Home Blog Page 73

HEIMSMEISTARI Á HLEMMI

0

Þessi fallega Volkswagen bjalla tók sig vel út á Hlemmi í haustsólinni. Með toppgrind.

Volkswagen bjalla er smábíll sem var framleiddur í Þýskalandi frá 1938 til 2003. Yfir 21 milljónir eintaka hafa verið framleiddar á þessum tíma. Bjallan er afturdrifin og vélin er loftkæld. Hún er mest framleidda bílategundin í heimi en smá breytingar hafa verið gerðar á hönnun hennar. Ný tegund af bílnum kom út árið 1997 en hún hét Volkswagen New Beetle og var seld til ársins 2011. Árið 2011 kom önnur ný tegund út sem byggð var á upprunalegu hönnun Bjöllunnar.

Þegar bíllinn var fyrst framleiddur var hann seldur sem „Volkswagen“ en bráðum varð hann þekktur sem Käfer „bjalla“ í Þýskalandi. Svo var byrjað að selja hann undir þessu nafni. Í mörgum löndum er hann þekktur sem Beetle „bjalla“ eða þýðing á þessu orði á tungumáli sem talað er í landinu. Undantekning er í  Bandaríkjunum þar sem hann heitir Bug „skordýr“.

DAGNÝ FÓR Á STARBUCKS – NÆST KASTALAKAFFI

0
Dagný Hrönn Bjarnadóttir fékk sér smá hressingu á Starbucks ásamt félaga. Þegar hún fékk reikninginn var henni að orði:
„Starbucks fyrir tvo, 5.610 krónur. Mæli með Kastalakaffi.“

COLONEL SANDERS (135)

0

Fæðingardagur Colonel Sanders (1890-1980) sem hefði orðið 135 ára í dag. Stofnaði Kentucky Fried Chicken (KFC) í Kreppunni miklu og framleiðslan byggði á „leyniuppskrift“ hans sjálfs og sérstakri þrýstisteikingu. Ein vegasjoppa varð að mörgum með vörumerkjaleigu sem hann stjórnaði sjálfur. Fyrirtækið seldi hann 1964, var alltaf til staðar sem andlit KFC og líkaði ekki alltaf þróunin sem varð á.

HREINDÝRABORGARI Á ORMSTEITI Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST

0
Gistihúsið á Egilsstöðum heldur upp á bæjarhátíðina Ormsteiti um næstu helgi með hreyndýraborgara á matseðli á meðan birgðir endast og Happy Hour alla helgina frá 12-23.
Hreindýraborgarinn er borinn fram með beikonsultu, brie osti, klettasalati, lauk og svörtu hvítlauksmæjónesi – kostar álíka mikið og pizza á Akureyri.

GYLFI 36 ÁRA Í DAG

0

Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnustjarna er 36 ára í dag. Til hamingju!

STURLUN Á BÍLASTÆÐUM – „ER ENGINN AÐ STOPPA ÞETTA?“

0
„Við vorum að borga 29 þúsund krónur fyrir að sækja stelpuna okkar á Keflavíkurflugvöll. Maðurinn minn beið eftir henni við innganginn. Komumst að því að þú borgar á 500 krónur á mínútuna fyrir að stoppa þar. Hann fór aldrei út úr bílnum,“ segir Sigrún Jóhannsdóttir lögfræðingur og er ekki sátt við. Og ekki nóg með það:
„Jæja, núna fórum við með strákinn á Eiríksgötu í röntgen í gær. Tók 30 mínútur. Vorum að fatta að það gleymdist að skrá bílinn úr stæðinu. Það kostaði okkur 30 þúsund.
Hvaða sturlun er komin í gang í þessum bílastæðamálum? Er engin að stoppa þetta?“

PETER SELLERS (100)

0
Stórleikarinn Peter Sellers (1925-1980) hefði orðið 100 ára í dag en han lést aðeins 55 ára að aldri. Hann var kómíker sem fékk heimin til að hlæja þó stundum væri gamanið grátt. Þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Inspector Clouseau og kvikmyndirnar um Bleika pardusinn. Leikur hans einkenndist af góðlátlegri kaldhæðni og svörtum húmor sem hafði áhrif á aðra gamanleikara sem tóku upp taktana en tókst þó aldrei að ná þeim alveg. Hann var sá stærsti í gríninu á seinni hluta síðustu aldar.

TJÚLLUÐ HELGI PÁLS ÓSKARS

0

„Takk fyrir tjúllaða helgi,“ segir stórstjarnan Páll Óskar:

„Októberfest á föstudag, Þjóð gegn þjóðarmorði á Austurvelli, Ljósanótt í Keflavík á Dubliner og svo Diddú 70 ára í Hörpu í gærkvöldi.  Ástarþakkir fyrir þetta all.“

HÚSVAGNAHÓTEL Í REYKHOLTI

0

Vagnaplanið í Reykholti býður upp á skjólgóð útistæði fyrir ferðavagna af öllum stærðum og gerðum á 10.000 fm útisvæði í aðeins 70-80 mín. akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Tjaldvagnar, fellihýsi, hjólhýsi, stöðuhýsi og húsbílar.

Skjólgóð staðsetning, varin trjám allan hringin.
Lokað svæði með myndavélavöktun 24/7.
Vetrarstæði fyrir vagna kr. 60.000.
Vetrarstæði frá september til maí
Aðgengi að vögnum eftir samkomulagi.

TRUMP BÆTIR 9 MILLJÖRÐUM VIÐ GULLFORÐA ÍSLANDS

0
„Misvitrar efnahagsákvarðanir, og tollarugl Donalds Trumps forseta Bandaríkjanna hafa aukið verðmæti gullforða Seðlabankans um rúma 9 milljarða króna á þessu ári,“ segir Friðrik Indriðason blaðamaður á eftirlaunum:
„Frá því að Trump tók við völdum eftir áramótin hefur tiltrú fjárfesta og seðlabanka á dollaranum hrapað.  Ríkisstjórnir annarra landa hafa í miklum móð breytt dollurum sínum í gull.
Þetta hefur leitt til þess að verð á gulli hefur rokið upp. Um áramótin var hægt að kaup únsu (28 grömm) af gulli á 2.600 dollara. Í dag kostar únsan rúmlega 3.650 dollara. Þetta er hækkun um ríflega 40%.
Í ársskýrslu Seðlabankans fyrir 2024 kemur fram að gullforði Íslands nam 23 milljörðum króna um áramótin. Í dag er hann metinn á rúma 32 milljarða. Þetta er rúmlega 9 milljarða króna hækkun á árinu. Og flestir búast við enn frekari hækkun á gulli, það geti farið í yfir 5.000 dollara á únsuna. Þá gætum við þakkað Trump fyrir að hafa tvöfaldað verðmæti gullforðans.