Margrét Marteinsdóttir hefur verið ráðin til Dýraverndarsambands Íslands (DÍS) sem fulltrúi. Margrét er systir Péturs Marteinssonar oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík.
–
Margrét hefur víðtæka reynslu af fjölmiðlum. Hún starfaði á RÚV í 16 ár, sem varafréttastjóri sjónvarps- og útvarps og sem dagskrárstjóri Rásar 1 og Rásar 2. Hún var um tíma yfirmaður íþróttadeildar RÚV og stýrði dægurmáladeild fréttastofunnar þar sem hún hafði yfirumsjón með fimm útvarpsþáttum: Hádegisútvarpinu, Morgun- og Síðdegisútvarpinu, Speglinum og Vikulokunum.
–
Undanfarin ár hefur Margrét starfað sem rannsóknarblaðamaður á Stundinni og Heimildinni og hefur þar m.a. fjallað um dýravelferðar- og umhverfismál. Hún hlaut blaðamannaverðlaun árið 2019 ásamt þremur blaðamönnum fyrir umfjöllun ársins um loftslagsbreytingar og árið 2023 fyrir viðtal ársins við Gyrði Elíasson skáld.
–
Starfsemi Dýraverndarsambandsins sem málsvari dýra hefur vaxið mjög á undanförnum árum og mikill styrkur að fá Margréti til liðs við félagið.




