Bruce Springsteen, goðsögn í rokk og róli samtímans, er 76 ára í dag. Hann hefur selt rúmlega 140 milljónir eintaka af plötum sínum, Born to Run og Born in the USA og uppskorið 20 Grammy verðlaun.
SKYNSEMIN RÆÐUR

„Skynsemin ræður“ heitir þessi mynd Ara Sigvaldasonar ljósmyndakaupmanns á Skólavörðustíg. Trabant og fallegur hundur – þarf ekki meira.
ANDREA BOCELLI (67)
Ítalski gulltenórinn Andrea Bocelli er afmælisbarn dagsins, 67 ára. Hann hefur selt 75 milljónir eintaka af hljómplötum – klassík, popp og óperur, jafnvígur á þetta allt. Hann á sína eigin stjörnu á Hollywood Walk of Fame enda rödd hans talin ein sú fegursta í heimi.
ENN ER RÓLEGT Í KÍNVERSKA SENDIRÁÐINU

VALKYRJURNAR ERU GÓÐAR Í KÖRFUBOLTA
Valkyrjustjórnin heldur mörgum boltum á lofti, en á vesturströnd Bandaríkjanna er aðeins einn bolti á lofti í einu hjá Valkyrjunum, einu vinsælasta kvennaliðinu í bandarísku atvinnukvennadeildinni í körfubolta (WNBA). Golden State Valkyries kallast liðið og er eitt af 13 í kvennaboltanum.PÉTUR MEÐ BÓNUSSPURNINGU
Pétur H. Hansen er með spurningu til Bónus:
RAGNAR Í ESB-LESTINNI
„Við erum í aftasta vagni ESB-lestarinnar. Hún er á fullri ferð. Við vitum ekki hvert ferðinni er heitið og ráðum engu um það,“ segir Ragnar Önundarson fyrrum bankastjóri og samfélagsrýnir í hugleiðingu dagsins – að gefnu titlefni:
„Í næst-aftasta vagninum er töluð norska. Þaðan heyrast bara blótsyrði. Orkureikningarnir hafa tífaldast. Þeir þora ekki að losa vagninn frá. Áður heyrðist enska úr þriðja aftasta vagninum. Nú er hann tómur, farþegarnir stukku út á ferð.“
RÚNAR ÞÓR (72)
Tónlistarmaðurinn Rúnar Þór er afmælisbarn dagsins (72). Það er myljandi músík í Rúnari Þór, sérstakur tónn sem skilur hann frá öllum öðrum tónlistarmönnum. Alveg spes.
UMFERÐARLJÓS Á SPÁNI
Umferðarljós á Spáni hafa mörg tekið á sig nýja mynd. Í rauða ljósinu stendur Stop Israel og í því græna Free Gaza.
Ætli Vegagerðin á Akureyri viti af þessu?
FRJÁLS SAMKEPPNI
„Algjört svekkelsi að jakkafatabörnin hafi verið á undan mér að búa til stuttermaboli með uppáhalds elsinu sínu,“ segir Lóaboratorium sem bætir nú um betur eftir að ungir íhaldsmenn dreifðu sínum frelsisbol.


