HomeGreinarSEXTUGUR OG SÍUNGUR Á SVIÐINU

SEXTUGUR OG SÍUNGUR Á SVIÐINU

Söngvarinn ástæli, Stefán Hilmarsson, fagnar sextugsafmæli sínu með tónleikum í Hörpu í sumar þar sem hann fleytir rjómann ofan af tónlistarstarfi sínu í 40 ár. Forsala miða hefst eftir helgi.

Sextugur og sætur.
Sextugur og sætur.

Frá fyrstu tíð hefur Stefán látið að sér kveða sem höfundur, einkum textasmiður. Hann er í hópi afkastamestu höfunda landsins síðustu áratugi og hafa á fjórða hundrað verk eftir hann verið hljóðrituð og gefin út. Auk þess að semja fyrir sig og sína, hefur Stefán samið fyrir fjölda þjóðþekktra flytjenda, svo sem Björgvin Halldórsson, Eyjólf Kristjánsson, Sigríði Beinteinsdóttur, Pál Rósinkrans, Bjarna Arason, Stjórnina, Hljóma, Í svörtum fötum, Írafár, Selmu Björnsdóttur, Friðrik Ómar, Margréti Eir og Regínu Ósk, svo einhverjir séu nefndir.

Hann var útnefndur heiðurslistamaður Kópavogs árið 2008 og bæjarlistamaður sama bæjarfélags áratug síðar. Fyrir liðlega áratug rann Stefáni blóðið til skyldunnar,  þegar hann var beðinn að taka sæti  skólanefnd Kvennaskólans og gegndi hann þar formennsku um skeið.

Meðfram tónlistarstörfum hefur Stefán starfað við ýmislegt, m.a. við þýðingar fyrir kvikmyndir og sjónvarp og við grafíska hönnun. Stefán er með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, kvæntur Önnu Björk Birgisdóttur og eiga þau tvo syni, Birgi Stein (f. 1992) og Steingrím Dag (f. 2004). Árið 2023 bættist barnabarn í hópinn, Emanúel Dagur Birgisson.

Previous article
Next article
TENGDAR FRÉTTIR

PÁSKADAGUR Í RÚSSNESKU RÉTTTRÚNAÐARKIRKJUNNI

"Í dag er páskadagur hjá Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni sem ég er meðlimur í," segir Arnar Loftsson og birtir mynd af rússneskum páskamorgunverði sem eiginkona hans,...

STJÖRNUSPEKINGUR UM STÓRSTJÖRNU

Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur birti í kvöld stjörnuspá í tilefni af andláti Björgvins Halldórssonar - sem var og verður alltaf stjarna: - Hrútur, einyrki, skemmtikraftur og gleðigjafi. Beinskeyttur:...

BENSÍNSJOPPAN SEM SPRAKK

Frá Tækniminjasafni Austurlands á Seyðisfirði: - Það hefur gengið á með lægðum, óveðrum, tilheyrandi ófærð og sem betur fer einstaka góðviðrisdögum undanfarnar vikur sem hefur haft...

GAMLIR OG GLÚRNIR FERÐAKÓNGAR

Ferðaskrifstofan Ævintýraferðir Örnólfs hefur skipulagt ferðir og kynnt langt fram á næsta haust. Á bak við Ævintýraferðir stendur Örnólfur Árnason, landsþekktur rithöfundur og lífskúnstner,...

ÁRITUÐ BÓK DAVÍÐS TIL ÓLAFS RAGNARS Á UPPBOÐI

Eintak af bók Davíðs Oddssonar, Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar, er á bókauppboði Foldar. Eintakið er áritað af Davíð til þáverandi forsetahjóna, Ólafs Ragnars...

MÓÐIR JÖRÐ FÓTBROTIN Á LANDSPÍTALA

Verkið Móðir jörð eftir Ásmund Sveinsson, sem er staðsett í gamla anddyri Landspítalans í Fossvogi á annarri hæð, er illa farið. Bæði móðir og...

70 ÞÚSUND HLUSTUÐU Á PATRIK UM PÁSKANA

Nýjasti þáttur hlaðvarpsins Eftirmál, sem fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Yaghi stýra, vakti mikla athygli yfir páskana. Í þættinum er fjallað um morðið á...

VOPNAHLÉ – „RISASPARK Í PUNGINN“

"Jedúddamía. Hópur af geitasmölum í Íran hefur sigrað mesta herveldi sögunnar," segir Friðrik Indriðason, þrautreyndur blaðamaður, í tilefni af fréttum dagsins: - "Það sem Íran fær...

MÚSAGILDRUR GEGN VASAÞJÓFUM

Vasaþjófar herja á erlenda ferðamenn hér á landi og eru til vandræða. Friðrik Brekkan, þrautreyndur leiðsögumaður, er með lausn: "Þessar sterku músagildrur fást í Kemi....

FINNSK PÁSKAEGG

Svona páskaegg er hægt að fá í Finnlandi. Líta út eins og venjuleg egg í eggjabakka frá súkkulaðiframleiðandanum Fazer. Svo er skurnin fjarlægð og...

SNJÓKARLINN Á BEKKNUM

Miðbæjarlistin tekur á sig ýmsar myndir í Reykjavík. Hér situr snjókarl á bekk fyrir framan Drekann, söluturn á Njálsgötu. Líkt og blindfullur um miðjan...

HÁRHORNIÐ HREKST AF HLEMMI VEGNA HÚSALEIGU

Ein vinsælasta og ódýrasta rakarastofa Reykjavíkur, Hárhornið á Hlemmi, flytur sig um set eftir 29 ára á horninu á Hlemmi. Ástæðan er hækkandi húsaleiga...

Sagt er...

Sorphirða í SmáíðúðahverfinU í Reykjavík 1987. Öskukarlar voru sorphirðumenn þá kallaðir. Myndina tók Gunnar V. Andrésson stjörnuljósmyndari í Háagerði þar sem hann bjó sjálfur.

Lag dagsins

Á þessum degi, 12. apríl 1954, hljóðrituðu Bill Haley & His Comets súpersmellinn Rock Around the Clock og heimurinn rokkaði með. https://www.youtube.com/watch?v=ZgdufzXvjqw