HomeGreinarENN ER RÓLEGT Í KÍNVERSKA SENDIRÁÐINU

ENN ER RÓLEGT Í KÍNVERSKA SENDIRÁÐINU

Liðin eru fimm ár frá því framkvæmdir hófust við endurnýjun fyrrum húss kínverska sendiráðsins við Víðimel í vesturbæ Reykjavíkur. Friðbert Friðbertsson eigandi bílaumboðsins Heklu keypti húsið af Kínverjum, en það var þá í mikilli niðurníðslu.
Gríðarlegar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu og er það sem nýtt og afar glæsilegt. Þessar framkvæmdir hafa þó gengið hægt fyrir sig, sem sést á því að enn hefur enginn flutt í húsið.
Svona leit húsið út í febrúar 2021.
Svona leit húsið út í febrúar 2021.
Sagt er að heildarkostnaður Friðberts við að kaupa húsið og taka það í gegn slagi í einn milljarð króna. Friðbert er slyngur bísnissmaður og líklega skýrast rólegheitin við Víðimel af því að hann sé ekki að borga bönkum háa vexti af framkvæmdalánum, heldur noti hagnað úr rekstri jafnóðum og hann skilar sér.
Friðbert stendur ekki aðeins í stórræðum við Víðimel, fyrir skömmu keypti hann hús heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við Drápuhlíð 14-16 og ætlar sér að gera það upp með svipuðum hætti og kínverska sendiráðið við Víðimel.
Ekki lætur Friðbert sér nægja bílainnflutning og húsastúss, því nýlega keypti hann hið gamalgróna bílavarahlutafyrirtæki Stillingu.
TENGDAR FRÉTTIR

ÞEGAR SÓLIN HVERFUR

Þar sem iðaði allt af lífi í gær. Þegar sólin hverfur, hverfur fólkið. Ó, blessuð vertu sumarsól, er sveipar gulli dal og hól og gyllir fjöllin himinhá og...

SÉRA FRIÐRIK HREINSAÐUR Á MÁLÞINGI

Um helgina var var haldið málþing  Æruverndar um málefni Sr. Friðriks Friðrikssonar í Seltjarnarneskirkju sem var fjölsótt. Niðurstaðan var þessi: "Eftir faglega umfjöllun var niðurstaða...

SIGURÐUR INGI BRENNDI GÖMLU JAKKAFÖTIN Á AFMÆLISDEGINUM

"Undanfarnir mánuðir hafa verið tími breytinga - í gær náði ég þeim merka áfanga að verða 64," segir Sigurður Ingi Jóhannsson fyrrum forsætisráðherra og...

KAFFISTOFA SAMHJÁLPAR Í HEGNINGARHÚSIÐ

"Það virðist sem deilur um staðsetningu kaffihúss Samhjálpar stefni í að verða eitt af kosningamálunum," segir Bjarni Þorsteinsson ritstjóri og útgefandi sem fékk hugmynd...

ER KÚL AÐ FÁ SÉR MÖNDLUMJÓLK?

„Er möndlumjólk á leiðinni út?“ spur Guðmundur Franklín athafnaskáld og fyrrum forsetaframbjóðandi og heldur áfram: – Svo í stað þess að toga í spena í þrjátíu...

TAFLMENN Á LEIÐI SKÁKMEISTARA

Fréttahaukur á leið um Flóa kom við í Laugadælakirkjugarði þar sem skákmeistarinn Bobby Fischer hvílir. Þar sá hann frétt. Kóngi, biskup og peði hafði...

ADHD LJÓÐ Á LAUGARDEGI

ég lærði að ganga tala lesa skrifa og reikna - en aldrei að vinna með mig - ég þjáist rek mig á veggi - ofvirkur brotinn adh eitthvað ruglaður - lendi í ekki mér að kenna - lífið líður hjá orka kraftar hæfileikar - á móti ekki með - ég lærði að ganga tala lesa skrifa og reikna - en aldrei á...

RAUÐSOKKUSTYTTA Í HLJÓMSKÁLAGARÐINN

Að tillögu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra verður minnismerki um kvennabaráttuna reist í Hljómskálagarðinum. Mun það styðja við sjálfsmynd Reykjavíkurborgar sem jafnréttisborg, heiðra sögu og...

FÖLSUÐ HEYFILSMERKI Á LEIGUBÍLUM VIÐ LEIFSSTÖÐ

"Þegar við kom heim frá Spáni um daginn tókum við Hreyfils leigubíl með gula merkinu í framrúðunni," segir Örn Garðarsson, áður landsþekktur veitingamaður sem...

HAFNFIRSKIR ÖLDUNGAR VILJA ÚTSÝNI ÚR HEITU POTTUNUM

Öldungaráð Hafnarfjarðar vill að steyptur veggur sem snýr að sjónum á útisvæði Sundhallar Hafnarfjarðar verði tekinn niður og glerveggur settur upp í staðinn til...

TRÚNAÐARBRESTURINN Í FLOKKI FÓLKSINS – INGA SÆLAND SETTI SON SINN Í STÖRF GUÐMUNDAR INGA

Nú er komið í ljós hver trúnaðarabresturinn í Flokki fólksins var þegar Guðmundur Ingi Kristinsson, varaformaður flokksins og ráðherra, sneri aftur eftir alvarlega hjartaaðgerð...

ÆRUVERND SÉRA FRIÐRIKS Í SELTJARNARNESKIRKJU

Félagið Æruvernd gengst fyrir málþingi í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 19.apríl kl. 14 síðdegis undir heitinu „Hvað er sannleikur? Æruvernd og dómstóll samfélagsmiðla.“ Á málþinginu verður fjallað...

Sagt er...

Stóri Plokkdagurinn verður haldin hátíðlegur á sunnudaginn og er hitað upp með stóra Plokklaginu þar sem Diddú og Hafdís Huld eru forsöngvarar. https://www.youtube.com/watch?v=sr7IHi1E3bs

Lag dagsins

Friðrik Brekkan lífskúnstner og leiðsögumaður, er afmælisbarn dagsins (75). Friðrik hefur sérstaka perónutöfra sem hafa nýst honum vel í návist mestu valdamanna heims jafnt...