HomeGreinarPAVLOVA - FRÆGASTA TERTA Í HEIMI

PAVLOVA – FRÆGASTA TERTA Í HEIMI

Albert og Pavlova.
Albert og Pavlova.

„Anna Pavlova fæddist á þessum degi 1881. Trúlega væri nafn hennar á fárra vörum ef ekki hefði verið útbúin eftirréttaterta, sem kennd var við hana,“ segir Albert Eiríksson sælkeri á heimasíðu sinni, Albert eldar, og heldur svo áfram:

„Hún varð príma ballerína í Rússneska ballettinum og sú fyrsta til að fara í dansferðalög um heiminn til að sýna listir sínar. Á þriðja áratug 20. aldar fór hún til Ástralíu og Nýja-Sjálands. Trúlega væri nafn hennar á fárra vörum ef ekki hefði verið útbúin eftirréttarterta, sem kennd var við hana, í ferðinni. Ástralir og Nýsjálendingar rífast líklega til enda veraldar um hvor þjóðin á heiðurinn, enda vildu allir Pavlovu kveðið hafa.

Tertan vakti mikla lukku og hefur æ síðan verið ein frægasta terta heims, enda er hún afskaplega ljúffeng. Alloft er einfalt það besta og Pavlova er sérlega einföld og auðveld. Í grunninn samanstendur hún af marensbotni, þeyttum rjóma og ávöxtum. Til er fjöldinn allur af uppskriftum, en yfirleitt finnst mér alltof mikið af sykri í þeim. Það er aldrei notalegt þegar munnurinn verður loðinn af sykri. Ég prófaði mig því áfram og niðurstaðan varð þessi.

Gott er að baka að kvöldi, setja rjómann á að morgni (svo að marensinn blotni) og ávextina rétt áður en á að bera tertuna fram.“

Previous article
Next article
TENGDAR FRÉTTIR

FEÐGAR HOFÐU Á HARRY POTTER Í SJÓNVARPINU – SONURINN VISSI EKKI AÐ PABBI HANS HEFÐI LEIKIÐ HARRY POTTER

Daniel Ratcliffe, sem lék Harry Potter í í samnefndum kvikmyndum, horfir á Harry Potter með syni sínum sem hefur ekki hugmynd um að hann...

BERGÞÓRA GLÍMIR VIÐ SEÐLA-GEIRA

Hagbarður í Hokri sendir póst: - Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur Íslandsbanka er ekki við sama heygarðshornið og stórbóndinn Seðla-Geiri í Svörtuloftum (sjá hér.) Bergþóra er samt greinilega...

JURTAKOKTEILAR Í GRASAGARÐINUM

Slow Food á Íslandi býður ykkur í BragðaGarð, skemmtilega og fræðandi Slow Food hátíð sem haldin verður í Grasagarði Reykjavíkur föstudaginn 9. október kl....

ÚKRAÍNSKAR HELGIMYNDIR TIL ÍSLANDS – Í SKJÓLI HÉR ÞAR TIL STRÍÐINU LÝKUR

Listasafn Íslands opnar 17. október sýninguna Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás, þar sem sýndar verða 32 fágætar helgimyndir úr safneign Listasafns...

RÁÐHERRANN RÆKTAR EPLI – AÐSTOÐARKONAN GÚRKUR

Logi Einarsson menningarmálaráðherra ræktaði epli í sumar og uppskeran komin í hús - þrjú epli. Ráðherrann hefur ákveðið að börnin hans tvö fái sitthvort...

FRIÐARVIKA Í REYKJAVÍK

Á þessu ári eru liðin 40 ár frá hinum sögulega leiðtogafundi í Reykjavík árið 1986, þar sem Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Míkhaíl Gorbachev,...

SKORA Á SÆLAND AÐ VÍGGIRÐA HLJÓMSKÁLAGARÐ

Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg: - Það þarf girða fyrir að börn og táningar séu að ráfa inn í Hljómskálagarð. Skora á  Sæland að setja rammgerða víggirðingu og...

VOPNABRÆÐUR AKA Á KJÖRSTAÐ

Gamla skopmyndin sýnir Kjartan Gunnarsson, fyrrum framkvæmdastjóra Sjalfstæðisflokksins, og vopnabróður hans, Hannes Hólmstein, akandi á kjörstað í Stúdentaráðskosningum í Háskólanum þegar þeir stunduðu þar...

ÞJÓFÓTTUR KÖTTUR Í VESTURBÆNUM

"Ég vil afsaka það innilega ef að hann Dreki minn hefur stolið af þér sokk sem að hann finnur í þvottahúsum í hverfinu og...

KYNJARUGL Á MEISTARAVÖLLUM

Það var glæsileg umgjörðin á Meistaravöllum þegar KR-stelpurnar tóku á móti HK-stelpunum í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil B liða. Leikurinn fór 2-2 og tapaðist annars vegar...

DORRIT ELSKAR ICELANDAIR

Þjóðargersemin Dorrir Moussaieff flaug með Icelandair og var ánægð með. Fékk að heilsa upp á flugmennina í flugstjórnarklefanum og þakkaði fyrir sig með þessu: "Thank...

SKÚLI MOGENSEN Á LISTAVERK EFTIR HELGA HÓSEASSON

"Skilti/listaverk eftir Helga Hóseasson (1919-2009) frá 12. september 1995 en gæti allt eins verið dagsett í dag," segir athafnaskáldið Skúli Mogensen og heldur áfram: - "Sorglegt...

Sagt er...

"Hversu lengi á að sjóða egg? Það getur munað ótrúlega miklu á einni mínútu." Albert eldar

Lag dagsins

Bandaríski leikarinn, handritshöfundurinn og kvikmyndaframleiðandinn Matt Damon er afmælisbarn morgundagsins (56). Sló fyrst í gegn í kvikmyndinni Good Will Hunting þar sem hann var...