Það var ágætt hjá nýrri ríkisstjórn að kalla eftir hugmyndum um sparnaðaraðgerðir frá „sótsvörtum almúganum“ eins og einn aðstoðarmaður ráðherra kallar fólkið í landinu. Það var einmitt ráðherrann hans sem virðist eitthvað rugluð í prinsippunum því hún keypti páskaegg og lét sérhanna umbúðir handa samráðherrum sínum og samstarfsfólki fyrir rúmlega 700 þúsund krónur.
Nú berast fregnir af því að keyptir hafi verið sérhannaðir kaffibollar fyrir starfsfólk í dómsmálaráðuneyti. Þetta eru engin smámál þótt upphæðirnir hlaupi ekki á tugum milljóna. Þetta eru prinsippmál sem ráðherrar ættu fyrstir allra að átta sig á valdi þeir hlutverki sínu.




