
„Slíkur var glæpurinn að ég þurfti að vekja Tinna, þamba bjórinn og yfirgefa staðinn – með skottið á milli lappanna. Hef bara aldrei verið beðinn um að yfirgefa kaffihús, bara eftir einn bjór,“ segir Hilmar Þór Norðfjörð ljósmydari sem var vísað út af Kaffi Vest á Hofsvallagötu fyrir að vera ekki með teppi fyrir hundinn sinn sem svaf vært við hlið hans.




