Eiginmaður lenti í rifrildi við eiginkonu sína sem endaði með því að konan læsti gleraugunum hans. Þá gafst hann upp.
NÝTT PAR?
Sveinn Andri Sveinsson, landsþekktur lögfræðingur og vinsæll, sást á gangi í Vesturbænum þar sem hann býr með glæsilegri konu sem ljósmyndari bar ekki kennsl á. En hann spurði: „Nýtt par?“

ÁSDÍS RÁN EIGNAST TENGDASON
GLÆPUR OG REFSING

Glæpur og refsing heitir þessi mynd Ara Sigvaldasonar ljósmyndara og kaupmanns á Skólavörðustíg.
MAJ-BRITT LÁTIN

Maj-Britt Imnander er látin níræð að aldri. Hún var forstjóri Norræna hússins frá 1972 til 1976.
RÓBERT MARSHALL AÐSTOÐAR BORGARSTJÓRA
Róbert Marshall hefur tekið við stöðu aðstoðarmanns Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra. Róbert er fyrrverandi alþingismaður og hefur að baki fjölbreyttan feril í stjórnmálum, fjölmiðlum og fjallaleiðsögn.
Róbert var upplýsingafulltrúi rikisstjórnarinnar meginhluta áranna 2020 og 2021 á meðan Covid 19 gekk yfir. Hann starfaði við fjölmiðla um árabil og var aðstoðarmaður samgönguráðherra áður en hann settist á þing árið 2009.
Róbert er fyrrverandi formaður Blaðamannafélags Íslands og fyrrverandi forstöðumaður fréttasviðs 365. Hann stundaði fiskvinnslu, netagerð og sjómennsku í Vestmannaeyjum og er stúdent frá framhaldsskólanum þar.
Á þingi gegndi hann meðal annars þingflokksformennsku, formennsku í allsherjarnefnd, formennsku í Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og sat í umhverfis- og samgöngunefnd, Þingvallanefnd og Norðurlandaráði.
Róbert hefur störf á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara í dag.
KEANU REEVES (61)
Kanadíski leikarinn og tónlistarmaðurinn Keanu Reeves er afmælisbarn dagsins (61). Þekktastur fyrir Matrix myndir sínar en einnig er hann bassaleikari, rithöfundur og athafnamaður.
BUBBI KLÁR Í AÐVENTUNA
VAN MORRISON (80)
Norður írski tónlistarmaðurinn Van Morrison er áttræður í dag. Stórstjarna frá fyrsta degi og er enn. Brown Eyed Girl er líklega mesti smellur hans:
ÍSLENDINGUR UPPGÖTVAR LÖGMÁLIÐ SEM ÚTSKÝRIR ALLT
„Fátt er meira rætt í dag en pólarísering, en samt veit fólk almennt ekki að pólarnir eru í öllu og allstaðar að störfum, frá atóminu til alheims. Að skilja pólana er að skilja grunneðli raunveruleikans,“ segir Gústaf Jensen og heldur áfram:
„Fólk hefur reynt í árþúsundir að skilja pólana, en það hefur ekki tekist fyllilega. Fyrr en núna, þegar Íslendingur hefur leyst gátuna. Í dag kemur út kver um lögmálið um pólana.
Kverið er gefið út á rafbók (eða rafkveri) og hægt er að hlaða því niður endurgjaldslaust á www.VeraGera.com.
Kverið er skrifað á einföldu máli á að vera aðgengilegt og því er ætlað að vera gagnlegt öllu fólki sem er læst og raunar líka þeim sem eru það ekki. Í versta falli er þetta skemmtileg pæling, í besta falli eru þetta stórtíðindi í hugmyndasögu mannkyns.“


