Nýlega kom út bókin „Handan dalanna“ eftir Kristínu Guðmundsdóttur, en hún er skrifuð til að hjálpa fólki af erlendum uppruna að ná betri tökum á íslensku máli á hagnýtan hátt. Bókin inniheldur 12 stuttar, sjálfstæðar og skemmtilegar sögur sem eru skrifaðar á skýrri og einfaldri íslensku.
Kristín segir: „Það sem gerir bókina einstaka er að hún var mótuð með hjálp fólks frá mörgum löndum sem þekkir af eigin raun hvað reynist erfiðast í náminu. Í bókinni er lögð áhersla á hversdagsleg orðasambönd og málshætti sem Íslendingar nota dags daglega – allt útskýrt með ítarlegum tilvísunum sem gerir námið auðveldara og markvissara. Auk þess prýða bókina teikningar sem glæða sögurnar lífi og hjálpa lesendum að muna nýjan orðaforða.“




