Vigdís Finnbogadóttir, ástsælasti og virtasti forseti íslensku lýðveldissögunnar, er 96 ára í dag.
Minning:
Sur le pont d’Avignon heitir franskur alþýðusöngur sem Vigdís söng fyrir nemendur sína í frönsku við Menntaskólann í Hamrahlíð á áttunda áratugnum – og lét alla syngja með. Þarna mæltu margir frönsku í fyrsta sinn af vörum fram og sumir kannski aldrei aftur. Vigdís var góður kennari, góður forseti og er góð manneskja. Til hamingju með daginn Íslendingar!



