Home Blog Page 69

SVARTUR BLETTUR LOGA

0

Svartur blettur / Black Spot heitir verkið sem Logi Bjarnason sýnir í höggmyndagarðinum á Nýlendugötu. Sýningin opnaði í dag og þarna verður svarti bletturinn / black spot fram í miðjan nóvember.

Höggmyndagrðurinn á Nýlendugötu er opin alla daga, allan sólarhringinn og heimsóknar virði. Þarna er og friður og gott að setjast niður.

Hér er um að ræða nýja nálgun á skúlptúr þar sem mörk skynjunar og víddar færast til. Verkið rýmkar tilveru samtímans með tilvísun í óhlutbundið form með vísun í ádeilu á samtíma okkar ásamt því að hafa aðdráttarafl sem kallar á samveru og könnun á lífsgæðum og rými. Gestir eru hvattir til að stíga nálægt, vera í kyrri pásu og spyrja spurninga sem verkð vekur upp.

Logi Bjarnason býr og starfar á Íslandi. Hann útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands 2008 og Städelschule í Þýskalandi 2012. Hann hefur sýnt víða, bæði hér heima og erlendis og fengið verðlaun og viðurkenningar fyrir myndlist sína. Verkin fjalla um náttúru Íslands á óhlutbundinn hátt í blönduðum miðlum og tengja saman samfélagsleg áhrifaþætti á húmorískan hátt. Verkin eru oft víðtæk í miðlum, stundum tveir eða þrír, og oft bæði.

SOPHIA LOREN (91)

0

Þokkadís á heimsmælikvarða í næstum heila öld – Sophia Loren er afmælisbarn helgarinnar (91).

Ólaf F. Magnússon læknir og fyrrum borgarstjóri í Reykjavík orti um hana ljóð sem birtist í annarri ljóðabók hans, Staldraðu við:

Indæl kona alla tíð,
ávallt var hún ljúfust, blíð.
Í minningunni fögur, fríð,
fagnað var af mönnum.
Gleymist ei um ár og síð,
um unaðsreit og gróna hlíð,
gjafmild freyja þokkans, þýð
þekkt af gæðum sönnum.

KRISTRÚN MEÐ NEKTARMYND Á SKRIFSTOFUNNI

0

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er listelsk manneskja eins og sjá má í viðtölum sem tekin eru við hana á skrifstofu hennar í Stjórnarráðinu. Þar hefur hún skipt út flestum myndum á veggjum og nú síðast mátti sjá þessa – naktan baksvip af konu.

Hver er listamaðurinn? Hver er konan?

Sjá tengda frétt.

FYRSTU STÖÐUMÆLARNIR 1957

0

Stöðumælar voru fyrst settir upp í Reykjavík sumarið 1957 og var það á Laugavegi og í Bankastræti, en tilgangurinn var m.a. að afla peninga til að gera fleiri bílastæði.

HEILSURAUNIR FYRRUM HEILBRIGÐISRÁÐHERRA

0

Óttarr Proppé fyrrverandi heilbrigðisráðherra hefur orðið:

„Ég er elíta. Mér var einhvern tímann úthlutað heimilislækni. Í dag fann ég til krankleika og datt í hug að leita til læknis. Ég fór inn á Heilsuvera.is eins og kvatt er til, og fann þar flipa fyrir Tímabókun og var boðið upp á leghálsskimun, bæði í Reykjavík og á Mývatni, getnaðarvarnarráðgjöf og viðtöl við nokkra lækna en bara ekki minn.

Svo ég hringdi í heilsugæsluna og fékk samband. Þar var mér sagt að tímapantanir væru bara gerðar á heilsuveru, en ekki undir ‚Bóka tíma‘ heldur undir ‚skilaboð‘ og þar ætti ég að velja ‚eftirfylgd meðferðar‘ hvort sem um einhverja eftirfylgd væri að ræða eða ekki. Það er prýðisaðferð til að létta á álagi að koma í veg fyrir að sjúklingar séu að trufla kerfið. Ég loggaði mig strax út áður en skaði hlytist af.

Þá datt mér í hug að sjá hvort það væri ekki bara skilvirkast að láta grafa mig strax og fór inn á http://xn--kirkjugarar-xdb.is/ og fann þar t.d. eyðublað fyrir ‚beiðni um líkbrennslu‘ með tveimur klikkum. Þar get ég sett inn nafn, lögheimili og kennitölu og undir stendur „Kyrrð og kærleikur“. Þetta finnst mér almennilegt, aðgengilegt og meira að segja vinalegt. Enda er mikilvægt að fólki sé boðið auðvelt aðgengi að mikilvægri þjónustu.

Ég er byrjaður að fylla eyðublaðið út en er svo latur til slíks að ég er að farinn að spá í hvort ég eigi að harka bara af mér. Mér var reyndar einu sinni sagt að manni sé stundum hleypt inn á bráðamóttöku svo fremi maður sé hálfdauður, og að því tilskyldu að maður hafi beðið nógu lengi. Á það kannski inni ef mér skildi versna.“

MAMA CASS (84)

0

Mama Cass, stóra konan í söngsveitinni Mamas & the Papas, hefði orðið 84 ára í dag en hún lést langt fyrir aldur fram aðeins 33 ára að aldri. Hún hlaut Grammy verðlaunin fyrir framlag sitt í laginu Monday, Monday 1967 – lag sem enn ómar um heimsbyggðina.

HVER ER AÐ KOMA?

0

Svona lítur eldra fólk út þegar einhver leggur bíl fyrir utan húsið þeirra.

SÓÐAHJÓN VIÐ SKÓGAFOSS

0
Friðrik Brekkan.

„Ég var bara svo hneykslaður að ég trúði ekki að þeitta væri satt,“ segir Friðrik Brekkan, gamalreyndur leiðsögumaður staddur með hóp við Skógafoss:

„Erlend hjón slepptu þessu drasli út um glugga húsbíls síns og óku svo hratt í burtu af bílaplaninu við Skógafoss. Skil ekki svona lagað.“

EINAR MÁR (71)

0

Einar Már Guðmundsson er 71 árs í dag. Einn mesti rithöfundur sinnar tíðar og jafnvirtur í Danmörku og á heimslóð enda bjó hann um árabil í Kaupmannahöfn þar sem hann drakk í sig danska menningu, skrifaði af kappi og hlustaði aðallega á Kinks.

BÍLLAUSI DAGURINN Á MÁNUDAG

0

Mánudaginn 22. september verður evrópski Bíllausi dagurinn haldin hátíðlegur. Hvetur Reykjavíkurborg almenning til þess að skilja bílinn eftir heima og til að auðvelda það verður frítt í landsbyggðarstrætó og í strætó á höfuðborgarsvæðinu.