Í FLOKKAFLÓRUNNI

0

„Það er alltaf gaman að Miðflokknum því þar á bæ leika menn óvæntu leikjunum, hann er fjörfiskurinn í flokkaflórunni, þar rísa hinir föllnu, blindir fá sýn, lamaðir taka sæng sína og sorgmæddir gleðjast,“ segir Baldur Hermannsson landsþekktur samfélagsrýnir um áratugaskeið og bætir við:

„Ari Edwald hefur marga Reynisfjöruna sopið og hann verður góður borgarstjóri.“

CAROLE KING (84)

0

Draumadrottning hippanna í reykfylltum kommúnum, Carole King, er afmælisbarn dagsins (84).

ÞJÓNUSTUVER GARÐABÆJAR Í GÁMUM

0

Þjónustuveri Garðabæjar hefur verið komið fyrir í gámum á aðltorgi bæjarins vegna lagfæringa á húsnæði. Starfsfólkið segir að kalt sé að vinna í gámunum.

Klukkan á aðaltorginu gnæfir yfir gámunum  sem hýsa þjónustuverið.
Klukkan á aðaltorginu gnæfir yfir gámunum sem hýsa þjónustuverið.

SAFNAR HUNDATEPPUM EFTIR AÐ HAFA VERIÐ VÍSAÐ ÚT AF KAFFI VEST

0
Hilmar Þór.

„Slíkur var glæpurinn að ég þurfti að vekja Tinna, þamba bjórinn og yfirgefa staðinn – með skottið á milli lappanna. Hef bara aldrei verið beðinn um að yfirgefa kaffihús, bara eftir einn bjór,“ segir Hilmar Þór Norðfjörð ljósmydari sem var vísað út af Kaffi Vest á Hofsvallagötu fyrir að vera ekki með teppi fyrir hundinn sinn sem svaf vært við hlið hans.

Kaffi Vest er með teppareglur fyrir hundaeigendur og þeim skal fylgt. Því hefur Hilmar Þór hafið teppasöfnun fyrir hunda og ætlar að færa Kaffi Vest svo þetta þurfi ekki að endurtaka sig. Gengur söfnunin vel.

JAMES DEAN (95)

0

Goðsögnin James Dean (1931-1955) hefði orðið 95 ára í dag. Kvikmyndaferill hans spannaði aðeins fimm ár en hann lést af slysförum langt fyrir aldur fram. Þekktustu myndir hans eru East of Eden, Rebel Without a Cause og Giant. James Dean var táknmynd og fyrirmynd ungra töffara um allan heim – og er jafnvel enn.

MIKAEL TORFASON SNÝR AFTUR MEÐ DIMMALIMM Í BÍÓ PARADÍS Í NÆSTU VIKU

0

Mikael Torfason rithöfundur, fyrrverandi ristjóri DV, Séð og heyrt, Fréttablaðsins ofl. hefur verið búsettur í Bandaríkjunum undanfarin ár og fengist við kvikmyndaskrif. Segir í viðtölum að hann komi aldrei aftur til Íslands. En nú snýr hann aftur í næstu viku í Bíó Paradís þegar hann fumýnir kvikmyndina Dimmalimm (Returning To Lulu) þar sem eiginkona hans, Stefanía Berndsen, fer með aðahlutverki:

Dimmalimm er lauslega byggð á leikritinu Medeu eftir Euripides. Hinn forni harmleikur byggði á mýtunni um Jason og Medeu og fór fyrst á svið árið 431 fyrir Krist. Þetta er klassísk saga og þemað á enn full erindi. Medea er útlendingur sem svikin er af manni sínum Jason með þeim afleiðingum að hún missir vitið.

Í Dimmalim er Medea íslensk 35 ára gömul kona sem kemur heim af geðsjúkrahúsi og lokar sig inni íbúð í Vínarborg. Þetta er dramatísk myndum íslenska konu að glíma við geðveiki í erlendri borg.

Leikstjóri myndarinnar er Mikael Torfason en hann skrifaði jafnframt handritið og sá um kvikmyndatöku því myndin var tekin í svokölluðu “lockdown” í Vínarborg. Mikael og kona hans, Stefanía Berndsen sem fer einmitt með aðalhlutverk Dimmalimm, voru svo mánuðum skiptir lokuð inni íbúð með dætrum sínum í Vín. Dæturnar, Ísold og Ída Berndsen, fara einnig með hlutverk í myndinni.

OPIÐ MYNDSKEYTI TIL BORGARSTJÓRA

0

Í London eru frábærar almenningssamgöngur. Lestar ofanjarðar og neðanjarðar, metro strætóar, og rútur. Samt sem áður er gert ráð fyrir að hver fjölskylda fái bílastæði sem leyst er með t.d. eftirfarandi hætti: Ekkert bílastæðagjald fyrir íbúa – sjá mynd.

FRIÐRIK LÆTUR CARRICK HEYRA ÞAÐ – „LOKSINS, FOKKING LOKSINS“

0
„Loksins, fökking loksins, hefur maður ánægju af að sjá leiki með Manchester United eftir langt hlé,“ segir Friðrik Indriðason blaðamaður eftir leik dagsins þegar United lagði Tottenham 2-0 í hádeginu:
Liði sem ég hef haldið með síðan ég sá George Best spila með þeim. Það var í einum af þessum vikugömlu leikjum í ensku deildinni sem RUV bauð upp á undir lok sjöunda áratugarins á síðustu öld. Gott ef ekki síðdegis á laugardögum.
Takk Michael Carrick og takk fyrir að láta „starfsmennina á plani“ bara sjá um dæmið. Ekki stjórna þeim of mikið, það hefur skilað fjórum sigrum í fjórum leikjum. Sko þarna eru bæði City og Arsenal…já og Tottenham.
En ef þú klúðrar þessu Carrick er mér að mæta. Síðasta haust lagði ég visky flösku að veði (12 ára) um að ManU myndi ná evrópusæti í ár. Ég er byrjaður að reikna með þessari flösku inn í heimilisbókhaldið.“

CHARLES DICKENS (1812-1870)

0

Fæðingardagur Charles Dickens (1812-1870). Hann varð aðeins 58 ára sem þótti eðlilegt í Englandi á hans tíð en nú er öldin önnur. Dickens var rithöfundur, blaðamaður og samfélagsrýnir sem náði feykivinsældum í lifanda lífi með verkum sínum. Mögnuð athyglisgáfa, skopskyn og ritsnilld fleyttu honum í hæstu hæðir vinsælda meðal almennings – sannkölluð stjarna á Viktoríutímanum í heimalandinu og reyndar um allan heim. Þarf ekki að segja annað en „Oliver Twist“ og allir skilja.

TOMMI Í LONDON

0

Nóg að gera á Búllunni hjá Tomma í London. Tilboð aldarinnar slær í gegn.