Home Blog Page 71

ÞÓRDÍS LÓA YFIRGEFUR BORGARSTJÓRN

0

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreinsar í borgarstjórn síðustu átta ár hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi borgarstjórnarkosningum.

„Takk fyrir okkur, elsku Lóa,“ sagði Þorgerður Katrín formaður Viðreisnar þegar hún heyrði tíðindin.

BARA BISTRO Í BORGARNESI – SLÆR Í GEGN

0
Bara bistró í Borgarnesi er líklega myndskreyttasti veitingastaður landsins, a.m.k. að utanverðu.
Það er úkraínska listakonan Lucy Nikishina Nechaevskaya sem á heiðurinn af þessum líflegu myndskreytingum á Bara bistró, sem stendur við Brákarbraut, örstutt frá Landnámssetrinu.
Myndaskreytingarnar hafa heldur betur örvað viðskiptin á Bara bistró, þar er fullt í mat alla daga og 90% af viðskiptavinunum eru erlendir ferðamenn.
Bistróið er í húsakynnum við Brákarbraut sem áður hýstu Dússabar, sem lengi var afar vinsæll meðal heimamanna jafnt sem gesta, en hætti starfsemi þegar Dússi fór á eftirlaun.

DRAUGAGANGUR Á LAUGAVEGI

0
Ljósmyndarinn.
Ljósmyndarinn.

„Draugagangur á Laugavegi (mjög líklega Degi að kenna)“ heitir þessi mynd Ara Sigvaldasonar myndakaupmanns á Skólavörðustíg.

FLASKA VIKUNNAR HJÁ ENDURVINNSLUNNI

0
„Flaska vikunnar er Soccerade frá árinu 2010 skreytt sjálfum Cristiano Ronaldo, einum besta knattspyrnumanni allra tíma,“ segir í tiLkynningu frá flöskumóttökustöð Endurvinnslunnar.
„Flaskan er í toppstandi og hefur líklega verið skraut í herbergi hjá sönnum aðdáanda. Margir halda að plastflöskur frá Endurvinnslunni endi í brennslu en það er ekki rétt!
Svokallað PET plast (sem notað er í gosdrykki og safa) fer til viðurkenndra endurvinnslustöðva þar sem úr verður rPET, endurunnið plast sem notað er í nýjar umbúðir. Það sem truflar ferlið er þegar ódýrari plasttegundir slæðast með. En þessi Ronaldo flaska? Hún fer beint í safnið okkar.“

AMY WINEHOUSE (42)

0

Amy Winehouse (1983-2011) er afmælisbarn dagsins, hefði orðið 42 ára. Hér syngur hún um tárin sem þorna af sjálfu sér:

STEINLAUSAR DÖÐLUR TEKNAR ÚR UMFERÐ

0

Icepharma hf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum MUNA Döðlur steinlausar.

Ástæða: Varan getur verið byrjuð að gerjast og er því óhæf til neyslu.

BJÖRGÓLFUR HRAPAR NIÐUR FORBES LISTANN UM RÍKUSTU MENN HEIMS

0

Auðævi Björgólfs Thors hafa snarminnkð samkvæmt árlegum lista tímaritsins Forbes um ríkustu menn heims. Björgólfur er nú metinn á eina billjón dollara en í fyrra var það rúmlega helmingi meira, 2.1 billjón.

Sjá Forbes hér.

EDDA BJÖRGVINS (73)

0

Eftirlæti þjóðarinnar um áratugaskeið og þjóðarsómi, Edda Björgins, er afmælisbarn dagsins (73). Hér er hún í Áramótskaupinu fyrir rúmum 40 árum:

SNÆRÓS ÓSKAR EFTIR LÆKNINGU

0
„Ég hef lengi vitað að ég er haldin starfsauglýsingafíkn. Ég má helst ekki sjá auglýsingu án þess að langa, í eitt augnablik, að sækja um hana. Þetta er freistnivandi sem gerir engan greinarmun á gæði og eðli starfa,“ segir athafnakonan og dægurstjrnan Snærós Sindradóttir
„Öfgafyllstu áhrifin koma fram þegar störf eru auglýst á Facebook því þá er hvert starf kynnt eitt og stakt, en ekki í hópi og hrærigraut annarra starfa. Miðillinn er búinn að fatta þennan veikleika minn, svo ég fæ straum starfaauglýsinga.
Þá skiptir engu að ég sé orðin bæði galleristi í SIND og framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar. Ég verð enn alveg jafn spennt fyrir starfi sundlaugarvarðar í Þelamörk eða starfi umsjónarmanns fasteigna í grunnskólanum á Stöðvarfirði.
Lækning óskast.“

HELEN HEILAR OG SPÁIR Í SPIL

0

Frá Sálarrannsóknarfélaginu

Helen er búin að vera í andlegum málefnum í mörg ár. Hún er Reikimeisti, heilari OPJ þerspisti og les í spil eða bolla.
Hún hefur fengið þjálfun hjá Garðari Jónssyni, Guðrúnu Ólafsdóttur, Sigrúnu Gunnarsdóttur, Ásthildi Sumarliða, Guðnýju Stefnis ásamt öðru góðu fólki.
Helen býður upp á heilun og spá í spil í lok tímans.
Helen býður upp á tíma á ensku fyrir þá sem þurfa.