Arna Sigga Sæmundsdóttir er blómaskreytir og myndlistarkona og opnar í dag sýningu á verkum sínum í Gallerí Göng í Háteigskirkju. Hún hefur málað myndir í um 9 ár og áður haldið sýningar á verkum sínum. Myndlist Örnu sækir innblástur í gróður, blóm og náttúruna enda hefur hún í störfum sínum unnið með blóm og jurtir um áratugaskeið. Arna Sigga ólst upp við Ægisíðuna, elst fjögurra systkina en býr nú við rætur Úlfarsfells og útsýnið frá vinnustofunni er fjallahringurinn við Reykjavík.




