BUBBI KLÁR Í AÐVENTUNA
VAN MORRISON (80)
Norður írski tónlistarmaðurinn Van Morrison er áttræður í dag. Stórstjarna frá fyrsta degi og er enn. Brown Eyed Girl er líklega mesti smellur hans:
ÍSLENDINGUR UPPGÖTVAR LÖGMÁLIÐ SEM ÚTSKÝRIR ALLT
„Fátt er meira rætt í dag en pólarísering, en samt veit fólk almennt ekki að pólarnir eru í öllu og allstaðar að störfum, frá atóminu til alheims. Að skilja pólana er að skilja grunneðli raunveruleikans,“ segir Gústaf Jensen og heldur áfram:
„Fólk hefur reynt í árþúsundir að skilja pólana, en það hefur ekki tekist fyllilega. Fyrr en núna, þegar Íslendingur hefur leyst gátuna. Í dag kemur út kver um lögmálið um pólana.
Kverið er gefið út á rafbók (eða rafkveri) og hægt er að hlaða því niður endurgjaldslaust á www.VeraGera.com.
Kverið er skrifað á einföldu máli á að vera aðgengilegt og því er ætlað að vera gagnlegt öllu fólki sem er læst og raunar líka þeim sem eru það ekki. Í versta falli er þetta skemmtileg pæling, í besta falli eru þetta stórtíðindi í hugmyndasögu mannkyns.“
ÓKEYPIS FORDÓMAÞVOTTUR Á AKUREYRI
Þessi þvottavél er til sýnis úti á gangstétt í Listagilinu á Akureyri í tilefni af Akureyrarvöku sem haldin var hátíðleg þar í bænum um helgina.
SKÚRINGAR Á STUNDATÖFLUNNI
Í Japönskum barnaskólum eru nemendur látnir þrífa ganga og stofur í stað ræstitækna. Það er ekki verið að refsa þeim. Þetta er hluti af náminu.
SVÍN Í LAUSAGÖNGU SLÁ Í GEGN Í MÖÐRUDAL
Í Möðrudal á fjöllum ganga svín laus meðal túrista og vekja athygli þar sem þau narta í gras fyrir utan Fjallakaffi en þar eru bakaðir bestu ástarpungar á landinu. Svínin ganga svo langt að elta ferðamennina alveg inn á veitingastaðinn, hrínandi eins og geltandi hundar – en fá ekki aðgang.
Þetta finnst túristunum skemmtilegt.
MICHAEL JACKSON (67)
Michael Jackson (1958-2009) hefði orðið 67 ára í dag. Líf hans endaði með harmrænum hætti í Los Angeles, hann útskúfaður og tröllum gefinn. En sungið gat hann og dansað og þetta er fallegt hvað sem öðru leið og líður – Ben:
AUSTFJARÐARÞOKA EFTIR HITABYLGJU
Eftir langavarandi hitabylgju á Austurlandi skall Austfjarðarþokan á í gærkvöldi á Héraði svo þykk að skera hefði mátt. Eins og í draugamynd.
UPPRISA INGÓ EFTR METOO
„Það hefur satt að segja à aldrei á ferlinum verið jafnmikið að gera hjá mér,“ segir tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, Ingó Veðurguð, sem var harkalega slaufaður í MeToo byltingunni og nánast vísað út í hafsauga:
SÍÐASTI KÆRASTI JACKIE DEYR
Maurice Tempelsman, síðasti kærasti Jacqueline Kennedy Onassis, andaðist 23. ágúst. Hann var 95 ára. Tempelsman var demantakaupmaður og oft nefndur demantakóngurinn, belgískur að uppruna. Fjölskylda hans flúði vestur um haf undan nasistum í síðari heimstyrjöldinni og kom sér vel fyrir í Bandaríkjunum í demantaviðskiptum sem hún hafði lengi stundað í Belgíu.


