„Ég var svo heppin að fá þennan magnaða tengdason inn í fjölskylduna fyrir nokkrum mánuðum. Hann er sterkur, ákveðinn, með hjarta úr gulli – og sér ótrúlega vel um litlu prinsessuna mín,“ segir ísdrottningin Ásdís Rán um pólska kickboxarann Norbert Szymczyk sem er kærasti dóttur nennar, Victoriu Ránar.
„Mér þykir vænt um að tilkynna að hann hefur nú verið valinn í pólska landsliðið í kickboxi og mun keppa á WTKA Unified World Championships 2025 í Toskana á Ítalíu í október.
Við Victoria verðum auðvitað á staðnum til að styðja hann alla leið.“






