Sálfræðiráðgjöf háskólanema við Sálfræðideild Háskóla Íslands veitir nemendum og stafsfólki skólans og börnum þeirra ýmiss konar þjónustu og stuðning gegn vægu gjaldi (2.500 kr.) allt skólaárið. Þessa stundina leitar Sálfræðiráðgjöfin að 20 einstaklingum með köngulóafælni og jafnmörgum einstaklingum með félagsfælni til að hefja meðferð sem fyrst.
Meðferðina veita framhaldsnemar í klínískri sálfræði undir handleiðslu reyndra sálfræðinga.







