HomeGreinarWESSMANN BORGAÐI SJÁLFUR REIKNING "ENGLA ALHEIMSINS" Í GRILLINU

WESSMANN BORGAÐI SJÁLFUR REIKNING „ENGLA ALHEIMSINS“ Í GRILLINU

Í endurminningum Wilhelms Wessmann hótel- og veitingafrömuðar er sagt frá uppákomu í Grillinu á Hótel Sögu sem rataði síðan inn í bókina Englar alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson og samnefnda bíómynd. Atriðið í Grillinu gerðist semsé í raun og veru, en það sem færri vita er að Wilhelm borgaði úr eigin vasa reikninginn fyrir kvöldverðinum dýra.

Í endurminningum sínum, „Lífsins ferðalag“ sem komu út fyrir síðustu jól, segir Wilhelm svo frá uppákomunni:

„Eitt þekktasta atriði íslenskrar kvikmyndasögu er úr kvikmyndinni Englar alheimsins, þrjár af aðalpersónum sögunnar fara í Grillið á Hótel Sögu og fá sér flottan kvöldverð. Þegar þjónninn kemur með reikninginn segir einn þeirra: „Við erum allir vistmenn á Kleppi, verið svo vinsamlegir að hringja á lögregluna strax.“ Atriðið er auðvitað byggt á bók Einars Más Guðmundssonar sem ber sama titil og kvikmyndin. Leiksýning var einnig byggð á bókinni frægu.

Atvikið er enginn skáldskapur heldur byggt á sönnum atburði, nánast frá A til Ö, þegar ég var framkvæmdastjóri á Sögu árið 1986. Mennirnir þrír voru í sínu fínasta pússi þegar þeir komu í Grillið. Í þá daga giltu strangar reglur um klæðaburð. Menn gátu ekki komið inn í Grillið í gallabuxum eða bindislausir. Þeir pöntuðu það dýrasta á matseðlinum og drukku bestu vín hótelsins með, eins og Chateu Mouton Rotschild 1982 sem er einn besti árgangur Bordeaux- vína á síðustu öld. Það er því greinilegt að mennirnir hafa verið smekkmenn á mat og drykk. Vínið kostaði sitt, flaskan var á 26.800 kr þá. Svo reyktu þeir kúbanska vindla frá Davidoff. Þetta voru eiginlega einu Kúbuvindlarnir sem hægt var að fá á þessum tíma. Stykkið kostaði 1.200 kr. Í þá daga var hægt að fá hádegisverð í Grillinu fyrir sömu upphæð.

Til þess að mega selja vindlana þurfti að uppfylla ströng skilyrði. Ég þurfti að senda alla þjónana mína á námskeið í meðhöndlun á vindlunum. Þegar gestir pöntuðu svona vindla þurfti að klippa þá sérstaklega og var það eins konar athöfn sem endaði með því að þjónarnir kveiktu í vindlunum fyrir gestina.

Ég man eins og það hefði gerst í gær þegar Halldór Sigdórsson, veitingastjóri í Grillinu, hafði samband. Hann sagði mér að þarna væru þrír vistmenn á Kleppi sem væru búnir að borða dýrustu réttina, drekka fínustu vínin og reykja flottustu vindlana. Þeir gætu ekki borgað reikninginn og lögreglanv æri í lobbýinu. Hann spurði mig hvað hann ætti að gera í málinu.

Grillið var fullt af gestum og ég bað Halldór því að láta lögregluna bara bíða eftir mönnunum. Ég taldi augljóst hvort sem er að við hefðum tapað þeirri upphæð sem mennirnir höfðu borðað og drukkið fyrir. Mér fannst því mikilvægast að ónáða ekki hina gestina með einhverri uppákomu. Mennirnir fengu því að klára máltíðina og mættu svo lögreglumönnum í anddyrinu. Síðan var þeim bara ekið inn á Klepp í lögreglufylgd eins og fínum herrum.

Ég sagði Halldóri að leggja reikninginn á skrifborðið mitt. Það má því segja að ein besta sena í íslenskri kvikmyndagerð sé orðin til vegna fagmannlegra vinnubragða okkar starfsmanna í Grillinu. En ég greiddi reikninginn.“

TENGDAR FRÉTTIR

ÓSKAR ATKVÆÐAMESTUR Á KIRKJUÞINGI

Óskar Magnússon , rithöfundur, bóndi og stjórnarformaður Eimskips hlaut flest atkvæði î kosningum til kirkjuþings sem lauk í vikunni. Kirkjuþing er alþingi  kirkjunnar, skipað...

ÖRVÆNTINGIN ER ÓTRÚLEGUR MANNASÆTTIR

"Örvæntingin er ótrúlegur mannasættir," segir Hildur Björnsdóttir oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Ástæðan er þessi: - "Það hafa greinilega orðið sögulegar sættir í Samfylkingunni en Kristrún Frostadóttir,...

LITLA RÚV

"Ósköp finnst mér Útvarpsráð gera lítið úr sjálfu sér," segir Ragnar Önundarson samfélagsrýnir og fyrrum bankastjóri: - 1) Ráðið tók utanríkispólitíska ákvörðun um að Ísland yrði...

DATT Í LUKKUPOTTINN Í GÓÐA HIRÐINUM

Fagurkeri sem leit við í Góða hirðinum við Sæbraut í gær datt í lukkupottinn. Rak augun í stól sem minnti mjög á heimsfræga húsgagnahönnu...

ENGLARNIR Á SPÍTALANUM

Í dag, 12. maí, er alþjóðlegur dagur hjúkrunarfræðinga. Þá er vakin sérstök athygli á því ómetanlega starfi sem hjúkrunarfræðingar vinna á hverjum degi við...

BORGARRÁÐ KEMUR ÁRMANNI OG FJÖLNI TIL HJÁLPAR

Aðstöðumál Glímufélagsins Ármanns og Ungmennafélagsins Fjölnis verða tekin til endurskoðunar og hefur borgarráð samþykkt tillögur starfshópa um bætta aðstöðu félaganna til skamms tíma. Þá...

MOHAMMED BÍÐUR EFTIR BROTTVÍSUN OG MÁ EKKI VINNA – EN HANN MÁ KJÓSA!

Mohammed Alkurd innflytjandi frá Gaza bíður eftir brottvísun frá Íslandi, má ekki vinna á meðan en svo barst honum tilkynning frá Þjóðskrá og Landskjörstjórn...

ÖLDUNGAR STJÓRNA BANDARÍKJUNUM

"Öldungar af öllum kynjum eru orðin hin stjórnandi stétt í Bandaríkjunum og virðast ekki gera sér grein fyrir því hve sjúkt slíkt ástand er,"...

LISTAVERK SEM FACEBOOKFÆRSLA

Margrét Jónsdóttir listmálari á þetta verk sem reyndar var aðeins ætlað sem færsla á samfélagsmiðli. Og segir ekki orð um það meir. Enda segir...

NÍNA SLÆR Í GEGN

Frumraun Nínu Ólafsdóttur, Þú sem ert á jörðu, hefur vakið óvenju mikla athygli frá útgáfu. Bókin kom út í september 2025 og seldist fyrsta upplag...

VINDMYLLUR Á TENE

"Tók þessar myndir á Tenerife í dag, út um skítugan glugga á rútu, vindmyllur allsráðandi í landslaginu," segir Sævar Proppe sem staddur er á...

KRAKKARNIR KUNNA HELDUR EKKI AÐ REIKNA

"Hér erum við á árinu 1977," Ingólfur Gíslason stærðfræðiprófessor og birtir blaðaúrklippu að gefnu tilefni: "Ég ætti kannski að taka fram að rétta ályktunin er...

Sagt er...

Reykjavíkurborg óskar eftir ábendingum um hús og lóðir sem verðskulda fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar í ár. Veittar eru viðurkenningar fyrir vandaðar endurbætur á eldri húsum og...

Lag dagsins

Mark Zuckerberg stofnandi Facebook er 42 ára í dag... https://www.youtube.com/watch?v=tY8B0uQpwZs