Valkyrjustjórnin heldur mörgum boltum á lofti, en á vesturströnd Bandaríkjanna er aðeins einn bolti á lofti í einu hjá Valkyrjunum, einu vinsælasta kvennaliðinu í bandarísku atvinnukvennadeildinni í körfubolta (WNBA). Golden State Valkyries kallast liðið og er eitt af 13 í kvennaboltanum.–
Kvennabolti hefur verið að sækja í sig veðrið um allan heim og það segir sína sögu að ámóta fjöldi karla og kvenna horfir á bandarísku kvennakörfuna og vinsældir hennar meðal yngri áhorfenda eru stöðugt að aukast.






