
„Yngsta friðaða hús landsins er komið i sölu,“ segir Hilmar Þór Björnsson arkitekt, alltaf með puttann á púlsinum:
„Húsið stendur við sjávarsíðuna á lóðinni Litlubæjarvör 4 á Álftarnesi og er af háum arkitektóniskum gæðum. Húsið er hannað af Guðna Pálssyni arkitiekt fyrir hann og fjölskyldu.
Þetta hús þekki ég vel og það er upplifun að vera vitni að síbreytilegu spili ljóss og skugga sem flæða um öll rými hússins. Hús í þessum byggingalistarlega gæðaflokki koma sjaldan í sölu.“
–







