Home Blog Page 74

SLIPPURINN KOMINN UPP Á VEGG Á FORRÉTTABARNUM

0

Verið er að mála skip á leið í slipp á útvegg Forréttabarsins á Nýlendugöntu og kallast myndin vel á við gamla Slippinn sem er handan götunnar og Slippfélagið var til húsa. Þar er nú hótel.

Skemmtileg tilbreyting við graffíti spreyið sem ríður húsum þvers og kruss um miðbæinn

BUDDY HOLLY (89)

0

Buddy Holly (1936-1959) hefði orðið 89 ára í dag en hann lést í flugslysi ásamt hljómsveit sinni The Crickets, í upphafi ferils síns á þrítugsaldri. Fæddist í Texas, byrjaði í kántrý en sneri sér að poppi og rokki eftir að hafa deilt sviði með Elvis Presley – That’ll Be the Day:

PRINSESSAN AF WALES ORÐIN LJÓSHÆRÐ

0

Kate Middleton, prinsessa af Wales og eiginkona Vilhjálms ríkisarfa í Bretlandi, er orðin ljóshærð og hefur nýi háraliturinn vakið heimsathygli. Svörtu lokkarnir horfnir og svona fer hún inn í haustið.

ARI ELDJÁRN (44)

0

Ari Eldjárn er afmælisbarn dagsins (44). Ari er orðinn kómíker á heimsmælikvarða, sá fyrsti sem þjóðin hefur eignast. Hann fær óskalag sem er næstum jafn fyndið og hann sjálfiur – Aravísur:

MARGIR SAKNA SAXBAUTANS

0

Saxbauti í dós, niðursoðinn hjá KEA á Akureyri, var vinsæll réttur á Íslandi og fáanlegur í tveimur dósastærðum. Sá stærri með sjö buffum og minni með fjórum buffum. Framleiðslunni var hætt 1990.

Saxbautinn var vel kryddaður og bragðsterkur og jafnvel matvöndustu börn hámuðu hann í sig eins og sælgæti – og fullorðnir líka. Fyri utan kryddið var nautahakkið blandað hveiti og eggjum og síðan mótað í hringlaga buff og steikt á pönnu.Með þessu var algengt að hafa steiktan lauk í brúnni sósu, soðnar kartöflur og oft rauðkál, rauðrófur, sýrðar gúrkur og sultu.

Saxbautans sakna margir.

BEINT FRÁ BÓNDA – ÍRSKUM BÓNDA

0
Hjálmar er athugull.
Hjálmar er athugull.

Beint frá bónda? Lítur þannig út er er alls ekki. Kjötið innflutt frá Írlandi eins og sést á merkimiða. Hjálmar Gíslason hugbúnaðarmógúll og athafnamaður rakst á þetta og myndaði:

„Heima…naut?
Hef NB ekkert á móti erlendu kjöti, en nafninu á þessari vöru er klárlega ætlað að vera villandi.
Munar náttúrulega bara einum staf: Í(s)rland.
Og svona glæsilega uppþítt á Íslandi.“

LINDA HANS PAUL (84)

0

Linda McCartney (1941-1998), ástin í lífi Paul McCartney og barnsmóðir, hefði orðið 84 ára í dag. Hún var frábær ljósmyndari, fyrsta konan til að eiga forsíðumynd á tímaritinu Rolling Stone enda sérhæfði hún sig um tíma í myndatökum af frægu tónlistarfólki og skemmtikröftum – og þar kynntist hún Paul. Auk ljósmyndanna var hún hljómborðsleikari og söngkona í hljómsveit þeirra Paul – Wings, heimsþekktur grænkeri og baráttukona í dýravernd. Áhrifa hennar gætti víða.

KRAFTAVERKAMAÐURINN HALLUR HALLSSON

0

Forsíða DV 27. maí 2000. „Kraftaverkamaðurinn“ Hallur Hallsson sem þá hafði sem almannatengil hjálpað við að koma Keiko til landsins, fylgt Pólfaranum fram og tilbaka, stjórnað beinni sjónvarpsútsendingu frá kosningum um sameiningu Fjarðabyggðar og gefið út bókina 7 lyklar að velgengni svo fátt sé nefnt af „kraftaverkum“ hans. Allt lék þetta í höndum hans.

ÖRVHENTIR LÍKA HINSEGIN

0

„Ég átti örvhenta móður og nú á ég örvhenta eiginkonu. Þær eiga raunar ýmislegt annað sameiginlegt,“ segir Björn Hróarsson jarðfræðingur og athafnamaður í tilefni af kynlegri umræðu dagsins:

„Ef maður spilar fótbolta eða handbolta þá er gott að vera örvfættur eða örvhentur enda einungis milli 5 og 10 prósent sem búa við þessa óskilgreindu „fötlun“ eða „náðargáfu“ – allt eftir því hvernig á það er litið. Það er að minnsta kosti ekkert rangt við það að vera örvhentur eins Jodie Foster bendir hér á:

Örvhenta fólkið þarf að lifa með því og við hin sem rétthent erum þurfum að lifa með þeim og láta okkur gott líka.

GUMMI BEN (51)

0

Gummi Ben, sá eini sanni, maðurinn með röddina fyrir boltann, er afmælisbarn dagsins (51). Hann fær óskalag við hæfi: