HomeGreinarMÓÐIRIN YFIRGAF HEIMILIÐ OG FÓR Í "ÁSTANDIÐ" - VARAÞINGMAÐUR SAFNAR FYRIR ÆVISÖGU...

MÓÐIRIN YFIRGAF HEIMILIÐ OG FÓR Í „ÁSTANDIГ – VARAÞINGMAÐUR SAFNAR FYRIR ÆVISÖGU Á KAROLINA FUND

Elín Fanndal fyrsti varaþingmaður Flokks fólksins í Suðurkjördæmi safnar fyrir óútkominni ævisögu sinni á Karolina Fund og gengur bærilega. Hefur náð 3.500 evra markinu sem hún setti sér, komin upp í tæplega 5.000 evrur og enn tími til stefnu.

Elín er 62 ára og býr ásamt eiginmanni sínum í Þorlákshöfn. Hún greinir frá erfiðum uppvexti í skýringartexta á Karolina Fund, uppvexti sem tæpast á sér hliðstæðu:

„Höfundur elst ásamt tveimur systkinum sínum upp í litlu sjávarþorpi, hjá föður sem berst í bökkum við að sjá fjölskyldunni farborða. Þegar hún er tveggja ára gömul, systir hennar fimm ára og yngsti bróðir þeirra eins árs yfirgefur móðirin heimilið og fer í hið svokallaða „ástand“… Faðir þeirra getur aldrei fyrirgefið eiginkonu sinni og hatar hana í raun til dauðadags. Þó hafði hjónaband þeirra verið mjög stormasamt og ofbeldisfullt á köflum.

Elín vitnar í orð föður síns:

„Ég gat fyrirgefið henni framhjáhaldið, við vorum hvorug neinir englar hvað það varðar. En hún hélt fram hjá mér með hermanni og það mun ég aldrei geta fyrirgefið!” Þessi setning kristallar í raun sýn hans á tilveruna. Hann var góður maður, stoltur en skapmikill og alls ekki allra. Einstrengisháttur hans tvíelfdist við erfið veikindi sem að lokum drógu hann til dauða.“

TENGDAR FRÉTTIR

MOHAMMED BÍÐUR EFTIR BROTTVÍSUN OG MÁ EKKI VINNA – EN HANN MÁ KJÓSA!

Mohammed Alkurd innflytjandi frá Gaza bíður eftir brottvísun frá Íslandi, má ekki vinna á meðan en svo barst honum tilkynning frá Þjóðskrá og Landskjörstjórn...

ÖLDUNGAR STJÓRNA BANDARÍKJUNUM

"Öldungar af öllum kynjum eru orðin hin stjórnandi stétt í Bandaríkjunum og virðast ekki gera sér grein fyrir því hve sjúkt slíkt ástand er,"...

LISTAVERK SEM FACEBOOKFÆRSLA

Margrét Jónsdóttir listmálari á þetta verk sem reyndar var aðeins ætlað sem færsla á samfélagsmiðli. Og segir ekki orð um það meir. Enda segir...

NÍNA SLÆR Í GEGN

Frumraun Nínu Ólafsdóttur, Þú sem ert á jörðu, hefur vakið óvenju mikla athygli frá útgáfu. Bókin kom út í september 2025 og seldist fyrsta upplag...

VINDMYLLUR Á TENE

"Tók þessar myndir á Tenerife í dag, út um skítugan glugga á rútu, vindmyllur allsráðandi í landslaginu," segir Sævar Proppe sem staddur er á...

KRAKKARNIR KUNNA HELDUR EKKI AÐ REIKNA

"Hér erum við á árinu 1977," Ingólfur Gíslason stærðfræðiprófessor og birtir blaðaúrklippu að gefnu tilefni: "Ég ætti kannski að taka fram að rétta ályktunin er...

TÍSKUSKÓLI ANDREU

Andrea Oddsteinsdóttir starfrækti Tískuskóla Andreu um árabil og skrifaði í blöðin um mannasiði og annað. Árið 1964 birtist þessi grein í Tímanum. - Tökum sem dæmi...

SAMFYLKING TALAR ENSKU

Vesturbæingur sendir skeyti: - Inn um lúguna kom bæklingur frá Samfylkingunni. Powerful Welfare - Proud Reykjavík. Að vísu allir á dyrabjöllunum með íslensk nöfn, en kannski...

HÓLMUM FJÖLGAÐ Í REYKJAVÍKURTJÖRN

Til stendur að fjölga hólmunum í Reykjavíkurtjörn sem lið í aðgerðaráætlun sem ber heitið Náttúrulega Reykjavík og borgarráð hefur samþykkt. Með fjölgun hólmanna í Tjörninni...

AUGLÝSINGABANN Í AMSTERDAM

Amsterdam innleiddi bann við auglýsingum fyrir kjötvörur og jarðefnaeldsneyti frá og með 1. maí 2026 og varð þar með fyrsta höfuðborg í heiminum til...

LOGI PEDRO Í ÁSMUNDARSAL

Þann 7. maí opnar einkasýning hönnuðarins Logi Pedro undir heitinu Heimur í Ásmundarsal á Skólavörðuholti. Sýningin myndar stórskala innsetningu þar sem yfir tuttugu hlutir;...

MINNINGARGREIN UM DEKKJAVERKSTÆÐI

"Núna finnst mér eins og ég sé að skrifa minningargrein," segir Jórunn Sjöfn Guðlaugsdóttir ljósmyndari og vesturbæingur og hér er ástæðan: - "Fór með bílinn minn...

Sagt er...

"Ég starfaði á auglýsingadeild RUV fyrir mörgum árum," segir Jakob Smári Magnússon bassaleikari í tilefni gærdagsins: "Einn daginn er ég að taka lyftuna upp í...

Lag dagsins

Bono í U2 er afmælisbarn dagsins (66). 20 Grammyverðlaun komin í hús - takk fyrir! https://www.youtube.com/watch?v=ujNeHIo7oTE