Home Blog Page 70

HRÍSMJÖLSGRAUTUR SIGRÍÐAR

0

Ungt fólk undirbýr sig misvel fyrir lífið en Sigríður Pétursdóttir rithöfundur og kvikmyndafræðingur vildi hafa vaðið fyrir neðan sig þegar hún flutti að heiman:

„Gamla uppskriftabókin mín. Áður en ég flutti að heiman skrifaði ég niður uppskriftirnar hennar mömmu.“

 

ATHUGASEMD

0

Borist hefur athugasemd:

Ekki verða símar og borvélar batteríslaus og að sama skapi verða flugvélar ekki mótórlausar þótt aflið þverri.

ÖLDUNGURINN Í BÓNUS

0
Ljósmyndarinn.
Ljósmyndarinn.

Öldungurinn fann sér sæti í Bónus, hvíldi legg og lið og fletti Bændablaðinu áður en hann hélt áfram meðfram morgunkornshillunni með stefnuna á kassann.

Myndina tón Ari Sigvaldason í nóvember 2014.

HANK WILLIAMS (102)

0

Fæðingardagur Hank Williams (1923-1953), kántrýsöngvarans sem setti mark sitt svo um munaði á dægurtónlist síðustu aldar með hljómsveit sinni, The Drifting Cowboys. Hann átti hvern smellinn á fætur öðrum á vinsældalistum og þó áfengissýki væri hann lifandi að drepa skóp hann tímalausa tónlist sem staðist hefur tímans tönn.

TRUMP TIL BRETLANDS Í KVÖLD – FRÁBÆRT SHOW Í VÆNDUM

0
Sigfús: "Hver er hann aftur, þessi málglaði þegn?"
Sigfús: „Hver er hann aftur, þessi málglaði þegn?“

„Donald Trump kemur í opinbera heimsókn til Bretlands í kvöld. Mun gista í Windsor,“ segir Sigfús Arnþórsson rithöfundur og tónlistarmaður búsettur í Englandi og fylgist vel með á sinni heimaslóð:

„Á morgun verður aðal-seremónían. Og það gera Bretar betur en flestar þjóðir. Þeir kalla það „pomp and circumstance“ Það eru lúðrasveitir og hermenn í búningum á hestum og alls konar. Mikil og falleg sýning.
Svo mun hann tala við King Charles Og það væri frábært að sjá frá því ólíkari menn eru tæpast til. Trump mun verða óðamála. Hann er í eðli sínu farandsölumaður frá Chicago og lítur óendanlega mikið upp til bresku konungsfjölskyldunnar. King Charles lítur enn á USA sem eina af nýlendum sínum og mun eflaust spyrja sig: „Hver er hann aftur, þessi málglaði þegn?
Trump mun flytja honum tíðindi úr nýlendunni – en þó aðallega af sjálfum sér.  Hvaða nýju, frábæru business samningum hann hafi verið að ná og King Charles mun kinnka kolli og hugsa mest um hvort fjölskyldusilfrið hafi verið vandlega læst niður áður en þessi maður kom. Og hvort gesturinn gæti verið með lús.  Þetta verður frábært show, hvernig sem það verður.
Á fimmtudaginn mun Trump svo hitta Starmer forsætisráðherra og það verður jafn leiðinlegt og hitt var skemmtilegt. Einfaldlega af því að Starmer er svo leiðinlegur að allt verður leiðinlegt sem hann kemur nálægt. Jafnvel Trump.
En President Trump og King Charles er góð sýning. Fullkominn misskilningur á báða bóga.“

ÓMAR (85)

0

Ómar Ragnarsson er afmælisbarn dagsins (85). Fáir Íslendingar hafa orðið frægari en hann innanlands.

„Láttu drauminn rætast,“ sagði niðursetningurinn og förukonan Manga með svartan vanga við mig undan dreng. „Það stekkur enginn lengra en hann hugsar,“ bætti hún við. (ÓR)

RÚNAR MEÐ BÓK Í EINU EINTAKI – „EKKI VIÐ ALÞÝÐUSKAP“

0

„Ljósmyndabókin Ferðin langa var að koma úr prentun. Hún er gerð í aðeins einu eintaki enda er bókin ekki við alþýðuskap,“ segir Rúnar Gunnarsson listaljósmyndari og er ánægður með.

Áhugasamir verða því að mæla sér mót við höfundinn og fá að kíkja á bókina.

MARGRÉT LAXNESS Í FOLD

0

Margrét Laxness opnaði um helgina sýningu á verkum sínum í Gallerí Fold á Rauðarárstíg. Margrét hefur víða komið við í myndlistinni og meðal annars hannað hjálparsveitakarlana og hefur gert það öll árin sem hann hefur verið seldur fyrir björgunarsveitirnar. En nú eru það málverkim í Fold.

Margrét er barnabarn Nóbelskáldsisns Halldórs Laxness, dóttir Einars Laxness sagnfræðings sem var elsta barn skáldsins.

Sýningin stendur til 4. október og opið 12-18 virka daga, 12-16 á laugardögum (lokað sunnudaga).

Neyðarkarlar björgunarsveitanna hafa tekið á sig ýmsar myndir í höndum Margrétar.

BÍLATRYGGINGAR HERMANNS HÆKKA ÞRÁTT FYRIR TJÓNLEYSI

0
„Rétt í þessu var ég að fá áminningu um að tryggingar heimilisins væru að komast á endurnýjun. Í því ljósi fannst mér rétt að skoða inn á mínum síðum hvað við greiddum í fyrra og hvernig það ætti að breytast á næsta ári,“ segir Hermann Guðmundsson forstjóri Kemi og hann varð hissa:
„Mér til undrunar sé ég að tryggingar á bifreiðum eiga að hækka um 10% á milli ára þrátt fyrir tjónleysi. Þetta er einfaldlega ákveðið í 4% verðbólgu, launataxtar hækkuðu um 3.5% og afkoman sem ég skoðaði í uppgjöri félagsins var með ágætum og afkoma af tryggingahlutanum var jákvæð. Er þetta almennt svona hjá ykkur hinum?“

HARRY PRINS (41)

0

Harry prins, hertoginn af Sussex eftir að hann varpaði af sér konunglegum skyldum í Englandi með tilheyrandi hávaða, er 41 árs í dag. Hann hefur búið í Kaliforníu þar sem hann brallar hitt og þetta með eiginkonu sinni, Meghan Markle. Hann fær óskalag með Prince.