„Við erum í aftasta vagni ESB-lestarinnar. Hún er á fullri ferð. Við vitum ekki hvert ferðinni er heitið og ráðum engu um það,“ segir Ragnar Önundarson fyrrum bankastjóri og samfélagsrýnir í hugleiðingu dagsins – að gefnu titlefni:
„Í næst-aftasta vagninum er töluð norska. Þaðan heyrast bara blótsyrði. Orkureikningarnir hafa tífaldast. Þeir þora ekki að losa vagninn frá. Áður heyrðist enska úr þriðja aftasta vagninum. Nú er hann tómur, farþegarnir stukku út á ferð.“







