Bara bistró í Borgarnesi er líklega myndskreyttasti veitingastaður landsins, a.m.k. að utanverðu.
–

Það er úkraínska listakonan Lucy Nikishina Nechaevskaya sem á heiðurinn af þessum líflegu myndskreytingum á Bara bistró, sem stendur við Brákarbraut, örstutt frá Landnámssetrinu.
–
Myndaskreytingarnar hafa heldur betur örvað viðskiptin á Bara bistró, þar er fullt í mat alla daga og 90% af viðskiptavinunum eru erlendir ferðamenn.
–
Bistróið er í húsakynnum við Brákarbraut sem áður hýstu Dússabar, sem lengi var afar vinsæll meðal heimamanna jafnt sem gesta, en hætti starfsemi þegar Dússi fór á eftirlaun.






