Fimmtudaginn 21. ágúst kl. 20:00 fer fram kvennasöguganga um miðborg Reykjavíkur á pólsku. Marta Wieczorek, varaþingmaður á Alþingi Íslendinga og aðstoðarskólastjóri Pólska skólans í Reykjavík, sér um gönguna og segir frá sögu kvenna.
Gangan fer fram í tilefni af Kvennaárinu, en í ár eru 110 ár síðan íslenskar konur 40 ára og eldri fengu kosningarétt og máttu bjóða sig fram til Alþingis og 50 ár frá Kvennafrídeginum 24. október 1975.
Gangan hefst við Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagötu 15 og fer fram á pólsku. Gangan tekur um 1 og ½ klukkustund og er ókeypis. Göngurnar fara fram á fimmtudögum yfir sumarmánuðina.






