Guðjón Bjarnason arkitekt og myndlistamaður hefur hlotið styrk úr Höfundarsjóði Íslands til stuðnings komandi menningarviðburða í Bandaríkjunum og á Íslandi:
„Takk Myndstef!“ segir hann.
Guðjón Bjarnason arkitekt og myndlistamaður hefur hlotið styrk úr Höfundarsjóði Íslands til stuðnings komandi menningarviðburða í Bandaríkjunum og á Íslandi:
„Takk Myndstef!“ segir hann.
Sir David Attenborough, einn þekktasti sjónvarpsmaður heims, verður 100 ára næsta vor. Í viðtali segist hann óttast mest að missa sjálfstæði sitt í ellinni:
„Ég hræðist að verða hjálparvana og gaga.“
Á undanförnum árum hefur hann gengist undir nokkrar liðskiptaaðgerðir, umturnað mataræði sínu og og fengið hjartagangráð. Og heldur áfram að vinna.
Guðfinnur Stefán Halldórsson, Guffi bílasali, er staddur á sólarströnd í fantaformi eins og sjá má, 76 ára. Guffi er goðsögn í bílaheiminum og dugar vel – eins og bílarnir sem hann selur.
„Rafmagn fór af stór Reykjavíkursvæðinu, engar upplýsingar sendar í síma – þögn,“ segir Bubbi Morhens og er fúll með:
„Talsmaður Veitna sagði það komið á allstaðar Vesturbænum en Seltjarnarnes eru úti. Pæling hvers vegna eru ekki smá skilaboð sendi í síma. Að stórt þjónustu fyrirtæki sé ekki með slíkt viðbragð. Þetta er með ólíkindum.“
„Ég vil vara ykkur við. Rétt í þessu eða um klukkan hálf þrjú í dag var brotist inn í bílinn minn þar sem hann stóð á bílastæði við Espimel. Þjófurinn rótað í hanskahólfinu og var bersýnilega að leita að einhverju verðmætu,“ segir Júlíus Vífill Magnússon fyrrum borgarfulltrúi í Reykjavík:
„Ég geymi ekki verðmæti í bílnum nema að þar voru bíllyklar sem ganga að fornbíl og þeim hefur þjófurinn stolið. Það er mjög bagalegt fyrir mig. Bið ykkur um að vera á verði því þetta er ansi bíræfið. Þjófnaður um hábjartan dag og inn á einkalóð. Ef þið sjáið lykla sem ég reikna með að þjófurinn hendi þegar hann kemst að því að hann getur ekki nýtt þá þá vinsamlega látið mig vita.“
Jim Henson, skapari Prúðuleikaranna, hefði orðið 89 ára í dag en hann lést 1990 þá aðeins 54 ára. Það var oft fjör hjá Prúðuleikurunum:
„Það vottar fyrir stolti, jafnvel monti, á þessari mynd af mér sem var tekin fyrir nákvæmlega 24 árum – upp á dag,“ segir Dagur B. Eggertsson sem birti þessa fallegu mynd í gær:
„Og það var innistæða fyrir því: ég var að giftast ástinni minni, Örnu, sem ég elska líka í dag og alla daga. Innilega til hamingju með brúðkaupsafmælið ástin mín!“
„Hver týndi bílnum sínum?“ spyr húsmóðir í Hafnarfirði sem fékk þennan bíl svo gott sem í heimsókn til sín, númera – og bíkstjóralaus:
„Hann birtist allt í einu rétt í þessu fyrir framan Norðurbraut 33. Virðist hafa rúllað niður götuna, farið uppá kantinn og endað á malarhaug. Mildi að hann klessti ekki á okkar bíl þarna við hliðina á.“
„Svona er bandariskt fjölmiðlaumhverfi í dag,“ segir Bernie Sanders fyrrum forsetaframbjóðandi vestra og útlistar það svona:
„Ríkasti maður í heimi, Elon Musk, á X. Næst ríkasti maður heims, Larry Ellison, á Paramount, CBS innifalin, og er líklega að yfirtaka TikTok og CNN. Jeff Bezos á Wahington Post og Twitch. Mark Zuckerberg á svo Facebook og Instagram.
Í stuttu máli; ríkustu menn heims eiga alla fjölmiðlana sem skipta máli.
Þegar rætt er um ólígarka í Bandaríkjunum snýst það ekki aðeins um tekjur þeirra og miskiptingu auðs. Heldur stjórn þeirra á fjölmiðlunum og því hvað Bandaríkjamenn fá að sjá, heyra og lesa.“