Home Blog Page 77

HIN RAUNVERULEGA GERVIGREIND

0

Fríða sendir póst:

Mörgum finnst skjóta skökku við að í embætti menntamálaráðherra hafi valist maður sem er lítt skólagenginn. Það vakti mikla athygli þegar Guðmundur Ingi Kristinsson var nýtekinn við embætti að hann ávarpaði alþjóðlega ráðstefnu kennara og staulaðist í gegnum ræðu sem átti að vera á ensku en var óskiljanleg. Margir tóku upp hanskann fyrir ráðherrann og sögðu ljótt að núa honum um nasir að kunna ekki ensku Þá hefur þessi æðsti yfirmaður menntamála sætti gagnrýni fyrir slæma meðferð á móðurmálinu.

Hann hefur verið staðinn að því að segja „ég vill“ og „einkanir“ auk þess sem hann virðist haldinn þágufallssýki, sagði í nýlega útvarpsviðtali ,,mér hlakkar til“. Einhverjir benda á að þágufallssýki sé algeng en aðrir að gera verði þá kröfu til menntamálaráðherra að hann tali að minnsta kosti rétta íslensku þótt hann ráði ekki við erlend tungumál. Þá má líka benda á að menntun og skólaganga fara síður en svo alltaf saman og margt lítt skólagengið alþýðufólk, sér í lagi af eldri kynslóðinni, sé bæði menningarlega sinnað, vel lesið og með afburða tök á íslenskri tungu.

Menntamálaráðherrann virðist kæra sig kollóttan um gagnrýni á málfar sitt. og segist hafa meiri áhyggjur af öðru eins og t.d. að bæta lesskilning drengja. Gott og vel, sagði þekktur iðnmeistari sem hnaut um svar ráðherrans í útvarpsviðtali nýlega við spurningu um hvers vegna samræmd próf hefðu verið aflögð. ,,Ég nenni ekki að gá að því“ svaraði ráðherrann og fannst iðnmeistaranum þetta merki um heimskulegan hroka margra sem komast í valdastól. ,,Hann er táknrænn fyrir hina raunverulegu gervigreind“, sagði iðnmeistarinn.

FRÚ RINGO (78)

0

Leikkonan Barbara Bach, fyrrum Bond stúlka og eiginkona Ringo Starr um áratugaskeið, er 78 ára í dag. Allir elska Ringo og Ringo elskar Barböru – Grow Old With Me:

ÓLI BJÖRN (65)

0

Óli Björn Kárason fyrrum ritstjóri, alþingismaður og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins er afmælisbarn dagins (65). Hann er frá Sauðárkróki og fær þvó óskalag með sveitunga sínum, Geirmundi Valtýssyni:

GULLI HELGA GAF LUKE PERRY OG CINDY CRAWFORD ÍSLENSKT BRENNIVÍN

0

Fjölmiðlamaðurinn, smiðurinn og leikarinn Gulli Helga fagnar 62 ára afmæli sínu í dag. Þegar hann stundaði leiklistarnám í Hollywood umgekkst hann stórstjörnur eins og Luke Perry og Cindy Crawford og færði þeim eitt sinn íslenska brennivínsflösku sem var drukkin á staðnum:

„Skemmtum okkur konunglega,“ sagði hann síðar.

MAGGI EIRÍKS (80)

0

Öll þjóðin getur sungið lög Magnúsar Eiríkssonar blaðlaust og hefur svo verið í áratugi. Magnús er áttræður í dag – til hamingju með daginn!

Um afmælisbarnið segir Wikipedia:

Magnús Eiríksson (f. 25. ágúst1945) er íslenskur tónlistarmaður sem þekktastur er fyrir hljómsveit sína Mannakorn, hljómsveitina Brunaliðið og að hafa samið fyrsta íslenska Eurovision-lagið Gleðibankann. Hann m.a. einnig starfað með KK og gefið út nokkrar plötur með honum.

Magnús hefur einungis gefið út eina sólóplötu, Smámyndir (1982). Hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar, t.d. fálkaorðuna fyrir framlag sitt til tónlistarinnar og heiðurverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna.“

FLOTTUR NÝI SEÐILLINN

0

Heimildin hefur fengið gervigreindina AI til að hanna nýjan peningaseðil sem myndskreytingu við grein um íslenska milljarðamæringa – Tólf manns í milljarðsklúbbnum.

TVEIR Á TOPPNUM

0

„Ljóð eftir Jónatan Hermannsson, eitt helsta skáld okkar daga,“ segir Hallgrímur Helgason, einn helsti rithöfundur okkar daga:

leita að hugsunum
hélt lengi
að hugsanir byggju í bókum
eru þar líklega
en einnig svo margt annað
orðavaðall
marklítil samtöl
ætluð til að fylla síður
seint finnast þær hugsanir
er ég sakna
með hverjum degi
fækkar þeim bókum
sem ég mun geta lesið
bækur leita sinna
var einu sinni sagt
ég bíð þeirra
meðan myrkrið
víkur hægt undan komandi degi
ég bíð eftir bók bóka

„Á hverjum degi hittir þessi öldungur í mark og virðist búa við eilífa heiðríkju. Andinn er stöðugt yfir honum eins og hæð yfir Grænlandi. Og getum við fésvinir hans alltaf treyst því að fá gott og nýort ljóð með morgunkaffinu. Nú spyr ég: Ætlar enginn útgefandi að grípa þessa gullnu gæs og færa okkur Fésbókarljóðin hans Jónatans á prenti?“

LATÍNBÓNDI ÍSLANDS

0
Los Bomboneros, hinir glaðbeittu sendiherrar íslenskrar latíntónlistar, efna til einstakra stórsveitartónleika þann 11. október í Salnum í Kópavogi. Þar stýrir Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir stórsveitarútgáfu hljómsveitarinnar – Los Bombasticos – sem mun flytja margar helstu perlur Tómasar R. Einarssonar en þennan ástsæla lagahöfund og bassaleikara má með sanni kalla Latínbónda Íslands.
Í lögum Tómasar frá meira en 40 ára ferli fléttast saman djass, íslenskur stormur og kúbanskur hiti. Á þessum óvenjulegu tónleikum munu helstu stórsveitarútsetjarar landsins klæða lögin í skæran og litríkan stórsveitarbúning og gestasöngvararnir Mugison og GDRN setja mark sitt á lög Tómasar með seiðmagnaðri nærveru sinni.

ÓLAFUR HAUKUR (78)

0

Ólafur Haukur Símonarson rithöfundur er 78 ára í dag. Hann er líka tónskáld:

 

JAPÖNSK VIRÐING VIÐ ELDRI BORGARA – MADOGIWA-ZOKU

0

Í Japan kalla þeir þetta „madogiwa-zoku“ og er þar átt við starfsfólk sem komið er á aldur en heldur áfram að mæta án þess að hafa nokkrum sérstökum skyldum að gegna, fá skrifborð og tilheyrandi við glugga og eru áfram á launalista fyrirtækisins þar til yfir lýkur.

49% japanskra fyrirtækja hafa þennan háttinn á og vilja með þessu sýna eldri borgurum virðingu og þakklæti fyrir unnin störf í stað þess að þröngva þeim út í starfslok.