Morgunblaðið birtir skýringamynd í dag með frétt um hækkandi bjórverð undir fyrirsögninni: „Bjórinn bæði minni og dýrari í dag“.
FÓLK ER HÆTT AÐ HEILSA Í SUNDI
Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir myndlistarkona og bústýra í Fljótshlíð fer stundum í sund og eitt finnst henni skrýtið:
„Það heilsar enginn fullorðinn í klefanum að fyrra bragði og þegar ég segi glaðbrosandi góðan daginn þá er varla litið við og bara muldrað eitthvað ofan í bringuna. Er þetta eitthvað sem er komið í tísku núna innan um fólk? Reyndar er þetta svipað á biðstofum.“
OPRAH (72)
Sjónvarpsstjarnan Oprah Winfrey er 72 ára í dag. Engum hefur tekist að draga jafn marga að sjónvarpsskjánum frá upphafi. Svo syngur hún líka:
ÍSLAND SIGRAÐI DANI 1979 – FAÐIR GUÐNA FORSETA AÐSTOÐARÞJÁLFARI LIÐSINS
„Fyrsti sigur okkar Íslendinga á móti Dönum í handbolta karla á heimavelli þeirra kom í janúar 1979. Við mættum þeim þá í Randers, „handboldens lykkeby“ eins og heimamenn kölluðu borgina,“ segir Guðni Th. Jóhannesson fyrrum forseti Íslands en faðir hans var þá aðstoðarþjálfari íslenska liðsins:
„Sigurinn var sætur, 18-15. Mér er þetta mjög minnisstætt því að pabbi, Jóhannes Sæmundsson, var þá aðstoðarmaður Jóhanns Inga Gunnarssonar landsliðsþjálfara. Eftir því var einnig tekið að í 3500 manna höll voru 35 Íslendingar og yfirgnæfðu þeir einatt dönsku áhorfendurna. Það er allt hægt, áfram Ísland!“
SAGAN MÁ ALDREI ENDURTAKA SIG
FEKK EINKALEYFI Á LJÓSAPERUNNI 1880
Á þessum degi 1880 fékk Thomas Edison einkaleyfi á ljósaperunni sem hann hafði fundið upp rétt rúmlega þrítugur. Ljós hennar skín enn og Electric Light Orchestra heldur upp á daginn:
DANIR DEILA ÚT MILLJÖRÐUM TIL ALMENNINGS VEGNA VERÐHÆKKANA Á MATVÆLUM
Matarverð hefur rokið upp hér á landi og alþýðu svíður undan. Líka í Danmörku en þar hafa stjórnvöld ákveðið að styrkja borgarana með beinhörðum peningum til að mæta hækkununum – 50 þúsund (ísl.kr.) beingreiðsla á haus.
30 ÁRA GÖMUL FYRIRSÖGN LÍTUR DAGSINS LJÓS
„Við sem vorum í Höllinni á HM 1995 vitum að Svisslendingar eru sýnd veiði en ekki gefin. Þá var allt lagt kapp á að stöðva tröllið Baumgartner en í staðinn skoraði einhver Rohr níu mörk,“ segir Pétur Már Ólafsson bókaútgefandi sem geymdi þessa blaðaúrklippu í rúm 30 ár og birtir nú í tilefni dagsins.
ELSTA KONA PÓLLANDS KVEÐUR 113 ÁRA
„Elsta kona Póllands lést í gær. Jadwiga Żak-Stewart. Var fædd 1912, í Varsjá meðan borgin var undir rússneskum yfirráðum,“ segir Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar í minningarorðum um samlöndu sína:
„Hún bjó reyndar lengi í Indianapolis en flutti „heim“ þegar hún var hundrað ára. Það er dálítið magnað að enn sé meðal okkar fólk sem fæddist fyrir fyrri heimsstyrjöndina. Elsti núlifandi Pólverjinn í dag er þannig fædd í Austurísk-Ungverska keisaradæminu.“
ELVIS #1 – 1961
Á þessum degi 1961 tyllti Elvis Presley sér í fyrsta sætið á bandaríska vinsældalistanum með Are You Lonesome Tonight?


