Home Blog Page 23

MELANIA UM BORÐ

0

Þannig var ástandið í flugferðinni þegar farþegum varð ljós að eina bíómyndin í boði um borð var Melania – myndin um forsetafrú Bandaríkjanna.

GRAHAM NASH (84)

0

Popptenórinn úr The Hollies og Crosby, Stills og Nash, er 84 ára í dag. Graham Nash hóf ferilinn með þessu: Bus Stop:

SÆT SAMAN

0

Hjónin Pétur Marteinsson og Unnur Anna Valdimarsdóttir. Pétur nýorðinn leiðtogi Samfylkingarinnar í Reykjavík og Unnur er prófessor í lýðheilsuvísindum í Háskóla Íslands.

JUSTIN TIMBERLAKE (45)

0

Fjöllistamaðurinn, söngvarinn, leikarinn og Íslandsvinur eitt sinn, Justin Timberlake, er afmælisbarn dagsins (45). Ungur fékk hann viðurnefnið „Prince of Pop“.

TARA OPNAR GALLERÍ Á NJÁLSGÖTU

0

Listakonan Tara Njála Ingvarsdóttir og félagar hennar eru að koma upp galleríi og sýningarrými á Njálsgötu í Reykjavík. Tara er orðin velþekkt í íslensku menningarlífi eins og hún á kyn til; dóttir Ingvars Þórðarsonar kvikmyndaframleiðanda og bandarísku listakonunnar Tristan Gribbin.

 

VETRARHÁTÍÐ Í NÆSTU VIKU

0

Vetrarhátíð í Reykjavík verður sett fimmtudaginn 5. febrúar 2026. Hátíðinni er ætlað að lífga upp á borgarlífið og allir viðburðir tengjast ljósi og myrkri með einum eða öðrum hætti. Ríflega 150 viðburðir eru í boði og frítt inn.

Opnunarverk hátíðarinnar er verkið Synergy  2.0 eftir listhópinn Mercury Maze Studio, sem samanstendur af Owen Hindley, Katerinu Blahutova og Þorsteini Eyfjörð og verður frumsýnt við setninguna. Verkið er gagnvirkt vídjó, ljós- og hljóðverk sem varpað verður á Hnitbjörg, bygginguna sem hýsir safn Einars Jónssonar. Í þessu marglaga verki geta áhorfendur rannsakað arkitektúr byggingarinnar og hljóðvist umhverfisins í gegnum umbreytingu efnis og anda.  Verkið verður til sýnis í garðinum alla daga Vetrarhátíðar frá kl. 18.30 – 22.30. .

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjórinn í Reykjavík mun setja hátíðina ásamt því að Logi Einarsson, menningar- nýsköpunar og háskólaráðherra mun segja nokkur orð í tilefni af því að Listasafn Einars Jónssonar og Listasafn Íslands hafa nú sameinast.

MEIRI KURTEISI Á AKUREYRI

0

Sundlaugargestur á Akureyri sendir póst:

Var að lesa frásögn konu af því að það að heilsa í sundi væri að leggjast af. Ég get bara talað fyrir kallaklefann í sundlauginni á Akureyri og þar er regla frekar en undantekning að þeir fullorðnu bjóða góðan daginn.

AUSTURSTRÆTI STÚTFULLT AF BÍLUM 1962

0

Bíll við bíl og stöðumæla í hjarta borgarinnar fyrir 64 árum, örtröð fólks á gangstéttum og velklæddur lögregluþjónn spjallar við borgara. Nú sést þar varla bíll, gangstéttar greiðfærar og ómur útlensku liggur í loftinu.

PHIL COLLINS (75)

0

Goðsögn heillar kynslóðar ef ekki tveggja, Phil Collins, er afmælisbarn dagsins (75). Sló í gegn sem trommari og aðalsöngvari Genesis og fór síðan sóló til móts við heiminn með góðum árangri. Hann hefur því miður verið sjúklingur hin síðari ár eftir slys sem olli mænuskaða.

GLÆPAGENGI Í KRÓNUNNI Á HALLVEIGARSTÍG – LÖGREGLAN ÞURFTI SEX KÖRFUR TIL AÐ AKA ÞÝFINU AFTUR INN Í BÚÐ

0

Fimm manna hópur, þrjár velklæddar konur og tveir karlmenn, voru handtekin við bíl á bílastæði við Krónuna á Hallveigarstíg um miðjan dag þar sem hópurinn var að stafla matvöru í skott á bíl fyrir utan.

Grunsemdir starfmanna urðu til þess að neyðarbjöllu, sem beintengd er við lögreglu og öryggisverði Krónunnar, var hringt og var brugðist skjótt við enda starfsmönnum ekki leyft að grípa til eigin ráða við slíkar aðstæður.

Í ljós kom að konurnr þrjár voru vel búnar dýrum kápum með trefla í stíl og inn á sig höfðu þær hlaðið matvælum í sérsaumaða vasa að nægði til að fylla skottið á bílnum.

Sjónarvottar segja að lögregla og öryggisverðir hafi þurft sex innkaupakerrur til að aka þýfinu aftur inn í búðina.