Home Blog Page 22

ARNA SIGGA Í GALLERÍ GÖNG

0

Arna Sigga Sæmundsdóttir er blómaskreytir og myndlistarkona og opnar í dag sýningu á verkum sínum í Gallerí Göng í Háteigskirkju. Hún hefur málað myndir í um 9 ár og áður haldið sýningar á verkum sínum. Myndlist Örnu sækir innblástur í gróður, blóm og náttúruna enda hefur hún í störfum sínum unnið með blóm og jurtir um áratugaskeið. Arna Sigga ólst upp við Ægisíðuna, elst fjögurra systkina en býr nú við rætur Úlfarsfells og útsýnið frá vinnustofunni er fjallahringurinn við Reykjavík.

MARY DANADROTTNING (54)

0

Mary Elizabeth Donaldson drottning Danmerkur er afmælisbarn dagsins (54). Hún er frá Ástralíu en fangaði hjarta Friðriks krónprins sem nú er Friðrik X Danakóngur. Danska þjóðin elskar hana og dáir eins og allar sínar drottningar og hún fær óskalag með öðru óskabarni Dana, Kim Larsen – This Is My Life:

 

NÝSTÁRLEG LEIÐ TIL AÐ LÆRA ÍSLENSKU

0

Nýlega kom út bókin „Handan dalanna“ eftir Kristínu Guðmundsdóttur, en hún er skrifuð til að hjálpa fólki af erlendum uppruna að ná betri tökum á íslensku máli á hagnýtan hátt. Bókin inniheldur 12 stuttar, sjálfstæðar og skemmtilegar sögur sem eru skrifaðar á skýrri og einfaldri íslensku.

Kristín segir: „Það sem gerir bókina einstaka er að hún var mótuð með hjálp fólks frá mörgum löndum sem þekkir af eigin raun hvað reynist erfiðast í náminu. Í bókinni er lögð áhersla á hversdagsleg orðasambönd og málshætti sem Íslendingar nota dags daglega – allt útskýrt með ítarlegum tilvísunum sem gerir námið auðveldara og markvissara. Auk þess prýða bókina teikningar sem glæða sögurnar lífi og hjálpa lesendum að muna nýjan orðaforða.“

MÓÐIRIN YFIRGAF HEIMILIÐ OG FÓR Í „ÁSTANDIГ – VARAÞINGMAÐUR SAFNAR FYRIR ÆVISÖGU Á KAROLINA FUND

0

Elín Fanndal fyrsti varaþingmaður Flokks fólksins í Suðurkjördæmi safnar fyrir óútkominni ævisögu sinni á Karolina Fund og gengur bærilega. Hefur náð 3.500 evra markinu sem hún setti sér, komin upp í tæplega 5.000 evrur og enn tími til stefnu.

Elín er 62 ára og býr ásamt eiginmanni sínum í Þorlákshöfn. Hún greinir frá erfiðum uppvexti í skýringartexta á Karolina Fund, uppvexti sem tæpast á sér hliðstæðu:

„Höfundur elst ásamt tveimur systkinum sínum upp í litlu sjávarþorpi, hjá föður sem berst í bökkum við að sjá fjölskyldunni farborða. Þegar hún er tveggja ára gömul, systir hennar fimm ára og yngsti bróðir þeirra eins árs yfirgefur móðirin heimilið og fer í hið svokallaða „ástand“… Faðir þeirra getur aldrei fyrirgefið eiginkonu sinni og hatar hana í raun til dauðadags. Þó hafði hjónaband þeirra verið mjög stormasamt og ofbeldisfullt á köflum.

Elín vitnar í orð föður síns:

„Ég gat fyrirgefið henni framhjáhaldið, við vorum hvorug neinir englar hvað það varðar. En hún hélt fram hjá mér með hermanni og það mun ég aldrei geta fyrirgefið!” Þessi setning kristallar í raun sýn hans á tilveruna. Hann var góður maður, stoltur en skapmikill og alls ekki allra. Einstrengisháttur hans tvíelfdist við erfið veikindi sem að lokum drógu hann til dauða.“

ALICE COOPER (78)

0

Alice Cooper fæddist í Detroit USA 1948 og er því 78 ára í dag. Stundum kallaður „The Godfather of Shock Rock“. Hann spilar golf í frístundum og hljómplötusala hans stendur nú í 50 milljónum. Hér er hann með „Welcome to My Nightmare“:

MAGGA TIL SÖLU – 800.000.-

0
Hrossaræktarbúið Íbishóll í Skagafirði auglýsir til sölu:
Magga frà Högnastöðum er 14 vetra og frábært reiðhross, mjög viljug, gangrúm og taumlétt. Er strangheiðarleg og traust og alveg gammdugleg. Virkilega skemmtilegt hross og ofboðslega gaman að vera á henni. Hún kýs helst að tölta og er alltaf klukkuhrein. Er 139 cm. Verð 800.000.-

EDRÚVIKAN AÐ BRESTA Á

0
Krýsuvíkursamtökin standa að fjáröflun dagana 5.–12. febrúar. Fjáröflunin ber heitið Edrúvikan undir slagorðinu „Drekkum minna – gefum meira“.
Fólk er hvatt til að sleppa áfengi í eina viku og gefa andvirðið til stuðnings starfinu í Krýsuvík. Hér eru dæmi:

DÍANA A FRÍMERKI

0

Á þesum degi, 3. febrúar 1998, voru frímerki í minningu Díönu prinsessu útgefin í Bretlandi.

HÆGRIBYLGJAN Í HLAÐVÖRPUM

0

Gunar Smári Egilsson samfélagsrýnir segir mestu hægibylgjuna vera í hægri hlaðvörpum á Íslandi og hún sé því meiri sem umsjónarmenn verða fyllri, á fimmta glasi hafa þeir sigrað heiminn.

LOFTSLAGSBREYTING Í BANKASTRÆTI

0

Þessa mynd tók Gunnar V. Andrésson ljósmyndari neðst í Bankastræti í janúar fyrir 32 árum. Þá þótti þessi veðrátta sjálfsögð miðað við árstíma en nú er öldin önnur – eins og vor sé í lofti dag eftir dag.

GVA - þannig merkti hann myndir sínar.
GVA – þannig merkti hann myndir sínar.

Gunnar V. Andrésson hélt einmitt upp á 76 ára afmæli sitt í gær og hefur breyst miklu minna en veðrið á þessum 32 árum.