Ken Namikawa, yfirlæknir meltingarlækninga á Landspítala, fjarlægði krabbamein í munnholi sjúklings með speglunartækni og var grein um tilfellið nýverið birt í læknatímaritinu ACG Case Reports. Ísland er fyrsta vestræna ríkið þar sem þessi tegund aðgerðar er gerð en aðferðin var þróuð í Asíu.
–
Hægt var að framkvæma speglunaraðgerðina þar sem krabbameinið var á frumstigi en hún felur í sér umtalsvert minna inngrip en aðrir meðferðarkostir á borð við skurðaðgerð eða lyfja- og geislameðferð. Aðgerðin heppnaðist vel og við sex mánaða eftirfylgni sagði sjúklingurinn að sér liði eins og hún hefði aldrei farið í aðgerð.
–
Ken Namikawa telur að Ísland eigi möguleika á að leiða vestræn ríki á sviði speglunaraðgerða á undirslímhúð í munnholi.
–



