
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri sat í gærkvöldi í strætóskýli og Hverfisgötu og beið eftir vagninum heim. Hafði boðið eiginmanni sínum út að borða í tilefni af 19 ára brúðkaupsafmæli þeirra og þá er bíllinn auðvitað skilinn eftir heima:
„Í dag 19 ágúst eru 19 ár síðan við Hrannar giftum okkur. Bæði stutt og langt síðan en mikið sem það hefur verið gott að ferðast með ástinni í gegnum lífið. Hlakka til framtíðar ævintýra og hversdags. Bauð mínum auðvitað út að borða og heim í lífsins lukku.“







