Home Blog Page 72

PÓLSK PULSA Á GRANDA – BRAVÓ!

0

Steikt laukpylsa með kartöflumús og salati á litlu og vinalegu veitingahúsi á Granda er lostæti – Traditional Polish Food heitir staðurinn.

Þarna er hægt að fá fleiri pólska rétti, snitselt og súpur, allt heiðarlegt og gott og kostar minna en pizzurnar hjá Flatey í næsta húsi.

MYND DAGSINS

0

Túristi tekur mynd á regnbogagötu í Reykjavík.

FRJÁLSLYNDUR FISKSALI Í FIRÐINUM

0
G. Ingason.
G. Ingason.

Heimsmálin eru ekkert að flækjast fyrir Guðmundi Ingasyni (G. Ingason) fiskhöndlara við Suðurhöfnina í Hafnarfirði. Flaggar öllum fánum fyrir ofan Krónuna enda selur hann fisk víða um heim.

SVANHILDUR ALLTAF SMART

0

Þessi mynd var tekin á Tungubakkaflugvelli  í Mosfellsbæ fyrir fjórum dögum. Þarna stillir söngstjarnan Svanhildur Jakobsdóttir sér upp við flugvél með síma í hönd eins og ungstirni – 84 ára.

TRIPOLIBÍÓ VIÐ SUÐURGÖTU

0

Tónlistarfélagið í Reykjavík kom Tripolibíó á laggirnar árið 1947 í bragga við Suðurgötu sem notaður hafði verið undir leik- og kvikmyndasýningar á stríðsárunum. Kvikmyndahúsið malaði gull fyrir Tónlistarfélagið. Rekstur kvikmyndahúsa var á þessum árum háður ströngum leyfum, en félagið fékk auk þess skemmtanaskattinn í sinn hlut samkvæmt sérstöku samkomulagi við ríkisstjórnina. Um áratug síðar hóf Tónlistarfélagið byggingu Tónabíós í Skipholti, en það var vígt 1962.

Tripoli?

Bíóið var í herbragga sem stóð eftir af hernámskampi sem kenndur var við frægan sigur sem Bandamenn (Bretar) unnu við Tripoli í ársbyrjun ´43.

TÚRISTAAFMÆLI

0

Þessi fallegi ferðalangur átti afmæli í gær og fékk sér afmælistertu í tilefni dagsins á Skólavörðustíg.

JOSÉ FELICIANO (80)

0

José Feliciano gítarsnillingur frá Puerto Rica er áttræður í dag. Blindur allt sitt líf og svona túlkar hann Light My Fire með Doors:

UPPTAKARI FRÁ BROADWAY

0

Þessi upptakari fannst í runna við Álfabakka þar sem skemmtistaðurinn Broadway var til húsa á árum áður. Ef einhver saknar hans má snúa sér til lögreglunnar.

DOKTOR GUNNI SEXTUGUR

0

„Næsta 7. október verð ég ógeðslega gamall, eða sextugur. Ýmsar klisjur grípur fólk til á svipuðum tímamótum, t.d. „Ég er alltaf 19 ára inn í mér“ eða „betra að vera 60 en dauður“ – allt satt og rétt,“ segir Dr. Gunni og er í stuði:

„Ég hyggst fagna þessum tímamótum með vinum mínum í hljómsveitinni Dr. Gunni. Á afmælisdaginn kemur út 4-laga tíu tommu platan BOTNLAUS BRÖNS & BÚBBLUR. Aðeins 60 eintök verða framleidd og verða þau tölusett – instant safngripur! Fyrir tíu árum kom einmitt líka út 10″ plata (Dr. Gunni í sjoppu), en þá í 50 eintökum. Ef þú vilt eintak af þessari 60-ára plötu máttu senda mér prívat skilaboð. Nokkur eintök eru enn á lausu. Platan er framleidd úr hágæða vinýl í útlöndum og verður ekkert eintak eins (held ég allavega!) Vegna hás framleiðslukostnaðar og sjaldgæfni verð ég að selja eintakið á okurverðinu 8000 krónur. Á afmælisdaginn verða svo útgáfutónleikar/afmæli á hinum merka stað Catalínu í Hamraborg. Nánar auglýst síðar!“

TENGDASONUR ÍSLANDS MEÐ SCARLETT JOHANSSON Á RAUÐA TEPPINU

0
Hjónin Dustin og Herdís.
Hjónin Dustin og Herdís.

Dustin O’Halloran með Scarlett Johansson á rauða dreglinum í gærkvöldi á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto (TIFF). Dustin er eiginmaður Herdísar Stefánsdóttur sem einnig er kvikmyndatónskáld.

Dusti samdi tónlistina við kvikmynd Scarlett sem hún framleiðir og var sýnd í Toronto, Elenor the Great. Herdís á svo tónlistina við kvikmynd Uglu Hauksdóttur, Eldarnir, sem frumsýnd verður hér á landi 11. september og þykir frábær af þeim sem séð hafa og þá ekki síst tónlist Herdísar.